Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 19
Reykjavík – Enn rifjast hún upp fyrir mér spurningin sem einn helzti listamaður þjóðarinnar
beindi til mín við kvöldverðarborð
í heimahúsi: Datt ykkur ekki í hug
að bjóða þeim að halda þýfinu í
skiptum fyrir nýju stjórnarskrána?
Ekki mitt að bjóða, svaraði ég.
Spurningin er áleitin enda þykist
ég sjá í hendi mér að áhugi almenn-
ings á af hjúpun hrunþýfisins o.f l.
muni fara stigvaxandi eftir því sem
Alþingi heldur nýju stjórnarskránni
lengur í gíslingu enda er henni
öðrum þræði ætlað að draga úr
líkum þess að sagan endurtaki sig.
Tíu þúsund fjölskyldur
Einkavæðing bankanna 1998-2003
var í reyndinni lítt dulbúið banka-
rán eins og margar heimildir vitna
um. Alþingi samþykkti 2012 að
verða við kröfum um rannsókn
málsins en þingið hefur þó ekki
enn hirt um að standa við eigin
samþykkt. Gamalgróin spilling
réði för. Upphaflegur ásetningur
um dreift eignarhald á bönkunum
var að engu hafður. Ríkisendur-
skoðun taldi söluverðið of lágt eins
og yfirskrift einnar greinarinnar
í löngum greinaflokki Sigríðar
Daggar Auðunsdóttur blaðamanns
um málið hér í blaðinu 2005 vitnar
um: „Gleymdist að ræða verðið“.
Búnaðarbankinn var seldur hópi
manna í tengslum við Framsóknar-
flokkinn. Brýnt var talið að „Lands-
bankinn kæmist í hendur manna
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði
a.m.k. talsamband við“ svo vitnað
sé í þeirra eigin orð.
Í öllum bönkum voru helztu
eigendur bankans meðal stærstu
lántakenda hans. Gjaldþrot
þriggja stærstu bankanna 2008 eru
samanlagt þriðja stærsta gjaldþrot
heimsins frá öndverðu skv. upp-
lýsingum Fjármálaeftirlitsins. Tíu
þúsund fjölskyldur misstu heimili
sín, ein fjölskylda af hverjum tólf
um landið. Kaupendur Lands-
bankans og Búnaðarbankans veittu
hverjir öðrum lán til að fjármagna
kaupin að hluta. Allur ferillinn
var stráður lögleysum eins og m.a.
Sverrir Hermannsson fv. banka-
stjóri Landsbankans lýsti úr návígi
í mörgum beittum blaðagreinum.
Samsekt yfirvalda lýsti sér m.a. í því
að Sverrir var aldrei kvaddur til að
bera vitni.
Sagan af einkavæðingunni varð
æ skrautlegri eftir því sem á leið. Í
ljós kom að þýzki bankinn Hauck
& Aufhäuser var aldrei í reynd
fjárfestir í Búnaðarbankanum ólíkt
því sem haldið var fram. Í bók sinni
Kaupthinking (2018) lýsir Þórður
Snær Júlíusson blaðamaður marg-
háttuðum lögbrotum Kaupþings-
manna. Skýrsla Rannsóknarnefnd-
ar Alþingis frá 2010 hafði áður lýst
föllnu bönkunum svo að þeir hafi
allir verið eins í grófum dráttum.
Bankarnir keyptu sér frið
Eigendur og stjórnendur bankanna
vissu hvað þurfti til að þeir fengju
frið til að fara sínu fram. Þeir veittu
samtals 147 mkr. 2004-2008 til
stjórnmálasamtaka (91 mkr.) og
til einstakra stjórnmálamanna
(56 mkr.) svo sem fram kemur í
skýrslu RNA (8. bindi, bls. 164-9).
Þessar tölur eru samt of lágar því
gögn fundust ekki um greiðslur
Glitnis til stjórnmálamanna né
heldur fundust tæmandi gögn um
fyrirgreiðslu bankanna við stjórn-
málamenn og samtök þeirra í fríðu
(boðsferðir, risna o.fl.). Sjálfstæðis-
Þegar hermangið fluttist búferlum
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG flokkurinn tók við 43,5 mkr. frá
bönkunum 2006, þar af 30 mkr. frá
sínum banka, Landsbankanum.
Samfylkingin tók við 26 mkr., þar af
11,5 mkr. frá Kaupþingi og 8,5 mkr.
frá Landsbankanum. Framsókn tók
við tæpum 17 mkr., þar af 11 mkr.
frá sínum banka, Kaupþingi. Þessar
fjárhæðir má tvöfalda til að snara
þeim á núvirði. Sem sagt: Þegar
Kaninn kvaddi 2006 fluttist her-
mangið yfir í bankana.
Bankarnir mokuðu einnig lánsfé í
þingmenn, fé sem ekki er vitað hvað
varð um þar eð afskriftir bankanna
eru leynilegar þótt fréttir berist
af þeim við og við. Tíu þingmenn
skulduðu bönkunum 100 mkr.
eða meira við hrun hver um sig
(RNA, 2. bindi, bls. 200). Ekki hefur
komið fram opinberlega hvernig
skuldaskilum þessara þingmanna
og annarra var háttað. Bankarnir
keyptu sér frið. Þeir þurftu ekki að
óttast afskipti Alþingis. Þeir höfðu
flokkana og ýmsa þingmenn þeirra
á fóðrum bæði fjárhagslega og
með því að raða flokksmönnum í
nefndir og ráð á sínum vegum.
Ríki í ríkinu
Ef allt væri eins og það á að vera
myndu lögregla og saksókn-
arar hafa látið á það reyna fyrir
dómstólum hvort fyrirgreiðsla
bankanna við þingmenn jafngilti
mútum í skilningi hegningarlaga.
Þetta skiptir máli þar eð ríkis-
stjórn gömlu einkavæðingarflokk-
anna og eins flokks enn er byrjuð
að einkavæða banka á nýjan
leik án þess að hafa gert upp við
fortíðina til fulls. Fleira hangir á
spýtunni. Ef Alþingi væri eins og
það ætti að vera kæmi fram krafa
þar um rannsókn á fjárhagstengsl-
um þingmanna, stjórnmálaflokka
og útvegsfyrirtækja sem hafa þegið
gríðarleg verðmæti af þinginu í
gegnum kvótakerfið og hegða sér
enn eins og bankarnir fram að
hruni: eins og ríki í ríkinu.
Hún er fyrir
löngu búin að
sanna sig
Vél þessi er búin öllum þeim þvottakostum og eiginleikum sem
menn þurfa á að halda í dagsins önn. Hún tekur mest 9 kg og er með
íslensku stjórnborði. 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Tromlan
fer einstaklega vel með þvottinn. 15 mínútna hraðþvottakerfi.
Skyrtukerfi. Tromluhreinsun. Mjög stöðug og hljóðlát.
Við leggjum áherslu á hágæða vörur og fyrsta flokks þjónustu á
góðu verði.
Fimm ára ábyrgð fylgir stórum heimilistækjum frá Siemens, Bosch og
Gaggenau hjá Smith & Norland, að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála.
Þá er að finna á www.sminor.is/is/abyrgdarskilmalar.
Við bjóðum nú hina eftirsóttu Bosch-þvottavél,
WAT 2849BSN, á stórkostlegu tilboðsverði.
Gildir til og með 31. júlí eða á meðan birgðir endast.
Tilboðsverð:
89.900 kr.
Fullt verð: 144.900 kr.
Þvottavél, WAT 2849BSN
A
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 4 . J Ú L Í 2 0 1 9