Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 12
4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Jón G. Snædal yfirlæknir í öldr­ unarlækningum á Landspítal­ anum Einn þriðji er hins vegar þeir þættir sem hægt er að hafa áhrif á svo sem heilsa, mataræði, menntun og félagsleg virkni. Jón G. Snædal Talið er að um þrjú hundruð einstaklingar greinist með heilabilun hér á landi á hverju ári. Sjúkdómurinn er ógnvekjandi og hefur mikil áhrif á líf þeirra sem með hann greinast. María Kristín Jónsdóttir taugasálfræðingur segir mikilvægt að efla hreysti hugans til þess að minnka líkurnar á því að fá heilabilun. Með aukinni heilahreysti sé hægt að draga úr líkum á heila- bilun. „Við erum að þjálfa heilann alla ævi, því alla ævi lærum við eitthvað nýtt. Við getum breytt heilanum og myndað nýjar taugafrumur á full- orðinsaldri en lengi vel héldu menn að það væri alls ekki hægt, heilinn væri fullmyndaður á einhverjum tilteknum aldri og svo sætum við uppi með hann. Það er líklegt að þetta hafi svo mótað dálítið afstöðu manna til þess hvernig þeir mættu ellinni, minnistapi og sjúkdómum á borð við heilabilun,“ segir María. „Það er vel þekkt að oft finnast Alzheimer-breytingar í heila fólks eftir andlátið án þess að það hafi greinst með sjúkdóminn í lifanda lífi eða haft einkenni um hann. Þannig virðist viðnám fólks gegn þessum breytingum í heila mismikið. Sumir hafa mikið viðnám, aðrir lítið eða minna,“ bætir hún við. Engar skyndilausnir eru til sem fyrirbyggja það að fólk fái heilabilun og mælir María gegn því að fólk falli fyrir slíkum lausnum til dæmis í formi bætiefna. Hún segir fólk geta unnið sér í haginn í gegnum lífið með heilbrigðum lífsstíl og mennt- un svo dæmi séu tekin. „Með þessu aukum við líkurnar á því að þegar sjúkdómurinn byrjar þá stöndumst við áhlaup hans betur og einkennum seinkar en ef við hefðum öðruvísi heila og værum við slæma almenna heilsu.“ Þegar María er spurð að því hvern- ig þjálfa megi heilann segir hún margt koma til greina. „Mikilvægt er að huga vel að almennri hreysti og hreyfingu, til dæmis að passa blóðþrýsting og annað slíkt, og samskiptum við annað fólk, góðum svefni og næringu og að koma í veg fyrir of mikla streitu og andlega van- líðan. Allt sem stuðlar að almennri hreysti og vellíðan er gott fyrir heilann. En auðvitað er mikilvægt að örva hugann og það er hægt að gera á svo margan hátt. Með sam- skiptum við aðra, lestri, læra eitt- hvað nýtt, handavinnu, smíðum, spilamennsku, og svo framvegis.“ María segir einnig að mikilvægt sé að hafa fjölbreytni í því sem fólk tekur sér fyrir hendur eigi það að minnka líkurnar á heilabilun. „Það er varasamt að hugsa bara um að þjálfa heilann til að seinka þróun heilabilunar eða líta á heilann sem eitthvert einangrað fyrirbæri. Heil- brigður heili fæst meðal annars með heilbrigðu líferni, almennri hreysti, góðri menntun, fjölbreyttri örvun í daglegu lífi og félagsskap við annað fólk. Og þarna erum við að horfa á allt æviskeiðið. Lausnin er sem sagt ekki að sitja í sama horninu heima við og leysa sams konar sudoku- þrautir dag eftir dag.