Mosfellsblaðið - 01.03.1999, Síða 6
Tri Star þota
Atlanta á flugvelli við Iguazu fossa
í Suður Ameríku.
Ama og Linda á hinum afskekktu Páskaeyjum í Kyrrahafi.
Ama Gerður Bang, 25 ára stúlka úr
Mosfellsbæ, gæti verið spegilmynd
starfsmanns hjá Atlanta. Hún hóf
störf hjá flugfélaginu í janúar 1997 sem flug-
freyja. Hún talar 5 tungumál utan móðurmáls,
dönsku, sænsku, ítölsku, frönsku og ensku.
Atlanta leigir Caledonian flugfélaginu í Bret-
landi Tri Star þotu. Þotan fékk sérstakt verk-
efni 1998 að flytja sænska bingólottóvinnings-
hafa í heimsreisu. Ama var ein af þeim sem
valin var í verkefnið sem flugfreyja og fylgja
hér ljósmyndir úr þessari ævintýraför hennar.
Leiðin lá frá Gautaborg í Svíþjóð til Amman
í Jórdaníu, Phuket í Thailandi, Sydney í Ástr-
alíu, Thaiti í Kyrrahafi,
Páskaeyja, Santiago í Chile,
Rio De Janeiro í Brasilíu,
skipt um áhöfn á Kanaríeyj-
um og Svíar enduðu heima í
Gautaborg, reynslunni ríkari.
Ama Bang og Oddný Ambjömsdóttir, einnig blómarós úr
Mosfellsbœnum, ífullum „herskrúða" í Saudi Arabíu 1997.
Sumarstörf
Mosfellsbær auglýsir eftirtalin sumarstörf laus til umsóknar:
í Vinnuskóla Mosfellsbæjar:
Störf yfirflokksstjóra, flokksstjóra og starfsmanns í umhverfis-
fræðslu.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af stjórnun og reynslu
af almennum ræktunarstörfum. Æskilegt er að starfsmaður í um-
hverfisfræðslu hafi líffræðimenntun eða almenna kennaramennt-
un.
Nánari upplýsingar veitir Edda Davíðsdóttir í síma 566 6058.
í aarðvrkjudeild:
Störf verkstjóra með reynslu af stjórnun, ásamt góðri almennri
menntun, og störf verkamanna til almennra garðyrkjustarfa.
Nánari upplýsingar veitir garðyrkjustjóri í síma 525 6700, virka
daga milli kl. 11:00-12:00.
Umsóknareyðublöð fyrir ofangreind störf liggja frammi í af-
greiðslu bæjarskrifstofu á jarðhæð Þverholts 2.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Mosfellsbæjar og Launanefndar sveitarfélaga. Umsækjendur
skulu hafa náð 18 ára aldri eða verða 18 ára á árinu.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl nk.
Mosfellsbæ, 22. mars 1999,
Garðyrkjustjórinn í Mosfellsbæ.
I heimsókn hjá innfœddum ífjallaþorpi í Jc
innanstokksmunir hússins voru vifta og sjó,
Ama i
góðum fé-
lagsskap
kengúru í
Astralíu,
kengúran
klappar
Ömu á
hand-
legginn.
Ifílaferð í Thailandi, f.v. Linda, Sig
tryggur, Ama og Gísli.
Ama í skoðunatferð um hinar merku borgarrústir I
o Hlogfcllsblaðið