Fréttablaðið - 28.06.2019, Page 18
Útlendingar eru mjög duglegir
að mæta, enda er víða á netinu
og í auglýsingabæklingum mælt
með því að ferðamenn komi og
sjái það sem hér er verið að gera.
Kári Viðarsson leikari, leikhússtjóri, stofnandi og eigandi Frystiklefans í Rifi á Snæfellsnesi situr ekki auðum höndum í sumar enda segir hann
að einna mest sé að gera á sumrin. „Í júlí
og ágúst er dagskrá í Frystiklefanum á
hverjum degi. Í júlí verða sýningar á
leikriti sem frumsýnt var fyrir stuttu
og heitir Ókunnugur. Við Gréta Ómars-
dóttir, sem leikstýrir, sömdum verkið
í samstarfi við Kvennaathvarfið og að
þeirra frumkvæði. Verkið fjallar um
of beldi í nánum samböndum út frá
mörgum mismunandi vinklum.“
Verkið er einleikur og Kári fer þar með
hlutverk nokkurra persóna. „Í verkinu
er verið að vinna með táknmyndir
frekar en þrívíða karaktera og spurt er
margra spurninga án þess að vera endi-
lega í leit að svörum. Okkur langaði að
gera verk sem myndi stuðla að samtali
við almenning um þessi mál á mann-
eskjulegan hátt, án þess að fara út í for-
dæmingu og skrímslavæðingu.“
Þetta virkar
Margs konar önnur verkefni eru í hús-
inu. „Þarna eru tónleikar, bæði með
íslenskum og erlendum tónlistar-
mönnum. Einnig verða sýndar myndir
sem hafa verið sýndar á Northern Wave
Film Festival, kvikmyndahátíð sem við
höldum einu sinni á ári og verður næst
haldin í október. Í júlí og ágúst tökum
við svo á móti alls konar listamönnum,
dönsurum og sirkuslistamönnum.“
Dagskrá Frystiklefans má finna á frysti-
klefinn.is.
Kári segir aðsóknina að viðburðum
í Frystiklefanum vera afar góða. „Fólk
kemur í leikhúsið alls staðar að, bæði
úr plássum hér á Vesturlandi og annars
staðar að af landinu. Útlendingar eru
mjög duglegir að mæta, enda er víða á
netinu og í auglýsingabæklingum mælt
með því að ferðamenn komi og sjái það
sem hér er verið að gera. Það er ótrúlegt
en satt, en þetta virkar.“
Segulstál fyrir ferðamenn
Kári hefur rekið Frystiklefann í tæp tíu
ár. „Allt byrjaði þetta með einni leiksýn-
ingu sem hét Hetja og var byggð á Bárðar
sögu Snæfellsáss. Hún gekk ótrúlega vel
og ég náði að leika hana fyrir vestan í
hundrað skipti. Þá áttaði ég mig á því að
það væri ekkert vitlaust að vera hérna og
vinna að minni list á heimavelli. Svo fór
ég út í annars konar listræn verkefni og
samfélagsverkefni innan Snæfellsbæjar.
Ég er að vinna með eldri borgurum og
við sem vinnum í Frystiklefanum förum
einu sinni í viku á dvalarheimilið og
erum með dagskrá þar. Við bjóðum
líka upp á ókeypis dansnámskeið fyrir
krakkana í bænum. Götulistahátíð er
haldin með tveggja ára millibili og það
ár sem hún er ekki er haldin tónlistar-
hátíð.
Blaðamaður hitti Kára á Hellissandi
og þar blasa víðsvegar við mynd-
skreyttir veggir. „Þessir myndskreyttu
veggir eru sprottnir út frá hugmynd
sem ég fékk í fyrra og hrinti af stað.
Þáttur í því var að breyta Gamla frysti-
húsinu á Hellissandi í útilistagallerí með
þjóðlegum tilvísunum. Listamenn alls
staðar að úr heiminum mættu á svæðið
og unnu úr þessari hugmynd. Tíu lista-
menn komu hingað í fyrra og skreyttu
einnig veggi í gömlu slökkvistöðinni og
breyttu fleiri veggjum í þorpinu í lista-
verk. Það eru komin um 50 vegglistaverk
á Hellissandi. Íbúarnir eru mjög ánægðir
og finnst gaman að bærinn fái andlits-
lyftingu. Fyrir vikið er Hellissandur
orðinn að segulstáli fyrir ferðamenn.
