Bæjarblaðið - 23.01.1981, Síða 11

Bæjarblaðið - 23.01.1981, Síða 11
Ráðinn bjálfari Nú mun nær fullfrágengið að Knattspyrnuráð Akraness, ráði til sín enskan knattspyrnuþjálf- ara. Samkvæmt upplýsingum sem Bæjarblaðið aflaði sér hjá Jóni Runólfssyni formanni Knatt- spyrnuráðs, mun endanlega verða gengið frá þessum málum nú næstu daga. Rjálfarinn sem um ræðir, Ken Oliver að nafni, er til kominn vegna milligöngu George Kirby, sem þefur leitað að þjálfurum í Englandi fyrir lið ÍA. Ken Oliver hefur verið þjálfari hjá enska 3. deildar lið- inu Walsall s.l. tvö ár. En 24. desember s.l. fékk Oliver heldur óskemmtilega jólagjöf frá félagi sínu, því þá var hann látinn fara frá Walsall sökum þess að ár- angur félagsins var ekki nægi- lega góður síðustu tvo mánuði. Einhverjum var um að kenna og var skuldinni skelt á Ken Oliver. í Englandi þótti mönnum þetta afar einkennileg ráðstöfun hjá félaginu því Ken Oliver þykir mjög hæfur þjálfari. Áður hafði hann starfað sem aðalþjálfari hjá Newcastle United og Birming- ham City. Hann yfirgaf síðan Birmingham aðeins vegna þess að Alan Ashman var ráðinn framkvæmdastjóri Walsall en hann bað Oliver um að ganga til liðs við sig, því þeir voru hér Akranes - Nœrsveitir! Get tekið að mér trésmíðavinnu nú þegar Þröstur Kristjánsson Vesturgötu 143 — Sími 1389 AKRANESKAUPSTAÐUR SORPKASSAR Sorpkassar úr blikki eru til sölu. Verð hvers kassa kr. 600,00. Tekið er á móti greiðslu fyrir þá á bæjarskrif- stofunni, en afhending þeirra fer fram í áhaldahúsi bæjarins við Ægisbraut, gegn framvísun greiðslukvittunar. Bæjartæknifræðingur. Akurnesingar! ,1 Spónaplötur, allar þykktir Filmuplötur Handverkfæri Málningarvörur frá Hörpu Trésmi&ja Sigurjóns & Þorbergs hf. Byggingavörudeild sími 2722 Þjóðbraut 13 Akranesi. á árum áður samherjar með Sunderland, en þaðan er Ken Oliver ættaður. Rað er óskandi að Knatt- spyrnuráð nái samkomulagi við Ken Oliver um þjálfun 1. deildar liðs ÍA í sumar. Hér virðist vera um mjög hæfan mann að ræða sem hefur mikla reynslu að baki. Bæjarblaðið spurði Jón Run- ólfsson að því hvort breyt- ingar yrðu á Akranesliðinu næsta sumar. Hann sagði að allir leikmennirnir sem hefðu verið með í fyrra yrðu í barátt- unni næsta sumar að Jóni Gunn- laugssyni undanskyldum en hann mun gerast þjálfari Völsungs á Húsavík. Þá hefur Gunnar Jóns- sem lék með Skallagrími úr Borgarnesi í fyrra, ákveðið að ganga til liðs við ÍA, en hann er sterkur miðvallarleikmaður. Tveir handboltastórleikir Föstudaginn 30. janúar nk. eru tveir stórieikir í handknattleik hér á Akranesi, allavega á mæli- kvarða okkar Skagamanna. Fyrri leikurinn er kl. 20 en þá eigast við í 1. deild kvenna lið ÍA og Hauka og er sá leikur afar þýðingarmikill fyrir ÍA stelpurn- ar, því með sigri í þeim leik geta þær svo gott sem tryggt sér áframhaldandi veru í 1. deild kvenna, sem er í sjálfu sér frá- bær árangur hjá svo ungu og óreyndu liði. Strax að kvenna- leiknum loknum munu eigast við í 3. deild karla lið ÍA og Rórs frá Vestmannaeyjum og er sigur í þeim leik ekki síður mik- ilvægur fyrir lið okkar Skaga- manna. Takist liðinu að sigra í leiknum aukast líkurnar all veru- lega á að komast í 2. deild að ári. Um efstu sætin í 3. deild berjast, Stjarnan, Grótta, Þór Vm. og ÍA og munu tvö af þess- um liðum flytjast upp í 2. deild og er ekki um aukaleiki að ræða eins og í fyrra. Skagamenn eru nú hvattir til að mæta í íþróttahúsið kl. 20, föstu- daginn 30. janúar og hvetja liðin okkar til sigurs. Oft er þörf en nú er nauðsyn. Nýtt Nýtt Málningarvinna Tökum að okkur alhliða málningarvinnu úti sem inni. Leiðbeinum með litaval Gerum verðtilboð ef óskað er. Greiðsluskilmálar eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá Gler og málning, sími 1354 og hjá Aðalsteini Aðalsteinssyni, sími 1397. Málningarverk sf., Akranesi. AKRANESKAUPSTAÐUR Dagvistun fyrir aldraSa Þeir eldri bæjarbúar, sem vilja sækja um dag- vistun á dvalarheimilinu Höfða, vinsamlegast hafið samband við undirritaðan milli kl. 11 og 12 fyrir hádegi virka daga í síma 1211. Undir- ritaður veitir nánari upplýsingar, sjá einnig fréttatilkyningu. Félagsmálastjóri. 11

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.