Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.2019, Side 1

Víkurfréttir - 04.07.2019, Side 1
Ristorante pizzur Pepperoni & Salami eða Hawaiian Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar Opnum snemma lokum seint Frábær júlítilboð AVA drykkir Appelsínu eða Skógarberja 33 cl Muffins Caramel, Double Choc eða Milk Chocolate 389 kr/stk áður 599 kr 35% 199 kr/stk áður 289 kr 31% 50% 79 kr/stk áður 159 kr Háhraða internet og hágæða sjónvarp EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER ENGIR AUKAREIKNINGAR Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding frá 6.890 kr/mán. Bæjarráð Reykjanesbæjar sam- þykkti á fundi sínum á fimmtu- dag að stefnt skuli að því að lækka álagningarstuðul í Reykjanesbæ þannig að ekki komi til hækkunar á fasteignaskatti vegna breytingar á fasteignamati sem taka á gildi 2020. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár Ís- lands er hækkun á fasteignamati upp á 8,6% í Reykjanesbæ árið 2020. Íbúar Suðurnesja eru 27.557 talsins núna 1. júlí. Þeim hefur fjölgað um 508 talsins frá 1. desember 2018. Flestir eru íbúar Reykjanesbæjar eða 19.253 talsins. Þeim hefur fölgað um 371 eða 2,0 % frá 1. desember í fyrra. Íbúar Suðurnesjabæjar eru næstfjöl- mennastir á Suðurnesjum. Þeir eru 3.531 talsins og hefur fjölgað um 49 frá 1. desember sl. eða 1,4%. Grindvíkingar eru 3.492 samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands. Þeim hefur fjölgað hlutfallslega mest á Suðurnesjum frá því í desember eða um 95 einstaklinga. Það gerir fjölgun upp á 2,8% á tímabilinu. Íbúum Sveitarfélagsins Voga fækkar hins vegar um sjö einstaklinga frá því 1. desember 2018. Núna, þann 1. júlí, eru íbúar í Vogum 1.281 talsins. Reykjanesbær er ennþá fjórða stærsta sveitarfélag landsins en Akureyri er í fimmta sæti með 18.957 íbúa þann 1. júlí. Reykjavík, Kópavogur og Hafnar- fjörður eru einu sveitarfélögin sem eru stærri en Reykjanesbær. Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemdir við frummatskýrslu vegna Suðurnesjalínu 2 en Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Grindavíkur á frummatsskýrslu Suðurnesjalínu 2. Framkvæmdin við Suðurnesjalínu 2 er matsskyld skv. tl. 3.08 í viðauka laga nr. 106/2000 um mat á um- hverfiáhrifum. Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar ásamt helstu valkostum sem komu til greina. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við frummatskýrsluna. Umrædd framkvæmd er háð fram- kvæmdarleyfi hjá Grindavíkurbæ. Fjölgað um 500 frá áramótum á Suðurnesjum Reykjanesbær enn 4. stærsta sveitarfélag landsins: Grindavík gerir ekki athuga- semd við Suðurnesjalínu 2 Fasteignaskattur hækki ekki Víkurfréttir koma næst út 18. júlí Vegna sumarleyfa starfsfólks Víkurfrétta í júlímánuði kemur blaðið ekki út í næstu viku. Víkurfréttir koma næst út á prenti fimmtudaginn 18. júlí. Vefútgáfa blaðsins, vf.is, fer hins vegar ekki í sumarfrí og þar verður staðin fréttavakt alla daga júlímánaðar. Þar eru líka fjölbreyttir mögu- leikar til að koma að auglýsingum í ýmsum stærðum. Sími auglýsinga- deildar er 421 0001 og póstfangið er andrea@vf.is. Vaktsími blaðamanns er 898 2222 og þá má senda ábendingar eða efni á póstfangið vf@vf.is. - dagleg fréttaþjónusta á vefnum, vf.is Bæjarráð Suðurnesjabæjar fagnar því að Alþingi hafi samþykkt þingsálykt- unartillögu þingmanna Suðurkjördæmis um stöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í afgreiðslu bæjarráðs á tillögu til þingsálykt- unar um stöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og ályktun Alþingis um stöðu sveitarfélaganna á Suður- nesjum. Jafnframt lýsir bæjarráð ánægju með samstöðu þingmanna kjördæmisins í málinu. „Suðurnesjabær er reiðubúinn til að leggja sitt af mörkum í þeirri vinnu sem framundan er á grund- velli ályktunar Alþingis og væntir þess að vinna samkvæmt henni hefjist sem fyrst,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar. Lýsir ánægju með samstöðu þing- manna vegna stöðu Suðurnesja Ekki auðveldur fugl á fjórtándu! KYLFINGAR ÞEKKJA VEL TAL UM FUGLA. Að fá örn er til dæmis gott í golfinu og þá er stundum talað um auðveldan fugl. Svo mikið er víst að krían sem hefur gert sér hreiður í glompu við 14. braut á Hólmsvelli í Leiru er alls ekki auðveldur fugl. Hún ver hreiður sitt af hörku en var þó hin rólegasta þegar ljósmyndari blaðsins, Jóhann Páll Kristbjörnsson, smellti af meðfylgjandi mynd. fimmtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg. S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.