Bæjarblaðið - 23.01.1981, Page 12

Bæjarblaðið - 23.01.1981, Page 12
Bœjarblodid 23. janúar 1981. Verð kr. 5,00. Af sjúkrabílnum umtalaða: Enn er allt í Fyrir skömmu barst Bæjar- blaðinu eftirfarandi bréf, og er það hjartasjúklingur hér í bæ sem skrifar það: Þar sem ég sá að í byrjun des- ember kom hér í bæinn ný og fullokmin sjúkrabifreið með skrásetningarnúmerinu E-1211, taldi ég lífslíkur okkar hjarta- sjúklinga aukast til muna, þar sem þessi bifreið var búin öllum helstu tækjum til bráðahjálpar. Þar sem við höfum nú búið við það í 8 ár að hafa ekki aðgang að sjúkrabifreið, (heldur hefur lögreglan af miskun sinni flutt okkur í „maríu" sinni) er höf- um verið svo ólánssöm að þurfa að flytjast á sjúkrahús í sjúkra- bifreið. Þá gladdist ég mjög er ég sá að búið var að staðsetja hina nýju sjúkrabifreið við sjúkrahúsið. Núna eftir áramótin fór ég og ætlaði að skoða þessa nýju bif- reið er ég taldi að búið væri að taka í notkun, en viti menn, ég fann hana ekki, hún hafði ekki sést í nokkra daga fyrir utan sjúkrahúsið og enginn þar vissi um hana. Ég fór því til lögregl- unnar og fékk þær upplýsingar þar, að þangað hafi ekki verið tilkynnt hvarf hennar. Þar sem ég get átt von á því að fá hjartakast hvenær sem er bið ég Bæjarblaðið að gangast í því fyrir mig að kanna hvar þessi nýja sjúkrabifreið getur verið niðurkomin og hvert fólk á að snúa sér ef það þarf á henni að halda. Svar Bbl.: Eins og fram kom í síðasta tölublaði Bæjarblaðsins er nú komið stórt vandamál, að því er virðist, með hinn nýja sjúkrabíl. Hann hefur nú staðið óhreifður í rúman mánuð vegna þess að ekki fæst úr því skorið hvort ríki eða bær á að sjá um rekstur hans. Bæjarblaðið kann- aði fyrir skömmu hvar bíllinn er geymdur núna og komst að því, að hann er vandlega lokaður inni á slökkvistöðinni. Þar virðist sem sagt vera búið að leggja honum í Iangvarandi hvíld. Eftir því sem Bæjarblaðið kemst næst hefur enn ekkert gerst sem greitt getur úr flækj- unni. Á meðan og líklega í næstu framtíð megum við Akur- nesingar láta okkur nægja til sjúkraflutninga gamlan og út- jaskaðan lögreglubíl, sem jafn- vel er verr útbúinn til sjúkra- flutninga en venjulegur sendi- bíll. Firmakeppni U.K.R.A. vill vekja athygli á firmakeppni í 6. fl. í knattspyrnu 25 jan. nk. og hefst hún kl. 10,30. Þar munu þeir yngstu keppa und- ir merkjum ýmissa heimsfrægra félagsliða. Fólk er hvatt til að mæta í íþróttahúsið, því þarna er leikgleðin og baráttan í fyrir- rúmi. Einnig er vakin athygli á fyrirtækjakeppni sem fram fer 7. feb. nk. í íþróttahúsinu. Laugardagskvöldið 24. janúar hlaðborð af þorramat snaHaTt 2 • akranesí - sm 193)2773 Sjúkrabílli á meðan hann var staðsettur við Sjúkrahúsið. Skagaleikflokkurinn af stað Bæjarblaðið hafði samband við Ólínu Jónsdóttur formann Skagaleikflokksins, til að for- vitnast um fyrirhugaða starfsemi á nýju ári. Ólína varð fúslega við þeirri beiðni. Hún sagði m.a. að eftir þær viðtökur sem síð- asta verk Skagaleikflokksins, Stormurinn eftir Sigurð Róberts- son, fékk hefði útlitið með áframhaldandi starfsemi ekki verið gott. Áformað hefði verið að taka Túskildingsóperuna eftir Bertolt Brecht til sýninga en þeim áformum hefði verið snar- lega slaufað eftir útkomuna á Storminum. Það má eiginlega segja að útkoman á Storminum hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti og menn hafi þurft að setjast niður og hugsa sinn gang. En með hækkandi sól hressast menn og leikáhugafólk með „bakteríuna“ lætur ekki bugast þó aðeins blási á móti. Nú hefur verið ákveðið að næsta verkefni verði Atómstöð- in eftir Nóbelsskáldið okkar Halldór Laxnes. Leikstjóri hefur verið ráðinn Gunnar Gunnarsson leiklistarfræðingur. Undirbúning- ur mun hefjast um eða eftir næstu mánaðarmót. Félagar Skagaleikflokksins verða boðaðir á fund þar sem málin verða rædd. Reikna má með að sex vikur fari í æfingar þannig að frumsýning gæti hugsanlega orð- ið í lok marsmánaðar. Bæjarblaðið þakkar Ólínu fyr- ir spjalið og óskar Skagaleik- flokknum góðs gengis á nýju ári. Þorrafundur Slysavarnakonur á Akranesi, munið þorrafundinn þann 27. jan- úar kl. 20,00 í húsi félagsins Nefndin. Athugið Minningarkort Hjartaverndar fást hjá Sveini Kr. Guðmundssyni, Espigrund 7, Akranesi, sími 2220. Furðuleg afstaða sóknarprestsins: Ombrot á einkaréttinn Eins og bæjarbúum er kunn- ugt hætti blaðið Umbrot að koma út um áramótin, allavega um sinn. Margir lesendur höfðu þá sam- band við Bæjarblaðið og óskuðu eftir að þáttur um giftingar og skírnir, sem verið hafði í Um- broti, birtist í Bæjarblaðinu. Vegna þessara óska hafði undirritaður samband við sr. Björn Jónsson og óskaði eftir umræddum upplýsingum. Séra Björn vildi hins vegar ekki láta Bæjarblaðinu í té þessar upplýs- ingar, þar sem ritstjóri Umbrots hefði „átt hugmyndina að þess- um þætti, og hefði hann jafn- framt verið mótfallinn því að Bæjarblaðið fengi þetta efni.“ Því miður lesendur. Að fram- angreindum ástæðum getur Bæj- arblaðið ekki orðið við óskum ykkar. Ég vona hins vegar að þarna verði breyting á, þar sem þetta eru furðuleg viðbrögð op- inbers aðila, að láta eitt blað (sem jafnframt er hætt útkomu) hafa upplýsingar en annað ekki. Auk þess sem slíkar fréttir hafa birst í öðrum blöðum en Umbroti og það löngu áður en Umbrot hóf göngu sína. — H.B. i

x

Bæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.