Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 3

Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 3 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 Hvernig skal viðhalda hreysti hugans? Með hækkun lífaldurs fjölgar þeim sem greinast með heilabilun. Sjúkdóminn sem enn er ráðgáta og herjar á stóran hluta heimsins. Hvað getum við gert til þess að forðast heilabilun og viðhalda heilahreysti? ➛12 Allt sem stuðlar að almennri hreysti og vel­ líðan er gott fyrir heilann. María Kristín Jónsdóttir tauga- sálfræðingur ENGIHJALLI • VESTURBERG • ARNARBAKKI • GLÆSIBÆR • STAÐARBERG Daim, Oreo, Toblerone ís 3pk 479 KR/PK VERÐ ÁÐUR 599 KR/PK VIÐSKIPTI Greiðslumiðlunarfyrir- tækið Valitor, dótturfélag Arion banka, hefur fallist á að greiða Data- cell og Sunshine Press Productions (SPP) samtals 1.200 milljónir króna í skaðabætur fyrir að slíta samningi um greiðslugátt fyrir söfnunarfé til WikiLeaks sumarið 2011. Gengið hefur verið frá samkomulagi þess efnis, sem er í samræmi við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í apríl, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins. Með samkomulaginu lýkur ára- löngum deilum og málaferlum félaganna fyrir dómstólum. For- saga málsins er sú að WikiLeaks tók við styrkjum í gegnum greiðslugátt sem Datacell og SPP ráku en hún var opnuð 7. júlí 2011. Degi síðar sleit Valitor samningnum fyrirvaralaust. Hæstiréttur sló því föstu með dómi vorið 2013 að riftun samningsins væri ólögmæt og frá þeim tíma hafa málaferli staðið um skaðabótakröfur vegna riftunar. Dómkvaddir mats- menn mátu tjónið á 3,2 milljarða króna. Valitor sendi frá sér tilkynningu í lok maí þar sem fram kom að félag- ið hygðist áfrýja fyrrnefndum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Nú verður hins vegar ekkert af því að málið komi til kasta Landsréttar. Arion banki hefur þegar tekið til- lit til neikvæðra áhrifa dóms héraðsdóms á afkomu bank- ans. Valitor var sett í form- legt söluferli fyrr á þessu ári og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er áætlað að áhugasamir fjárfestar skili inn óskuldbind- andi tilboðum í félagið fyrir miðjan þennan mánuð. – hae / sjá síðu 8 Valitor fellst á að greiða 1.200 milljónir í skaðabætur  3,2 milljörðum nam umfang tjónsins að mati dóm­ kvaddra matsmanna. STJÓRNSÝSLA Forsætisráðherra kynnir nú á samráðsgátt stjórn- valda áform um breytingar á upp- lýsingalögum sem koma til móts við tillögur Samtaka atvinnulífsins í þágu einkahagsmuna fyrirtækja. Tillögur SA voru kynntar fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í aðdraganda nýsam- þykktra breytinga á lögunum. Efnislega lúta áformin að því að sett verði ákvæði í upplýsingalög um skyldu stjórnvalda til að leita afstöðu þriðja aðila áður en stjórn- vald tekur afstöðu til beiðna um upplýsingar sem varða hann. Einnig er áformað í samræmi við tillögur SA að varði úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsinga- mál þriðja aðila með einhverjum hætti verði nefndinni skylt að birta honum úrskurðinn enda þótt hann eigi ekki aðild að málinu. Þá er í þriðja lagi stefnt að því að veita þriðja aðila sérstakan rétt til að krefjast þess að réttaráhrifum úrskurða úrskurðarnefndarinnar um af hendingu upplýsinga verði frestað vilji hann bera gildi hans undir dómstóla. Til að varpa ljósi á hverjir geti tal- ist til ‚þriðja aðila‘ í þessu samhengi má nefna að eggjaframleiðandinn Brúnegg ehf. hefði talist þriðji aðili í úrskurði úrskurðarnefndarinnar sem skyldaði Matvælastofnun til að veita fréttamanni aðgang að upplýs- ingum um aðbúnað og fjölda dýra í húsakynnum eggjaframleiðandans árið 2015. – aá Breyta upplýsingalögum að tillögu atvinnulífsins Sveinn Andri Sveins­ son, lögmaður Datacell og SPP.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.