Bæjarblaðið - 23.01.1981, Page 3

Bæjarblaðið - 23.01.1981, Page 3
Um útivistartíma barna og unglinga á Akranesi Pað þarf ekki að minna for- eldra barna á, að líf í borgum og bæjum býður mörgum hætt- um heim. Öllum foreldrum hlýt- ur að vera kappsmál, að börn þeirra hljóti reglusamt uppeldi og verði hamingjusamir borgar- ar. Vitað er að hér er þeim lagð- ur mikill vandi á herðar. Flestir þættir uppeldisins vérða aðeins leystir af þeim einum, þó er góð samvinna við aðra foreldra stundum nauðsynleg. Á sumum sviðum er til þess ætlast að bæjarfélagið komi foreldrum til aðstoðar. Félagsmálaráð Akraness skal nú meðal annars annast vernd barna og unglinga á Akranesi, en það hlutverk hafði barna- verndarnefnd áður. í samræmi við það, á það að koma foreldrum til aðstoðar þeg- ar þess þarf með. Eitt af þeim sviðum þar sem aðstoðar er þörf, er útivist barna og ung- linga á kvöldin. Útivist barna og unglinga á síðkvöldum hefur lengi verið foreldrum, sem og öðrum, mikið áhyggjuefni. Það er ekki aðeins ósiður, heldur getur það einnig haft í för með sér verulegar hættur, jafnvel af- brot barna og unglinga, eins og dæmi eru til um. Reglur um úti- vistartíma barna og unglinga hafa verið samræmdar um land allt. í þessum reglum segir svo: „í kaupstöðum, kauptúnum og öðru slíku þéttbýli með 400 íbúa og fleiri, mega börn yngri en 12 ára ekki vera á almannafæri eft- ir kl. 20 og eftir kl. 22 tímabilið 1. maí til 1. sept., nema í fylgd með fullorðnum aðstandendum sínum eða umsjónarmönnum. Unglingar yngri en 15 ára mega á slíkum stöðum ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 tíma- bilið 1. september til 1. maí og eftir kl. 23 1. maí til 1. septem- ber, nema í fylgd með fullorðn- um, eða um sé að ræða beina heimferð frá skólaskemmtunum, íþróttasamkomum eða frá ann- arri viðurkenndri æskulýðsstarf- semi. Hverskonar þjónusta við börn og ungmenni eftir löglegan úti- vistartíma, önnur en heimflutn- ingur, er bönnuð að viðlagðri ábyrgð þess, er þjónustuna veit- ir. Handhöfum þjónustuleyfa er skylt að fylgjast með því, að ákvæði þessi séu haldin. Ungmennum yngri en 16 ára er óheimill aðgangur eða dvöl á almennum dansleikjum eftir kl. 20, öðrum en sérstökum ung- lingaskemmtunum, sem haldnar eru af skólum, æskulýðsfélögum eða öðrum aðilum, sem til þess hafa leyfi og háðar eru sérstöku eftirliti. Forstöðumönnum dansleikja er skylt að fylgjast með því að ákvæði þessi séu haldin, að við- lögðum sektum og/eða missi leyfis til veitingahalds eða skemmtanahalds um lengri eða skemmri tíma.“ Nauðsynlegt er, að öll börn á Akranesi, forráðamenn þeirra og foreldrar þekki þessar regl- ur. Brot á útivistarreglum varða sektum. Skorað er á foreldra og aðra forráðamenn barna á Akranesi að taka höndum saman í þessu máli og afnema með samstilltu átaki óþarfa útivist barna að kvöldlagi og vernda þau fyrir skaðlegum áhrifum og hættum, sem af þeim geta leitt. Kennið börnunum að virða útivistarregl- urnar og stuðlið þannig að lög- hlýðni hinnar uppvaxandi kyn- slóðar. Foreldrar munið, að öll sala á tóbaksvörum til barna og ung- linga innan 16 ára aldurs er óheimil. Sendið því ekki börn ykkar í verslanir til kaupa á slíkum varningi. Látið börn ykkar ekki hjóla á Ijóslausum reiðhjólum í skammdeginu, það setur þau í mikla hættu í umferðinni. Sleða- og skautaferðir barna og unglinga á götum bæjarins er hættulegur leikur, sem auk þess er bannaður skv. lögreglu- samþykkt. Við treystum því for- eldrum til að sjá um að börn þeirra stundi ekki slíka leiki. Timbur einingahús frá Trésmiðjunni flknr hl. SUÐ-VESTUR' Trésmiðjan Akur hf. hefur nú um skeið framleitt timbureiningahús eftir teikningu frá Verkfræði- og teiknistofunni hf. Húsið án bifreiðageymslu er ca. 140 ferm. og afhendist frágengið að utan með útihurðum og gleri en óklætt að innan og án einangr- unar. Bifreiðageymsla er ca. 33 ferm. og er einnig frágengin að utan og gleri og hurðum. Aðalbílskúrshurð er á lyftijárnum, en bifreiða- geymslan er óklædd og óeinangruð. Húsin afhendast annað hvort af verkstæði eða reist á byggingar- stað. Verð hússins án bifreiðageymslu við verkstæðisdyr, miðað við verð 1. janúar 1981, er kr. 155.300,00 Verð bifreiðageymslu, miðað við sama tíma er kr. 49.025,00. Allar frekari upplýsingar og teikningar fást á skrifstofu okkar. Trésmiðjan Akur hf. Símar 2006 og 2066 3

x

Bæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.