Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 16
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Syðra-Fjallabak er sérlega áhugavert svæði, ekki síst fyrir þá staðreynd að þangað koma langtum færri ferðamenn en á Nyrðra-Fjalla-bak sem liggur um hinar vinsælu Land-mannalaugar. Á Syðra-Fjallabaki er þó eng-inn skortur á náttúruperlum, frekar en á því nyrðra, en stórar ár eins og Syðri-Ófæra og Hólmsá sjá til þess að þær eru ekki eins aðgengilegar ferða- fólki. Á Syðra-Fjallabaki er svæði sem vert er að skoða og kallast Álftavatnskrókar; krókar sem eru sann- kallað augnakonfekt sem hægt er að mæla með. Þeir liggja í dalverpi milli Svarthnjúksfjalla og Bláfjalls, ekki langt frá Eldgjá og Hólaskjóli. Ef ekið er að þeim þaðan verður fyrst að fara yfir Syðri-Ófæru en það er einungis hægt á vel búnum jeppa eða rútu því vaðið er bæði stórgrýtt og straumhart. Náttúran í Álfta- vatnskrókum er engu lík, ekki síst fyrir allan gróður- inn og fuglalífið, en þarna eru vötn með iðgrænum bökkum og smálækjum sem státa af skemmtilegum og öðruvísi fossum. Gaman er að ganga upp á nálægar hæðir eða hraun og fá þannig yfirsýn yfir landslagið sem minnir á abstrakt listaverk. Þarna rekur Útivist skemmtilegan skála en einnig er boðið upp á ágætt tjaldstæði. Flestir ferðast í Álftavatnskróka akandi en margir koma þangað ríðandi eða á tveimur jafn- fljótum frá Hólaskjóli. Álftavatnskrókar eru þá fyrsti náttstaðurinn á frábærri gönguleið, Strútsstíg, sem liggur frá Hólaskjóli og vestur í Hvanngil, rétt austan við Álftavatn. Úr Hvanngili má síðan halda áfram syðri hluta Laugavegarins í Þórsmörk og jafnvel alla leið yfir Fimmvörðuháls að Skógum. Þeir hörðustu byrja gönguna við Sveinstind hjá Langasjó, halda síðan suður í Skælinga, þaðan í Hólaskjól og áfram í Álftavatnskróka, eftir Strútsstíg og inn á Lauga- veginn. Þegar ekið er í vestur frá Álftavatnskrókum í áttina að Reykjavík er tilvalið að staldra við á leiðinni og skoða Rauðubotna og Hólmsár- vöð. Einnig er ógleymanlegt að ganga á Mælifell á Mælifellssandi en eftir gönguna má skella sér í notalega heita Strútslaug. Enginn verður svikinn af Syðra-Fjallabaki sem sífellt býður til veislu þar sem ekki er of mörgum boðið. Álftavatnskrókar – náttúruperla sem bragð er að Úr lofti líkist svæðið helst abstrakt málverki. MYND/ÓMB Álftavatnskrókar eru algjört konfekt fyrir augað. MYND/ÓMB Í Álftavatnskrókum er auðvelt að finna hugarró í kyrrlátri náttúru. MYND/TG TILVERAN 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.