Fréttablaðið - 28.06.2019, Side 10
Af stað
Nú þegar 494 dagar eru þangað til Bandaríkjamenn kjósa sér forseta á ný eru forkosningar Demókrata hafnar fyrir alvöru. Fyrri hluti fyrstu kapp-
ræðna fór fram í fyrrinótt og sá seinni í nótt, eftir að Fréttablaðið fór í prentun. Elizabeth Warren, á miðri mynd, þótti standa sig einna best í fyrri
hlutanum og mælist með þriðja mest fylgi. Stjórnmálaskýrendur voru þó margir á því að kappræðurnar hefðu verið dauf legar.NORDICPHOTOS/AFP
ÍRAN Ef fram heldur sem horfir mun
Íran gerast brotlegt við ákvæði
JCPOA-k jar nork usamningsins
innan fáeinna daga og eiga meira
auðgað úran en samningurinn
heimilar. Þetta hafði Reuters eftir
erindrekum sem vitnuðu til gagna
rannsakenda á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
„Þau eru ekki enn komin upp
fyrir takmarkið. En það gerist lík-
lega um helgina, ef það gerist,“ hafði
Reuters eftir ónefndum heimildar-
manni innan höfuðstöðva Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar í
Vín.
Kína, Frakkland, Þýskaland, ESB,
Íran, Rússland, Bretland og Banda-
ríkin gerðu samninginn árið 2015
en hann gekk í meginatriðum út
á að af létta viðskiptaþvingunum
gegn Íran og að á móti myndi
ríkið frysta kjarnorkuáætlun sína.
Bandaríkin drógu sig út úr samn-
ingnum í maí á síðasta ári og ári
síðar sagðist Íransstjórn ætla að
hætta að framfylgja plagginu nema
hin ríkin vernduðu íranskt hagkerfi
gegn nýjum bandarískum þving-
unum.
Bandaríkin og Íran eiga nú í
erfiðum deilum og er ekkert útlit
fyrir að Bandaríkjamenn taki
aftur upp samninginn. Emmanuel
Macron, forseti Frakklands, sagðist
í gær vilja sannfæra Donald Trump
Bandaríkjaforseta um að það væri
fyrir bestu að hefja viðræðuferlið á
ný, aflétta ákveðnum þvingunum
og þannig gefa viðræðum séns.
Forsetarnir munu funda saman á
G20-fundinum sem hefst í Japan í
dag. – þea
Útlit fyrir að
Íran brjóti gegn
samningnum
EVRÓPA Hitabylgja hélt áfram að
hrella fólk víða um Evrópu í gær
og fór hiti vel yfir fjörutíu stig í til
að mynda Frakklandi, á Spáni og í
Sviss. Degi fyrr höfðu hitamet fallið
í Þýskalandi, Póllandi og Tékklandi
en búist er við því að enn hitni um
helgina.
Þeir veðurfræðingar sem breska
ríkisútvarpið vitnaði til í gær sögðu
ofsahitann kominn til vegna vinda
frá norðanverðri Afríku. Timothy
Hewson, sem stýrir veðurspáteymi
evrópsku veðurstofunnar ECMWF,
sagði það einnig spila stóra rullu að
það hefur verið heiðskírt víða. Þurri
jörð sé einnig um að kenna vegna
þess að það ástand þýðir minni upp-
gufun.
Íbúar hafa verið varaðir sérstak-
lega við hitabylgjunni, en hiti sem
þessi getur verið lífshættulegur.
Þess er skemmst að minnast að um
15.000 dóu í Frakklandi eftir álíka
hitabylgju í ágúst 2003, að því er
fram kom í frétt France 24.
Þótt hitabylgjur séu ekki nýjar af
nálinni hafa loftslagsvísindamenn
bent á að loftslagsbreytingar af
mannavöldum geri ástandið mun
verra. Veröldin sé nú um einni gráðu
hlýrri en fyrir iðnbyltingu og því séu
veðuröfgar orðnar algengari. „Nú
þegar við fáum hitabylgjur verða
þær líklega að minnsta kosti gráðu
Hættuleg hitabylgja hrellir
Evrópubúa og er ekki á förum
Þessir Parísarbúar stungu sér á bólakaf til þess að flýja hitann. NORDICPHOTOS/AFP
Hiti fór víða yfir fjöru-
tíu stig í álfunni í gær.
Hitamet fallið og enn
gæti hitnað yfir helgina.
