Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 30
Horfðu á heildarmyndina Uppsetning á interneti innifalin. Kynntu þér málið á vodafone.is, í síma 1414, í næstu verslun eða hjá umboðsaðilum okkar um land allt. Ótakmarkað Internet Netbeinir og WiFi framlenging Ótakmarkaður heimasími Sjónvarps- þjónusta + Afþreying frá Stöð 2 Allt í einum pakka á lægra verði Á dögunum átti undirritaður fund með umsjónarmanni hreindýra, sem er starfs- maður Náttúrustofu Austurlands. Ágætismaður, sem veit meira um hreindýrin á Íslandi og málefni þeirra en f lestir aðrir. M.a. kom fram, að af þeim hreindýrum, sem felld voru í fyrra, höfðu 33 dýr gömul skotsár. Það er ekki hátt hlutfall af heildarf jölda felldra dýra í fyrra, en það sýnir samt, með skýrum hætti, að hreindýraveiðum – eins og öllum veiðum – fylgir heiftarlegt dýraníð. 33 dýr höfðu lifað fyrri skotárásir veiðimanna af. Kannske bækluð og limlest, þó þau hafi tórað, til þess eins, að vera skotin aftur og þá drepin. En, hvað með öll þau dýr, sem voru skotin, án þess að lifa af; kom- ust undan veiðimanni til þess eins að deyja drottni sínum í sárum og kvölum. Blýkúlur valda oft ígerð í sárum og svo drepi og blóðeitrun; langvinnum og heiftarlegum dauð- daga. Kannske ráfa særð dýr, með brotinn fót eða mjöðm eða sundur- skotið trýni eða haus – ófær um að ná sér í næringu – um dögum eða vikum saman. Þar til dauðinn loks líknar. Yfirkeyrð lýsing? Nei, þetta er raunveruleikinn; skuggahlið hreindýraveiða. Úr því að 33 dýr, sem höðu verið skotin áður, en lifðu af, voru drepin í fyrra, þá er ljóst, að heildarfjöldi þeirra hreindýra, sem hefur verið skotinn og lifað af, eða særst, og komist undan, til þess eins, að kveljast til dauða f jarri veiði- manni, skiptir mörgum hundr- uðum. Hræðileg meðferð á sak- lausum og varnarlausum dýrum, sem ekkert hafa sér til sakar unnið. Og, áhugi veiðimanna er slíkur, að aðeins helmingur þeirra, sem vilja komast í drápið, kemst að. Kostar þó 150.000 kr. að fá að drepa tarf og 86.000 kr. að fá að drepa kú. Veiðimenn virðast hafa af þessu mikla gleði og unun, og verða þá þessir fjármunir, sem sumum finnst verulegir, óverulegir og smáir, alla vega miðað við þá drápsgleði og fróun, sem drápið virðist veita. Hvers konar menn eru þetta? Alls konar menn, líka f lottir og fínir, en það hlýtur að vera blindur blettur í þeim; einhvers staðar í sálinni. Sumir veiðimenn, líka konur, tala um „kikkið“, sem það veitir, að sjá fallegt og tignarlegt – en saklaust og varnarlaust – dýrið falla í valinn, ef drápstilraunin tekst þá, og skiptir þá litlu máli, þó að eftir standi 8-10 vikna móðurlaus og hjálparvana kálfur. Skítt með einn kálf. Lengi vel var skylda við dráp á heindýrakúm, að drepa kálf með, því vitað var, að hann myndi eiga erfitt uppdráttar – ósjálf bjarga ungviðið, enn á spena og það til margra mánaða, ef móður ætti. Þá kom í ljós, að í stað þess að skjóta kálf felldrar kýr, þá skutu veiði- menn bara stærsta kálfinn í hjörð- inni – meira kjöt – og sköpuðu þar með enn meiri angist, vansæld, hörmungar og ringulreið í hjörð- inni. Einhverjum ráðherra fannst þetta ekki gott, og var þá ákveðið, að skjóta bara kýr. Skyldu kálfar lifa áfram – þó sumir væru rétt 8 vikna, þegar kúadráp hefst – í þeirri von, að einhverjar eftirlifandi kýr myndu taka þá að sér – þótt ónátt- úrulegt væri –, vetur yrði mildur eða kraftaverk Móður Náttúru myndu gerast og kálfar myndu tóra veturinn af; kannske þyrstir, svang- ir, magrir og heiftarlega hrjáðir, en hvað með það. Skítt með einn kálf. Í ár ákvað umhverfisráðherra, Guðmundur Ingi, að drepa mætti 1.451 hreindýr, þar af 1.043 kýr. Dráp tarfa, 408 dýra, má hefjast 15. júlí. Venjulega hefur svo mátt byrja að drepa kýr 1. ágúst, en þar sem kálfar fæðast mest um mánaðamót- in maí/júní, eru þeir þá rétt 8 vikna. Með tilliti til þess, að kálfar eru á spena minnst í 5 til 6 mánuði, ef móðir lifir, er auðvitað óheyrilegt, að drepa mæður frá þeim 8 vikna gömlum. Er þá önnur umönnun, vernd og hjálp móður, m.a. við gerð krafshola á vetrum, ótalin. Við í Jarðarvinum höfum síðustu mánuði og misseri lagt að stjórn- völdum, þó einkum umhverfis- ráðherra, sem síðasta orðið hefur, að griðatími hreindýrakálfa verði lengdur, með afgerandi hætti, til að auka velferð þeirra, líka til að byrj- að væri að fylgja lögum nr. 55/2013 um dýravelferð – sem eru góð, en ekki hefur verið fylgt, sem skyldi – og er málið nú í höndum ráðherra. Það eru í raun bara tvær villtar hreindýrahjarðir eftir í Vestur- Evrópu; í Noregi og hér. Í Noregi gildir griðatími hreindýrakálfa til 20. ágúst. Þá fyrst má byrja að drepa kýr. Undirritaður vill með þessum pistli endurtaka áskorun sína á Guðmund Inga, sem gert hefur ýmsa góða hluti í öðru, um það, að hann taki nú fyrsta skrefið í átt að aukinni velferð hreindýra, með því, að færa byrjunartíma kúaveiða á 20. ágúst til samræmis við það, sem gildir í Noregi. Þetta væri spor í rétta átt, en samt ekki meira. Skítt með einn kálf Ole Anton Bieltvedt stofnandi og formaður Jarðarvina Kannske ráfa særð dýr, með brotinn fót eða mjöðm eða sundurskotið trýni eða haus – ófær um að ná sér í nær- ingu – um dögum eða vikum saman. Þar til dauðinn loks líknar. 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.