Fréttablaðið - 28.06.2019, Qupperneq 22
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Sigurður J. Guðmundsson hóf störf sem gjaldkeri Sam-takanna ’78 í fyrra en hefur
unnið hjá samtökunum um árabil.
Hann er fróður um þennan merki-
lega dag og greinir hér frá af hverju
hann reyndist svona mikilvægur í
réttindabaráttu hinsegin fólks.
„Það var ekkert voðalega auð-
velt að vera hinsegin á einhvern
hátt á þessum tíma. Stonewall var
skemmtistaður í New York þar sem
hinsegin fólk gat komið saman.
Samkvæmt öllum lýsingum þá var
staðurinn frekar subbulegur en
hann þjónaði samt því hlutverki
að vera ákveðinn griðastaður. Fólk
gat farið þangað og verið það sjálft
í friði.“
Fögnuðu lífi Judy Garland
Árásir lögreglu á staðinn voru tíðar
Fagna Stonewall-óeirðunum
Í kvöld verður
haldið upp á 50
ára afmæli Stone-
wall-óeirðanna,
sem oft eru
nefndar upphaf
réttindabaráttu
hinsegin fólks.
og fólkið sem stundaði Stonewall
var vissulega vant því. En þetta
fræga kvöld, 28. júní árið 1969,
var öðruvísi. Á þessu kvöldi voru
sumir að fagna lífi leikkonunnar
Judy Garland sem lék meðal annars
Dorothy Gale í Galdrakarlinum í
Oz. Garland átti dyggan aðdáenda-
hóp meðal hinsegin fólks og lagið
Over the rainbow úr myndinni
varð að þemalagi hinsegin fólks.
Það að vera „vinur Dorothy“ varð
að orðatiltæki sem margir hinsegin
einstaklingar notuðu yfir sig sjálfa.
Judy Garland var líka vinsæl
meðan hinsegin fólks vegna
persónulegs vanda sem hún átti
við að stríða. Margir í hinsegin
samfélaginu upplifðu að hennar
vandi endurspeglaði á vissan hátt
félagslegan vanda hinsegin fólks
í Bandaríkjunum á þessum tíma.
Það að Garland hafi yfirstigið mörg
persónuleg vandamál sem fönguðu
athygli fjölmiðla naut líka mikillar
hylli hinsegin samfélagsins.
Garland hafði verið áberandi á
sviðinu frá barnsaldri og kljáðist
við ýmiss konar andleg veikindi
eftir að hafa ítrekað fengið þau
skilaboð sem barn og unglingur
frá þungavigtarframleiðendum
í Hollywood að hún væri ljót. Á
fullorðinsárum þróaði hún með sér
alkóhólisma, átröskun og alvarlegt
þunglyndi. Hún var bæði hötuð og
elskuð af samstarfsaðilum og áhorf-
endum. Að lokum lést Garland
vegna langvarandi misnotkunar á
róandi lyfjum, skömmu fyrir Stone-
wall-óeirðirnar.
Fólk fékk nóg
„Garland var jörðuð 27. júní þetta ár
og á Stonewall var verið að minnast
hennar. Hún var rosalega mikið
íkon fyrir hinsegin samfélagið.
Eftir miðnætti, aðfaranótt 28. júní
braust lögreglan inn á staðinn sem
var í sjálfu sér ekkert óeðlilegt enda
gerðist það oft. Það er líka vegna
þess að staðurinn var í eigu mafí-
unnar. En þetta var sérstakt kvöld
og fólki var hreinlega ofboðið. Það
fékk nóg af því að vera handtekið
út af engu og reis upp. Úr því urðu
nokkurra daga óeirðir þar sem
hins egin fólk með alls konar bak-
grunn neitaði að gefa sig, neitaði að
láta stjórna lífi sínu.
Þá sá lögreglan sig knúna til að
bakka frá þeirri áætlun að loka
staðnum. Í kjölfarið urðu til skipu-
lagðir baráttuhópar sem börðust
fyrir réttindum hinsegin fólks.
