Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 5

Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 5
Margt gerist undir yfirborðinu Yfirlit um lögreglu- og sakadómsmól á Akranesi 1980 Annar tveggja Löggubíla okkar. Á árinu 1980 voru færð til kærubókar við bæjarfógetaem- bættið á Akranesi 903 kæru- númer. Til samanburðar eru samsvarandi tölur fyrir næstlið- in fjögur ár þessar 1979: 791, 1978: 723, 1977:810 og 744 árið 1976. Virðist því vera um nokkra aukningu að ræða á síðasta ári. Ekki skal leitt að því getum hér hvernig stendur á þessari aukn- ingu, en þættir sem geta haft áhrif í þessa átt eru m.a. fjölgun íbúa, hert löggæsla og aukin tíðni afbrota og yfirsjóna, þ.e. að löghlýðni hafi minnkað. Þá er og sennilegt að bifreiðaeign pr. íbúa hafi enn aukist, þótt engar tölur liggi fyrir um það, en umferðarlagabrotin eru stærsti pósturinn í þeim kærum sem embættinu berast. Vert er að taka sérstaklega fram að hér er um kæruskrár- númer að ræða, en ekki ein- stakar kærur, en tala þeirra er þó nokkuð hærri. Stafar það af því að iðulega eru fleiri en ein sambærileg kæra á sama aðila færð til kærubókar undir sama númeri. hannig má t.d. nefna að 10 kærur bárust eitt sinn sam- tímis á sama manninn vegna meintra ölvunarbrota. Þá er einn- ig algengt að þau brot, sem fleiri en einn aðili standa sam- an að að fremja, séu færð tii bókar sem eitt mál. Dæmi: Flokkur unglinga stendur saman að ólátum og skemmdarverkum. Hér fer á eftir lausleg skipt- ing kæranna eftir brotaflokkum, en flokkun þessi er hvergi nærri nákvæm. Kemur þar til að yfirlit þetta er unnið í nokkru hasti, svo og hitt að erfit er um vik með ýmsa flokkun. Þannig falla sum brot, s.s. nytjataka ölvaðs manns í bifreið, strangt tekið bæði undir hegningarlagabrot og áfengis- og umferðarlagabrot. í yfirlitinu eru slík tilfelli þó einungis flokkuð undir hegning- arlagabrotið, þótt vissulega sé einnig um ölvunarakstur að ræða. Þeirri reglu er og fylgt endranær við flokkunina að telja hvert brot einungis til einnar brotategundar, enda þótt oft sé um margslungið atferli að ræða. Kærendur eru ýmsir, svo sem löggæsluaðilar margskonar, eink- um þó lögregla, svo og ein- staklingar. Er þáttur lögreglunn- ar sem kæranda eðli málsins samkvæmt ríkastur varðandi um- ferðar- og áfengislagabrotin. Lögreglan kemur þó einnig við sögu varðandi þau mál sem til hennar eru kærð, þar sem lög- regla annast frumrannsókn nær allra refsimála, lögum sam- kvæmt. í eftirfarandi töflu er kærun- um skipt í 6 yfirflokka sem skýra sig sjálfir, nema ef vera skyldi sá síðasti, þ.e. aðrar kær- ur. Þar kennir ýmissa grasa og má nefna sem dæmi, tollalaga- brot, brot á reglugerð um með- ferð á fiski, kærur v. hunda- halds, slátrun á hrossi o.fl. o.fl. I. Umferðarlagabrot Ógætnis- og hraðaakstur: 55 Skoðun vanrækt: 36 Rangstaða og stöðubrot: 298 Árekstrar-ákeyrslur: 141 Útafakstur-velta: 9 Umskráning vanrækt: 7 Akstur án réttinda: 5 Ölvunarakstur: 64 Umframþungi: 5 Annað: 27 Samtals 647 II. Áfengislagabrot Ölvun og geymsla-óspektir: 144 Skemmdarverk: 23 Ólögleg meðferð áfengis: 5 Ölvun í starfi: 1 Samtals 143 III. Hegningarlagabrot Líkamsárásir: 15 Innbrot-þjófnaðir: 20 Skjalafals: 2 Fjársvik: 3 Nytjataka (bílþjófn.): 5 Nytjataka (reiðhjól); 1 Fjárdráttur: 1 IV Tékkalagabrot: 4 V. Brot á skotvopnalögum: 7 VI. Aðrar kaerur: 45 Málsúrslit Ekki hefur unnist tími til þess að taka saman tölfræðilega hver verða afdrif þessara kæra, þ.e. hvaða úrslit málin fá, en væri það þó nógu fróðlegt. Hins veg- ar er ekki úr vegi að gefa ör- stutt almennt yfirlit um það. Lang flest hina smærri brota á áfengis- og umferðarlögum, sem á annað borð er sektað fyrir, er lokið þegar á frumstigi með sektargerð lögreglustjóra. Öðr- um málum, sem eru þess eðlis að refsing þarf til að koma, er lokið í sakadómi með dómsátt eða dómi. Þannig er meirihlut- anum af ölvunarakstursmálunum lokið með dómsátt. Sé hins vegar um ítrekaðan ölvunarakst- ur að ræða er ekki heimilt að Ijúka máli með sátt, þá er gefin út ákæra á hinn grunaða og verður því að ganga dómur í málinu. Alloft er ökuleyfissvipt- ing samfara öðrum viðurlögum við umferðarlagabrotum, en öku- leyfissviptingar urðu samtals 64 á árinu, þar af 6 þar sem ekki var um ölvunarakstur að tefla. í raun voru þó „sviptingar" fleiri, þar sem nokkrir einstaklingar voru dæmdir á árinu fyrir ölv- unarakstur, en svo háttaði til að þeir voru þegar sviptir ökuleyfi ævilangt þegar dómur gekk. Var þeim því ekki gerð sérstök öku- leyfissvipting í dómi, enda þótt dómurinn fresti því enn frekar að þeir öðlist ökuleyfi á ný með endurveitingu. Sektargreiðslur til embættis- ins námu kr. 14.322.591. Skatt- greiðendur ættu þó að fara var- lega í að fagna þessum tekjulið ríkissjóðs, því trúlega eru eftir- tekjur ríkissjóðs af lögbrotum enn minni en af áfengissölu þeg- ar allt hefur verið tekið inn í myndina. Það er því lítil ágóða- von að gera út á lögbrot, ef svo mætti að orði komast. Pá ber að hafa hugfast að markmið með sektarrefsingum er ekki og má ekki vera fjáröflun, heldur eiga refsingar fyrst og fremst að verka á hinn brotlega til varn- aðar, svo og aðra út í frá. Af framansögðu ætti að vera Ijóst að ýmislegt gerist undir yfirborðinu í okkar annars ágæta bæ og ennþá augljósara að okk- Leiðrétting í viðtali við Júlíus Þórðarson í síðasta blaði urðu eftirfarandi mistök: Sagt var að Þórður Ás- mundsson og Óskar Halldórsson hefðu sett upp fyrstu frystivél- ina hér. Hið rétta er að það vou Þórður og Bjarni Ólafson og Co. Þá var Árni Einarsson nefnd- ur Arthúr í myndatexta. ar ágætu löggæslumenn „Akró- pólís“ hafa haft fleira fyrir stafni á nýliðnu ári en að taka í spil inni á stöð. Dominique Ný dularfull og kyngimögnuð bresk-amerísk mynd 95 mínútur af spennu og í lokin óvæntur endir. Aldurstakmark 14 ára. Sýnd 22-23. jan. kl. 9 Hugvitsmaðurinn Bráðskemmtileg frönsk gaman- mynd. Mynd fyrir alla fjölskyld- una. Sýnd 25.-26. jan. kl. 9. Dr. JUstice Sérlega spennandi og viðburða- hröð, ný frönsk-bandarisk lit- mynd. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd 23.-25. jan. kl. 11,15. Gullöld skopleikaranna sýnd kl. 2, sunnudag. íbúðir til sölu Eigum nokkrar íbúðir óseldar: Að Einigrund 6 og 8 — afhendast í vor. Að Lerkigrund 1 og 3 — afhendast 1982. Nánari upplýsingar gefnar á skrifstófu okkar að Akursbraut 11. Trésmiðjan Akur hf. Akursbraut 11, — S.: 2006 og 2066 5

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.