Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 1
Bœjcirbladid
1. tölublað
23. janúar 1981
3. árgangur
Margt gerist undir yfirborðinu
Yfirlit um lögreglu- og sakadómsmúl á Akranesi 1980
bls. 5
31 nemandi útskrifast úr Fjölbraut
19. desember sl. útskrifaði
Fjölbrautaskólinn 31 nemanda
af 10 námsbrautum. Af þeim 31
nemanda sem lauk prófi voru 14
sem luku stúdentsprófi. 11 luku
prófi af iðnbrautum og 6 luku
prófi af styttri brautum en
stúdentsprófsbrautum. 7 nem-
endur af þessum 31 mættu ekki
til að taka á móti prófskírtein-
um sínum og er það umhugsun-
arvert hvers vegna menn mæta
ekki. Maður hugsar með sjálf-
um sér: er þessi áfangi viðkom-
andi einskis virði eða nennir
hann ekki að mæta. Viðkomandi
hefur kannske einhverja ástæðu
fyrir fjarveru sinni, en hún hlýt-
ur þá að vera ansi veigamikil.
Eitt atriði vakti athygli við út-
skriftina og það var að enginn
þessara 14 stúdenta setti upp
húfuna góðu. Það er ekki gott
að spá í ástæðurnar fyrir því,
en húfulaus stúdent virkar hálf
afkáralega.
Þessir luku prófi: Af Heil-
brigðissviði, Heilsugæslubraut
II: Helga Aradóttir. Af Samfé-
lagssviði, Verslunar- og skrif-
stofubraut: Guðný Tómasdóttir,
Halla Böðvarsdóttir, Hrefna Guð-
jónsdóttir og Vilborg Hjartar-
dóttir. Af Tæknisviði, Málmiðn-
aðarbraut: bifvélavirki Sigurður
A. Sverrisson, próf rafsuðu-
Hundarnir og framtalið
Samkvæmt upplýsingum sem
Bæjarblaðið fékk hjá Bæjar-
ritara, voru skráðir hundar í eigu
Akurnesinga 23 þann 14. janúar
sl.
Til gamans, og þar sem hunda-
eigendur sem aðrir fara brátt
að fylla út skattframtal sitt, er
rétt að birta eftirfarandi klásúlu,
sem er úr 2. gr. laga nr. 7 frá
1953: „Sérhver skattgreiðandi
skal á skattframtali gera grein
fyrir þeim hundum sem hann
eða aðrir, er hann hefur á fram-
færi sínu, eiga um áramót.
Hreppstjóri eða skattanefnd í
hverjum kaupstað, skulu gera
skrá yfir hunda þá, sem í
sveitarfélaginu eru, og afhenda
hana sýslumanni eða bæjarfó-
geta í aprílmánuði ár hvert.“
Svo mörg voru þau orð, og er
vonandi að hundaeigendur verði
nú samviskusamir.
manna: Sigurður B. Jónsson,
Stefán Stefánsson, Sverrir Stef-
ánsson og Vilhjálmur Gunnars-
son. Af Tréiðnabraut: Húsasmið-
ir: Alfreð Þ. Alfreðsson, Eiríkur
Jónsson, Erling Magnússon,
Þórður Sigurðsson og Þröstur
Kristjánsson. Húsgagnasmiður:
Hjörleifur Helgason.
Stúdentsprófi luku af Raun-
greinasviði: Eðlisfræðibraut Að-
alsteinn Sigurþórsson, Hilmar
Janusson, Lára Gunnarsdóttir og
Sigurður Páll Harðarson. Nátt-
úrufræðabraut: Flosi Einarsson,
Harpa Ágústsdóttir og Sólrún
Óskarsdóttir. Af Samfélagssviði:
Fornmálabraut, Sigríður Óladóttir
Málabraut: Edda Símonardóttir.
Af Viðskiptasviði: Viðskiptabraut
Ingi Þ. Edvardsson, lngibjörg
Skúladóttir, Jón Allansson,
Nanna Þ. Áskelsdóttir og Sús-
anna Steinþórsdóttir. — áv.
Á myndinni er skólameistari Fjölbrautaskólans ásamt þeim nem-
endum sem mættu til að taka við prófskírteinum sínum.
vörur svíkja engan