Eftir það fór risabylgja af stað, út
um allan heim. Ef ekki hefði verið
fyrir þessar óeirðir hefði réttinda-
baráttan, meira að segja hér á
Íslandi, líklegast ekki farið af stað
þegar hún fór af stað. Stonewall-
óeirðirnar eru þess vegna upphafið
að réttindabaráttu hinsegin fólks
sem markvisst afl.“
Gleðigöngur
lykill í baráttunni
Árið 1970 voru svo fyrstu gleði-
göngurnar gengnar í heiminum til
að heiðra óeirðirnar og árangurinn
sem hlaust af þeim fyrir hinsegin
samfélagið. Þess vegna er oftast
vaninn að Pride mánuðurinn sé
haldin í júní og gleðigöngurnar
gegnar í kringum afmæli óeirð-
anna, þó á Íslandi séu hinsegin
dagar í ágúst. „Gleðigöngur eru stór
hluti af baráttu hinsegin fólks því
þær leggja áherslu á sýnileikann.
Með göngunum erum við að sýna
fram á tilvist okkar. Það er nánast
ómögulegt að berjast fyrir réttind-
um hóps sem sést aldrei. Það sést
ekkert dagsdaglega á okkur að við
séum hinsegin. Þess vegna er það
lykill í baráttunni að geta sýnt fram
á gleðina og fjölbreytileikann í
þjóðfélaginu með gleðigöngunum.“
Á árunum 1993-94 voru svo farn-
ar fyrstu frelsisgöngur hinsegin
fólks á Íslandi. „Þetta voru ekki
gleðigöngur eins og við þekkjum
þær, þetta voru kröfugöngur. Við-
tökurnar voru ekki sérstaklega
góðar og fólk var ekki mjög hrifið af
þessu enda var hinsegin hreyfingin
ekki komin í eins góða stöðu og nú.
Árið 2000 var svo fyrsta gleðigang-
an á Íslandi. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar þótt baráttan
eigi enn langt í land.
Fyrir þá sem vilja fagna Stone-
wall-óeirðunum er vegleg dagskrá
í boði Samtakanna ’78 í kvöld.
Þá verður byrjað á leiðsögn um
listasýninguna Út fyrir sviga í
Borgarbókasafninu, næst er haldið
í húsnæði Samtakanna ’78 þar sem
verður haldið fræðsluerindi um
Stonewall-óeirðirnar og hægt að
sjá gjörning í anda þeirra á meðan
boðið er í grillveislu. Kvöldinu
lýkur síðan með kokteilpartíi á
Geira smart. Nánari upplýsingar
um viðburðinn má finna á vefsíðu
samtakanna.
Sigurður J. Guðmundsson er gjaldkeri Samtakanna ’78. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hinsegin fólk fékk nóg og krafðist mannréttinda. NORDICPHOTOS/GETTY
M
• Þarf að snúa rekstri við?
• Þarftu að losa lager og verðmæti?
• Viltu selja reksturinn?
• Er fyrirtækið á leið í þrot?
• Þarftu að finna leiðir til að loka?
YFIRTÖKUM EIGNIR / KAUPUM:
• Ökutæki
• Lóðir/Eignir
• Lager fyrirtækja
• Fyrirtæki sem eru að fara í þrot eða eru til sölu
OKKAR NÁLGUN
• Erum lausnamiðaðir
• Staðgreiðum verðmæti
• Kaupum allar eignir
• Fyllsta trúnaðar er gætt
• Skjót ákvarðanataka
m a l a l a u s n i r @ m a l a l a u s n i r . i s
EINFÖLDUM HLUTINA
VANTAR ÞIG AÐSTOÐ
VIÐ REKSTUR?
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
8
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
2
-C
B
8
4
2
3
5
2
-C
A
4
8
2
3
5
2
-C
9
0
C
2
3
5
2
-C
7
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K