Bæjarblaðið - 23.01.1981, Side 9
Stefán Lárus Pálsson:
Ef að er gáð
Sá siður að þegar jólin nálgast
á hverju ári reyna þeir sem
gefa út flokks- og héraðsblöð
að gefa út blöð sín, féll ekki úr
gildi nú frekar en endranær.
Hvert af öðru komu þau fljúg-
andi gegn um bréfalúguna sam-
kvæmt venju snyrtileg og stút-
full af auglýsingum og jólaboð-
skap auk frétta úr bæ og byggð
á Vesturlandi. Þó tekst misjafn-
lega til með jólaboðskapinn
hverju sinni og veldur þar mestu
hver á heldur, eða hver stýrir
penna ti að koma hugsunum sín-
um í letur. Dögun heitir blað
Alþýðubandalagsins á Akranesi,
eins og stendur á haus blaðsins,
þar er Gunnlaugur Haraldsson,
en aðrir í ritnefnd Engilbert
Guðmundsson og Guðlaugur Ket-
ilsson. Þetta blað hefur oft haft
að geyma furðulegt innihald í
og með öðru betra, og eru skrif
Hannesar Hjartarsonar það
betra. Þau eru með því besta
sem sést hér í bæjarblöðunum
yfirleitt. Þegar jóla-Dögunin
barst mér (tvö blöð að venju,
annað á íbúðarhæðina og hitt
í þvottahúsið þar sem hamstr-
arnir mínir búa) greip ég ritið
og fletti því yfir í snatri og leit
á fyrirsagnir og nöfn höfunda.
„Nú, það er bara svona" hugs-
aði ég. „Blessunin hún Bía skrif-
ar þá jólapistilinn". Og ég hóf
lesturinn af áhuga. Þegar honum
lauk var ég furðu lostinn, og þó
maður þekki nú sitt heimafólk,
en lengi skal manninn reyna, og
konuna líka að sjálfsögðu. Þarna
var jólaguðspjallið fært í nútíma-
búning og alveg í nýrri útgáfu.
Frúnni tókst sem sagt að setja
lausnara harðlínukomma og ,,Úr
Nato-herinn burt“ fólksins, sjálf-
an Gervasoni í hlutverk frelsar-
ans kristinna manna. Virðist svo
sem jólahátíðin skyldi snúast
um dvöl þessa „mannssonar"
meðal vor, en ekki lengur vera
fæðingarhátíð þess „er var í
jötu lagður lágt“ í Betlehem
forðum. Hver hefur sinn smekk,
en ekki fellur mér að skipta á
heilögum Patrik frá Frans, mann-
inum með klaufhamarinn og
Jesúbarninu manninum á kross-
inum sem tákni jólanna og frels-
ara kristins fólks. Ég fletti síð-
an Dögun og las meira. „Er
hann Gunnlaugur Haraldsson
nú kominn með andskotans tann-
verkinn einu sinni enn“, tautaði
ég þegar ég sá grein hans um
húsbyggingu Ingjaldar tannlækn-
is. Öll skrif þessa unga manns
um þetta mál eru svo furðuleg
að flest fólk hér á Akranesi
rekur í rogastans. Okkur finnst
sem hér þekkjum til ekki um-
talsvert þótt tannlæknirinn okk-
ar, sem alþekktur er fyrir dugn-
að og vinnusemi geti á miðjum
aldri byggt yfir sig. Hvað veld-
ur þá þessum áhuga G.H. fyrir
þessu? Því er vandsvarað, en
fljótt á litið virðast þau bera
sterkan keim af öfund í garð
Akurnesingar!
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar sendir
nú út reikninga vegna stofngjalda.
Samkvæmt 7. gr. gjaldskrár gjaldfellur 50%
stofngjalds þegar lagning götuæða hefst.
Reikningar verða sendir í öll hús sem inntak
er komið í.
Ákveðið hefur verið að gefa þeim húseigend-
um, sem lagt verður til síðar á árinu, kost á
að greiða stofngjald á sömu gjaldskrá og nú
eru sendir reikningar út eftir, greiði þeir
gjaldið fyrir 10. febrúar nk.
Skrifstofa hitaveitunnar að Heiðarbraut 40
(Bókasafninu) verður opin mánudaga og mið-
vikudaga frá kl. 13-18, föstudaga og laugar-
daga frá kl. 10-12 til 10. febrúar.
H.A.B.
þeirra sem hafa þrek og dugn-
að til þess að halda þannig á
málum, þeir hafa skapað sér
möguleika með þrotlausri elju-
semi til þess að koma sér og
atvinnurekstri sínum vel áfram.