Ástandið rakið til vinda
frá Norður-Afríku og
þurrar jarðar. Loftslags-
breytingar sagðar gera
ástandið enn verra.
Skógareldar á Spáni.
MAROKKÓ Nærri helmingur Mar-
okkómanna, eða 44 prósent, vill
f lytja úr landi. Þetta sýna niður-
stöður skoðanakönnunar sem Arab
Barometer gerði fyrir BBC News
Arabic. Hlutfallið hefur hækkað
töluvert frá því árið 2016. Þá mæld-
ist það 27 prósent. Það er þó ekki
jafnhátt og árið 2006 þar sem talan
stóð í 52 prósentum.
Breska ríkisútvarpið f jallaði
ítarlega um könnunina í gær og
setti í það samhengi að ef til vill
myndu Marokkómenn fylgja í fót-
spor grannríkja og rísa upp gegn
yfirvöldum. Nýlega hafa lands-
menn í bæði Súdan og Alsír steypt
forsetum sínum af stóli. Hundruð
hafa fallið og á annað þúsund særst
í átökum við her og lögreglu. Segja
má að þetta sé eins konar önnur
alda arabíska vorsins, en árin 2011
og 2012 var forsetum Túnis, Egypta-
lands, Líbýu og Jemen steypt af stóli
sömuleiðis.
Sama könnun sýndi að 49 pró-
sent Marokkóa vildu sjá breytingar
í stjórnmálunum eins fljótt og auðið
er. Það er meira en í Jemen, 41 pró-
sent, Egyptalandi, 39 prósent, Líb-
anon, 28 prósent og Írak, 27 prósent.
– þea
Helmingur íbúa
vill úr landi
Viðgerðir í Fez. NORDICPHOTOS/AFP
Hassan Rouhani,
forseti Írans.
Katalónía brennur
Miklir skógareldar hafa kviknað
vegna hitabylgjunnar í Tarragona
í suðurhluta spænska héraðsins
Katalóníu. Búist er við því að
eldarnir verði einir þeir verstu í
tuttugu ár og voru í það minnsta
5.500 hektarar alelda í gær, að því
er kom fram í frétt katalónska
miðilsins ACN.
Rúmlega 500 slökkviliðsmenn
og hermenn börðust við eldana í
gær. 53 íbúum hefur verið gert að
flýja heimili sín en talið er að um
20.000 gætu lent í hættu vegna
hamfaranna. Þá hefur fimm
stofnbrautum verið lokað og
fólki er ráðlagt að halda sig fjarri
svæðinu.
„Við höfum ekki þurft að tak-
ast á við viðlíka elda í tuttugu ár.
Þeir gætu brennt 20.000 hektara
svæði. Við þurfum að passa
okkur því hvers konar kæruleysi
gæti orsakað hörmulega ógæfu,“
tísti Miquel Buch, innanríkisráð-
herra héraðsins, í gær.
David Borrell, slökkviliðsstjóri
svæðisins, sagði við Catalunya
Radio að það væri erfitt að vera
bjartsýnn á að slökkvistarf gangi
vel. „Landslagið er afar erfitt og
veldur miklum vandamálum.
Veðrið er einnig til vandræða.
Það þreytir okkur og þýðir að við
þurfum að leggja enn harðar að
okkur.“
hlýrri. Við erum enn að sjá öfga-
full veðrabrigði en þau eru að verða
algengari,“ sagði Grahame Madge
hjá bresku veðurstofunni við BBC.
Loftslagsmálanefnd breska þings-
ins varaði við því síðasta sumar að
hitabylgjur sem þessar gætu orðið
árlegur viðburður vegna loftslags-
breytinga. Nefndin komst að því
að um 7.000 Bretar gætu dáið á ári
vegna hitabylgna ef ekki er gripið
inn í sem fyrst.
„Þessi aukning í veðuröfgum
er nákvæmlega sú sem loftslags-
vísindin hafa spáð og eru afleiðing
hamfarahlýnunar. Hún er svo
afleiðing aukins útblásturs gróður-
húsalofttegunda,“ hafði AP eftir
Stefan Rahmstorf, loftslagsvísinda-
manni hjá loftslagsrannsóknastofn-
uninni PIK í Þýskalandi.
thorgnyr@frettabladid.is
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
2
-B
C
B
4
2
3
5
2
-B
B
7
8
2
3
5
2
-B
A
3
C
2
3
5
2
-B
9
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K