Við sáum þetta sérstaklega eftir að við
gerðum stóra mynda af hrúti á vegg við
íþróttahúsið. Fleiri hundruð ferðamenn
keyra hérna inn á hverjum degi til að
stoppa og virða hrútinn fyrir sér.“
Kári segist ótrauður ætla að halda
áfram starfi sínu í Rifi. „Ég er í forrétt-
indastarfi og get valið mér gefandi verk-
efni. Meðan þetta gengur svona vel sé ég
ekki tilgang í að hætta.“
kolbrunb@frettabladid.is
Kári er í forréttindastarfi
Kári Viðarsson, eigandi Frystiklefans í Rifi, situr sannarlega ekki auðum höndum og
segir engan tilgang í því að hætta. Mikil dagskrá verður í Frystiklefanum í sumar.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Tryggvi Gestsson
Kringlumýri 29, Akureyri,
lést 23. júní.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 2. júlí kl. 13.30.
Þórir Ó. Tryggvason Kristín Hallgrímsdóttir
Lára H. Tryggvadóttir Ómar Ólafsson
afa- og langafabörn.
Kárið við hrútinn góða á Hellissandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Báru Jónsdóttur
frá Hafnarnesi.
Katrín Sigurðardóttir Þorgils Þorgilsson
Þóra Sigurðardóttir Einar Gunnlaugsson
Jóna Sigurðardóttir Kristján Ólafsson
Sigurður Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Í dag, 28. júní, eru 50 ár frá
svokölluðum Stonewall-mót-
mælum gegn lögregluofbeldi í
New York-borg. Þau mörkuðu
upphaf réttindabaráttu hins-
egin fólks á Vesturlöndum
eins og við þekkjum hana í
dag.
Þrátt fyrir að dagurinn
marki mikilvæg söguleg skil,
hafði verið andóf gegn lög-
reglu borgarinnar í mörg ár
áður. Fjölmörg félagasamtök
höfðu einnig verið stofnuð
af samkynhneigðu fólki í Bandaríkjunum og í Evrópu til að
stuðla að jafnrétti á grundvelli kynhneigðar.
Stonewall-mótmælin draga nafn sitt af hinsegin barnum
Stonewall Inn við Christopher-götu í New York-borg.
Afskipti lögreglunnar af barnum og áreitni hafði varað lengi
en þegar lögreglumenn réðust inn á barinn morguninn
28. júní árið 1969 þótti gestum komið nóg. Þeir risu upp og
grýttu lögregluna með flöskum og steinum. Fór svo að lög-
reglan læsti sig inni á barnum en fyrir utan stækkaði sífellt
hópur hinsegin fólks. Um kvöldið taldi hann þúsundir.
Umsátrið varði í viku.
Ári síðar var Stonewall-uppþotanna minnst þegar
þúsundir borgarbúa tóku þátt í fyrstu pride-göngunni í
New York. Gleðigangan íslenska á þar rætur.
Atburðanna minnst í Reykjavík
Til að minnast dagsins standa Samtökin ’78, fyrir leið-
sögn Yndu Gestsson um listsýninguna „Út fyrir sviga:
Myndlist og Samtökin ’78“ í Borgarskjalasafni Reykjavíkur,
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, kl. 17.00 í dag. Kl. 18.45 verður
gjörningur í anda Stonewall-uppþotsins og grillveisla hjá
Samtökunum ’78. Um kvöldið verður skálað fyrir Stonewall
á veitingahúsinu Geira Smart.
Þ E T TA G E R Ð I S T 2 8 . J Ú N Í 19 69
Mikilvægur dagur í
baráttu hinsegin fólks
Stonewall Inn við Christopher-götu í New York-borg.
Á 50 ára afmæli uppþotanna
hefur IKEA hannað burðar-
poka í regnbogalitunum.
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
8
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
2
-A
4
0
4
2
3
5
2
-A
2
C
8
2
3
5
2
-A
1
8
C
2
3
5
2
-A
0
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K