“ Mikilvægt að huga að hreysti hugans til að sporna við heilabilun Að greinast með heilabilun getur verið mikið áfall. Erfitt getur verið að horfast í augu við sjúkdóminn og þær breytingar sem honum fylgja. Jón G. Snædal, yfirlæknir í öldrunarlækningum á Landspítalanum, segir hægt að til- einka sér ákveðna þætti til þess að hægja á sjúkdómseinkennum. „Það skiptir töluvert miklu máli að viðhafa virkni. Virknin þarf að vera bæði andleg og líkamleg og sú andlega þarf að vera fjölbreytt. Hún þarf að fela í sér samskipti við annað fólk og fjölbreytt verkefni. ekki vera einhæf heldur vinna gegn vanvirkni. Vanvirkni heilu dagana dregur úr lífsgæðum og í raun og veru getur hraðað ferlinu,“ segir Jón. Hann segir enga eina leið liggja að því að fyrirbyggja heilabilun en að ýmsar aðgerðir geti dregið úr líkunum á því að fólk fái sjúk- dóminn á efri árum. „Það er fyrst og fremst að fólk sinni heilsu sinni vel. Áhættuþættirnir eru þeir sömu og fyrir hjarta- og æðasjúkdóma sem f lestir þekkja vel, hreyfing og hollt mataræði. Það er það sem skiptir mestu máli en það sem er sérstakt þegar kemur að heilabilun er tvennt. Menntunarstig og vinna gegn félagslegri einangrun,“ segir Jón. „Góð menntun á unga aldri virð- ist draga úr líkum á heilabilun svo það að vinna gegn brottfalli úr skól- um og sjá til þess að börn fái góða menntun hefur í raun og veru for- varnaráhrif, en náttúrulega dálítið löngu síðar. Svo er hitt sem skiptir máli þegar fólk er orðið eldra, það er að vinna gegn félagslegri einangrun. Félagsleg einangrun er áhættu- þáttur fyrir sjúkdóma af þessu tagi,“ bætir hann við. Aðspurður um helstu orsakir heilabilunar segir Jón að orsakirnar séu ekki að öllu leyti þekktar og að í mörgum tilvikum komi sjúk- dómurinn öllum að óvörum líkt og skrattinn úr sauðarleggnum. „Í fyrsta lagi ber að nefna aldur og í öðru lagi erfðir. Þetta eru tveir áhættuþættir sem fólk fær auðvitað engu ráðið um og þeir eru orsökin í tveimur þriðju hluta tilfella. Einn þriðji er hins vegar þeir þættir sem hægt er að hafa áhrif á svo sem heilsa, mataræði, menntun og félagsleg virkni,“ segir Jón að lokum. Menntun á unga aldri og félagsleg virkni góð forvörn gegn heilabilun María Kristín Jónsdóttir tauga­ sálfræðingur Minnisskerðing Framtaks­ og frumkvæðisleysi Málstol Verkstol Dómgreindarskerðing og skortur á innsæi Skert ratvísi Óáttun í tíma og rúmi Erfiðleikar við skipulag Persónuleika breytingar Breyting á persónulegu hreinlæti Kvíði og depurð/þung­ lyndi Ranghugmyndir og ofskynjanir Helstu einkenni Er hægt að forðast heilabilun? Hundruð Íslendinga greinast með heilabilun á hverju ári og sjúkdómurinn veldur mikilli skerðingu á lífsgæðum fólks. Þeir sem greinast með sjúkdóminn þurfa að miklu leyti að reiða sig á aðra því honum fylgir minnistap, skert hugsun og minnkun á vitrænni getu. Flest tilfelli eru af völdum hrörnunar í heila, en hvern- ig getum við komið í veg fyrir að heili okkar hrörni og viðhaldið hreysti hans? Um þrjú hundruð einstaklingar greinast með heilabilun á hverju ári hér á landi. 70% þeirra greinast með Alzheimer-sjúkdóm. Aldur er stærsti áhættu- þáttur heilabilunar og þar á eftir koma erfðir. Þessir tveir þættir eru orsök meirihluta tilfella, eða um 67%. TILVERAN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.