Það samræmist víst ekki boð-
skap G.H. sem telur sig sér-
legan fulltrúa þess hóps sem
hann og honum líkir kalla öreiga
þessa lands, að fólk skuli hafa
getu til að afla sér fjár umfram
brýnustu nauðþurftir. Samkvæmt
þeirri kenningu á sllkt ekki að
vera hægt á íslandi í dag, nema
á óheiðarlegan hátt. Það vekur
oft furðu að sjá yfirfull bíla-
stæðin við frystihúsin, því þetta
fólk á varla að hafa málungi
matar fyrir starf sitt.. Því sam-
kvæmt öreigakenningunni stela
hinir alvondu og illa innrættu
atvinnurekendur öllum afrakstr-
inum af vinnu þess og vel það,
þó er þarna unnið eftir samn-
ingum stéttarfélaga. Það er líka
kúnstugt að sjá fólk sem heldur
þessum boðskap á lofti ganga
út af vinnustað í matarhléi,
hoppa inn í bifreið sem kostar
ca. 80-110 þúsund nýkr. og aka
síðan á undan frystihússrútunni
heim í nýja einbýlishúsið sitt til
að snæða.
Þessi öreigahræsni er tíma-
skekkja sem betur fer, hún virk-
ar álíka sannfærandi og her-
námsandstæðingar sem druslast
um í aflögðum ígangsklæðum
amerískra varnarliðsmanna mál-
stað sínum til framdráttar.
Nei, Gunnlaugur Haraldsson,
þér þarf ekki að vaxa í augum
þótt fólk hér í bæ geti byggt
yfir sig og sín umsvif. Hér bygg-
ir fólk úr öllum stéttum sér þak
yfir höfuðið og byggir myndar-
lega, jafnvel verkafólk hér bygg-
ir eins og aðrir, þótt samkvæmt
öreigakenningunni eigi það enn
að ganga með hné og olnboga
bera út úr tötrunum, berfætt
með blóðuga hnúa eftir slags-
mál við fjandsamlega forráða-
menn atvinnufyrirtækja sem all-
ir hafa víst klifrað eftir blóðug-
um og bognum bökum starfs-
fólks síns til að byggja upp fyrir-
tæki sín og vinnustaði fólksins.
Styðja meðsetar þínir í ritnefnd
að allir atvinnurekendur séu
óheiðarlegir og hvinnskir? Ég
held varla, þeir hljóta að þekkja
betur til þessara hluta af raun.
Hvernig fer annars ungur maður
nýkominn frá námi að því að
eignast góða bifreið og þak yfir
sig á stuttum tíma við þau sult-
arkjör sem sagt er að þetta
fólk búi við eftir þess eigin
heimildum?
Það vekur því furðu að sjá
slíka öreiga láta iðnaðarmenn
mála nýkeypt myndarlegt ein-
býlishús að utan í sumarblíðu
liðins árs, meðan eigandinn
sleikir sólina í sumarfríi. Lítið
ykkur nær og reynið að átta
ykkur á raunveruleika líðandi
stundar, en starblínið ekki alltaf
á nágrannana. Öreigar eru varla
til á fslandi í dag, sem betur
. fer.
Stefán Lárus Pálsson.
Bensíniö afgreitt á öílinn
Sjálfsafgreiðsla á bensíni og
olíu á bíla hefur verið algild hjá
bensínstöðvum hér á Akranesi í
gegnum árin. Þó hefur á síðari
árum verið tekin upp afgreiðsla
að einhverju marki á nokkrum
bensínstöðvum. En þjónustan
hefur þó ekki verið sambærileg
miðað við það sem gengur og
gerist í Reykjavík, til dæmis.
Nú hefur hins vegar orðið
mikil breyting á bensínsölu hjá
Skaganesti, en nýlega yfirtók
Skeljungur hf. bensínsöluna þar.
Sama fyrirkomulag er nú á bens-
ínsölu þar og gerist í Reykjavík.
Ráðnir hafa verið til starfa 5
bensínafgreiðslumenn og eru
alltaf tveir þeirra á vakt frá kl.
7,30 á morgnana til kl. 21,15 síð-
degis alla daga vikunnar. Frá kl.
21,15 og til 23,30 er hins vegar
um sjálfsafgreiðslu að ræða.
Benedikt Jónmundsson fram-
kvæmdastjóri Skeljungs hf. á
Akranesi sagði að þetta fyrir-
komulag yrði haft á til að byrja
með en reynslan yrði síðan að
skera úr um hver endanlegur af-
greiðslutími yrði. Stöðvarstjóri
bensínstöðvarinnar við Skaga-
nesti er Kristinn Karlsson.
Ástæða er til að fagna þess-
ari nýbreytni Skeljungs hf. til
aukinnar þjónustu við Akurnes-
inga.
9