Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 8

Bæjarblaðið - 23.01.1981, Blaðsíða 8
íþróttaannál 1980 íþróttamaður Akraness Ingi Þór Jónsson sundmaður var kosinn íþróttamaður Akra- ness á árshátíð ÍA. Ingi hór var vel að sæmdarheitinu kominn og hefur hann sett hvert íslands- íþróttamenn Akraness 1979 og 1980, sundmennirnir Ingólfur Gissurarson og Ingi Þór Jónsson metið á fætur öðru og var stolt okkar Akurnesinga á íþróttasvið- inu á sl. ári. Nýr formaður ÍA Svavar Sigurðsson var kosinn formaður ÍA á síðasta ársþingi þess, með honum í stjórn voru kosnir Sigursteinn Hákonarson, gjaldkeri og Pétur Jóhannesson, ritari. Fráfarandi formaður ÍA er Þröstur Stefánsson, en hann hefur unnið mikið og óeigin- gjarnt starf fyrir íþróttahreyfing- una á Akranesi á undanförnum árum. Knattspyrna Meistaraflokkslið ÍA hafnaði í fjórða sæti íslandsmótsins að þessu sinni. Liðið var slegið út úr Bikarkeppninni af FH í fyrstu umferð. Skagamenn fengu þó bikar á árin því þeir sigruðu í Litlu-bikarkeppninni annað árið í röð. í Evrópukeppninni urðu mót- herjarnir hið geysisterka þýska lið 1. F.C. Köln, sem komst átakalítið í næstu umferð keppn- innar. 5. flokkur ÍA varð íslands- meistari í annað sinn á þremur árum, sem er mjög góður árang- ur, sigraði Val í úrslitaleik 1-0. Handknatteikur Meistaraflokkslið ÍA í hand- knattleik karla komst á þröskuld annarrar deildar á árinu, en lið- ið hafnaði í öðru sæti í 3. deild og lék aukaleiki við Pór frá Ak- ureyri um sæti í annarri deild. Eftir jafnteflisleik fyrir norðan tapaðist heimaleikurinn með þriggja marka mun og þar með var draumurinn úti að sinni. Meistaraflokkslið kvenna náði þó athyglisverðasta árangri árs- ins er liðið tryggði sér sæti í 1. deild eftir tvo hörkuúrslita- leiki við Ármann. Árangur liðs- ins er enn athyglisverðari fyrir það, að þetta var fyrsta árið sem ÍA sendi lið í íslandsmót meistaraflokks kvenna. Körfuknattleikur Körfuknattleikurinn er í mikilli sókn á Akranesi. Það sýndi sig best með stórhuga þjálfararáðn- ingu liðsins en þeir réðu til sín bandaríska leikmanninn John Johnson sem áður lék með Fram. Liðið hlaut 10 stig í 2. deild íslandsmótsins og hafn- aði í þriðja sæti í sínum riðli. Golf Golfklúbburinn Leynir hélt sam- tals 21 mót á árinu, þar af 3 opin mót. Vesturlandsmótið var haldið á Akranesi og sigraði Leynir og átti einnig Vestur- landsmeistarann. Þórhallur Inga- son sló holu í höggi á 5. braut vallarins. Akranesmeistari í golfi varð Björn H. Björnsson annað árið í röð. Badminton Badmintonfélagið starfaði af krafti á árinu, tók þátt í 18 mót- um utan Akraness og hélt auk þess 5 mót hér á Akranesi. Árangur var góður í flestum mótunum. Félagið eignaðist marga meistara á árinu, þó einkum í unglingaflokkum. Sund Sundfélag Akraness átti þrjá menn í íslenska landsliðinu í sundi, þá lnga Þór Jónsson, ingólf Gissurarson og Magna Ragnarsson, og stóðu þeir sig allir mjög vel. Ingi Þór setti alls 16 íslandsmet á árinu en Ingólf- ur setti 4. Magni Ragnarsson setti 3 íslandsmet í drengja- flokki. Ingi Þór Jónsson var kjör- inn sundmaður Akraness 1980. Hús og eignir sf. fasteignasala Fokhelt einbýlishús ásamt bifreiðageymslu á Jörundarholti. 2. herbergja íbúð ásamt herbergi í kjallara í fjölbýlishúsi við Skarðsbraut. 2. herbergja íbúð ásamt herbergi í kjallara í Húsverksblokk við Vallarbraut. Þvottahús í íbúðinni. 3 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Jaðarsbraut. 3 til 4 herbergja íbúð á efri hæð í tvfbýlishúsi við Krókatún sérinngangur, bifreiðageymsla. 3 til 4 herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi við Mána- braut, sér kynding, bifreiðageymsla. 3 herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Skarðs- braut, þvottahús í íbúðinni, herbergi í kjallara. 4 herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi við Háholt, íbúðinni fylgir bifreiðageymsla. Sér inngangur. 3- 4 herbergja neðri sérhæð við Háholt, íbúðinni fylgir rúmgóð bifreiðageymsla. 4- 5 herbergja íbúð á neðri hæð í svíbýlishúsi við Hjarðar- holt, sér inngangur og kynding. 4 herbergja efri hæð við Kirkjubraut, sér inngangur og bifreiðageymsla. 4 herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi við Sandabraut, sér inngangur. 4 herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi við Skarðs- braut, þvottahús í íbúðinni og herbergi í kjallara. 4 herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi við Sóleyjargötu, ný- legur bílskúr fylgir. 4 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Suðurgötu, íbúðin er á fjórðu hæð. Mjög gott útsýni. 4 herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi við Vesturgötu, sér hiti og inngangur, bifreiðageymsla. 5 herbergja íbúð á efri hæðum í tvíbýlishúsi við Vestur- götu. Sér inngangur. Einbýlishús á einni hæð ásamt bifreiðageymslu við Heiðar- gerði. 3 svefnherbergi og stofa. Einbýlishús, járnklætt, við Melteig, 4 svefnherb. og stofur. Einbýlishús, rúmlega fokhelt, úr timbri á Grundum. Húsið er 142,2 ferm. auk bifreiðageymslu. Einbýlishús, járnklætt, 4 svefnherb., stofa, geymslur í kjallara, við Skagabraut, bifreiðageymsla. Einbýlishús við Suðurgötu, húsinu má skipta í tvær íbúðir 3 og 5 herbergja. Einbýlishús, forskallað, við Vesturgötu, 3 svefnherb. og stofur. Raðhús við Vogabraut, 4 svefnherb. á efri hæð, stofur og 1 herb. á neðri hæð, bifreiðageymsla. Hús og eignir sf. Fasteignasala — Skipasala Hailgrímur Hallgrímsson, lögg. fasteignasali Deildartúni 3 — Sími 93-1940 Akranesi

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.