Fréttablaðið - 28.06.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 28.06.2019, Síða 4
Það er líka verið að hvetja nemendurna til að vera virkir, fræða þau um ýmis samfélagsmál. Magnús Arnar Svein- björnsson, skóla- stjóri Vinnuskóla Reykjavíkur Veður Sunnan og suðvestan 5-13 m/s. Skýjað en úrkomulítið, en skýjað með köflum fyrir austan. Fer að rigna SV-lands undir kvöld. Hægari í kvöld og nótt og rigning eða súld í flestum landshlutum. SJÁ SÍÐU 18 NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOL TA Hefur þú prófað Holta drumsticks? Sjóræningjar léku lausum hala Það var skrautlegur útgangurinn á börnunum í leikskólanum Hlíð við Engihlíð í Reykjavík í gær þegar haldinn var sjóræningjadagur. Nemendur, kennarar og starfsfólk klæddu sig upp eins og ræningjar og ruplarar úthafanna. Engu var þó stolið enda allir góðir í Hlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI SAMGÖNGUMÁL Flugmálastofnun Bandaríkjanna gaf í gær út að nýr „mögulegur galli“ í Boeing 737 MAX-vélunum hafi uppgötvast við prófanir í f lughermum. Stofn- unin hefur þó enn ekki skýrt nánar í hverju gallinn felst en líklegt þykir að þetta muni lengja þann tíma sem vélarnar verða kyrrsettar. BBC greinir frá.  Boeing vinnur nú að því að upp- færa flugstýrikerfi vélanna en það er talið hafa valdið f lugslysunum tveimur sem leiddu til þess að allar 737 MAX-vélar heims voru kyrr- settar. Í síðasta mánuði gaf stofnunin til kynna að leyfi fyrir breytingum sem Boeing vildi gera á vélunum kæmi líklega seint í júní. Það hefði gert það að verkum að fyrirtækið gæti hafið reynsluf lug snemma í júlí en ljóst er að svo verður ekki. – ókp Annar galli í Boeing 737  REYKJAVÍK „Við erum alls ekki að hvetja alla til að taka þátt í þessu. Það eru rúmlega 40 til 50 krakkar sem hafa áhuga á að taka þátt í skólaverkfallinu á morgun. Það eru alls ekki allir að fara,“ segir Magnús Arnar Sveinbjörnsson, skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur. N e m e n d u m V i n n u s k ó l a Reykjavíkur  býðst að taka þátt í umhverfis ráði í Borgartúni á morgun. Þar munu þau læra um getu til aðgerða, fara í leiki tengda umhverfismálum og lýðræði og búa til mótmælaskilti. Í hádeginu munu nemendurnir fara ásamt grænum fræðsluleiðbeinendum úr Borgar- túninu að Hallgrímskirkju og taka þátt í verkfalli ungmenna gegn aðgerðarleysi í loftslagsmálum.  Þeir sem taka þátt fá greitt sam- kvæmt taxta skólans, þeir sem taka ekki þátt halda áfram í hefðbundn- um störfum. Allir nemendur vinnuskólans fá umhverfisfræðslu hjá svokölluðum grænum fræðsluleiðbeinendum. Er það hluti af verkefninu Skólar á grænni grein, en Vinnuskóli Reykja- víkur hlaut fyrst grænfánann fyrir áratug. Grænir fræðsluleiðbeinend- ur eru fjögurra manna teymi sem fer á milli vinnuskólanna í sumar. „Þau fara á milli hópanna og fræða nemendur um umhverfismál í víðum skilningi,“ segir Magnús. „Það er líka verið að hvetja nem- endurna til að vera virkir, fræða þau um ýmis samfélagsmál, mann- réttindi, lýðræði og fleira slíkt. Við leggjum áherslu núna á getu til aðgerða í ljósi þessara skólaverk- falla sem hafa verið í gangi.“ Nem- endur í Vinnuskólanum fá einnig fræðslu frá jafningjafræðslu Hins hússins ásamt fræðslu gegn ofbeldi. Margrét Helga Theodórsdóttir, móðir nemanda í vinnuskólanum, segir það hafa komið sér á óvart þegar hún frétti að sonur sinn hafi verið á leiðinni á mótmæli. „Ég hefði viljað betra upplýsingaflæði þegar verið er að gera eitthvað svona út fyrir þetta hefðbundna starf,“ segir Margrét. „Ég hélt að hann ætti að reyta arfa, en líka að fá fræðslu. Þegar þetta er komið út í að búa til kröfuspjöld og fara í mótmæli þá hefði ég helst viljað fá póst.“ Starfsmaður skrifstofu Vinnu- skóla Reykjavíkur  segir að í gær hafi ekki verið búið að senda dag- skrána út til foreldra. Magnús segir að það eigi að vera búið að láta for- eldra fá dagskrána. „Það á að vera þannig náttúrulega að foreldrar fái upplýsingar þegar krakkarnir taka þátt í einhverju svona.“ Nemendum í vinnuskólanum fjölgaði um 15 prósent milli ára og eru nú 2.250 nemendur í 8. til 10. bekk skráðir. Starfa þau í þrjár vikur á þremur tímabilum frá júní fram í ágúst. arib@frettabladid.is Vinnuskólakrakkar mótmæla í hádeginu Hópur nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur tekur frí frá hefðbundnum störf- um á morgun til að taka þátt í mótmælum. Móðir segir koma á óvart að hafa ekki verið látin vita. Skólastjóri segir að enginn sé hvattur til að taka þátt. Meira en helmingur nemenda í 8. til 10. bekk í Reykjavík starfar í Vinnu- skólanum í sumar. Hópur þeirra hyggst taka frí á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VIÐSKIPTI Á aðalfundi Bláa lónsins, sem haldinn var í gær, samþykkti félagið að greiða út í kring um 30 milljónir evra, eða tæplega 4,3 millj- arða króna í arð í ljósi frammistöðu fyrirtækisins á síðasta ári. Greiddar voru um 16 milljón evrur, eða tæp- lega 2,3 milljarðar króna, á núvirði í arð á síðasta ári. Hvatning slhf., sem á 39,1 prósent í félaginu og er í eigu Kólfs ehf. er að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmund- sen, forstjóra Bláa lónsins, og Eð- vards Júlíussonar. Í fyrra keypti Kólfur rétt undir helming í Hvatn- ingu af Horni II, en samkvæmt því mun Hvatning fá tæplega 1,7 millj- arða króna í arðgreiðslu. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, segir í fréttatilkynn- ingu að allar fjárfestingar félagsins í gegnum árin hafi miðað að því að byggja upp starfsemi í kringum upplifun gestanna. „Á árinu var nýtt hótel og upplif- unarsvæði undir merkjum The Re- treat opnuð ásamt tveimur nýjum veitingastöðum. Með þessari upp- byggingu tók Bláa Lónið mikilvæg skref til að þjónusta nýjan mark- hóp, ferðamenn sem leita eftir afar miklum gæðum, svokallaða fágætisferðamenn.“ „Skattspor Bláa Lónsins nam um 5 milljörðum króna árið 2018 og stækkaði um 56% frá árinu 2017 en þá var það í hópi þeirra tíu fyrir- tækja sem borguðu mesta skatta og opinber gjöld á Íslandi.“ – pk Eigendur fá milljarða í arð Með þessari upp- byggingu tók Bláa Lónið mikilvæg skref til að þjónusta nýjan markhóp, ferðamenn sem leita eftir afar miklum gæðum. 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 2 -9 A 2 4 2 3 5 2 -9 8 E 8 2 3 5 2 -9 7 A C 2 3 5 2 -9 6 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.