Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 2

Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 2
Bœjcirblodid 1. tbl. 3. árg. 23. janúar 1981 Útgefandi: Bæjarblaðið sf., pósthólf 106, 300 Akranes @ 93-2660 Ritstjórn: Sigþór Eiríksson og Haraldur Bjarnason. Aðstoð: Árni Vésteinsson. Setning og prentun: Prentbær sf. Auðlindir þjóðarinnar Óvenju harður vetur með frosthörkum á hálendinu hefur með öðru gert það að verkum að rafmagn hefur verið af skornum skammti hjá okkur Islending- um undanfarið. Stóriðjuverin verða þess vegna að draga saman framleiðslu og almenningur hlýtur óþægindi af ljósleysi og kulda. Við höfum gjarnan gumað af því hve mikla orku við eigum óbeislaða í þessu landi og teljum við okkur þar eiga fjársjóð umfram margar aðrar þjóðir. Fjár- sjóð sem eigi eftir að koma okkur til góða í ljósum, hita og aukinni framleiðslu á komandi árum. Vissulega er þetta rétt orkan er næg í vatnsföllum og jarðhita. Spurningin er hins vegar hvort þjóðin á þessa orku? — Því miður virðist ekki svo vera og er nýlegt bótamat til „eigendaa Deildartunguhvers eitt gleggsta dæmið um það, en þó ekki það eina. Við svo búið má ekki standa. I þessum málum þarf ríkisvaldið eitthvað að gera. Það, að mest öll þjóðin þurfi að greiða nokkrum einstaklingum háar fjár- upphæðir fyrir afnot af auðlindum, sem við í reynd eigum öll, er engan veginn réttlátt. Sanngjarnar greiðslur fyrir hugsanlegum búsifjum viðkomandi aðila væri sanngjarnara. — Hér þarf greinilega lagasetningu til að rétta hlut fjöldans í landinu. Raðhús til sölu Raðhús við Einigrund til sölu. Húsin seljast fokheld. Upplýsingar í síma 2722. Byggingafélagið Nes hf. FASTEIGNIR EINBYLISHUS Háholt: Timburhús, hæð, kjallari, 3 herbergi Jörundarholt: Fokhelt einbýlishús, 117 m" Kirkjubraut: 2 hæðir og kjallari, steypt Mánabraut: 2 hæðir og kjallari, timburhús Presthúsabraut: Lítið 5 herb. hús Vesturgata: Eldra timburhús, 2 hæðir, kjallari Víðigerði: Hæð ris og kjallari, steypt, stofur á neðri hæð, 3 svefnherbergi á rishæð, góð ræktuð lóð Vesturgata: Hæð, ris og kjallari, bifreiða- geymsla. Reynigrund: Steypt, 127 m2, 5 herb., bílskúrs- plata STÆRRI IBUÐIR Suðurgata: Á 2 hæðum, 6 herb. og stofur Vesturgata: Hæð og ris, 6 herbergi Vitateigur: 5 herbergi, 120 m2 4ra HERBERGJA IBUÐIR Einigrund: 3ja hæð í nýrri blokk Heiðargerði: Efri hæð í tvíbýlishúsi, 90 m2 Hjarðarholt: Neðri hæð í tvíbýlish., 100 m2, bifreiðageymsla Krókatún: Efri hæð í tvíbýlish., bifreiðag. Sandabraut: Neðri hæð í tvíbýlishúsi 101 m2 Suðurgata: 3. hæð í sambýlishúsi, 100 m2 Vesturgata: Efri hæð í tvíbýlishúsi, 85 m2, bifreiðageymsla 3 ja HERBERGJA IBUÐIR Garðabraut: Góð 3. hæð í blokk 2. herbergja íbúðir: Einigrund: Á 3ju hæð í nýrri blokk Einigrund: Á 2. hæð í nýrri blokk Vallarbraut: Á 3ju hæð í nýrri blokk Fullbúið einbýlishús á Garðagrundum úskast. FASTEIGNA- OG SKIPASALA VESTURLANDS / / \\ Kirkjubraut 11,2. hæð sími 2770. LOGFRÆÐISKRIFSTOFA Vö V JJ Jón Sveinsson, hdl. nafnnr. 5192-1356.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.