Víkurfréttir - 04.07.2019, Síða 1
Ristorante pizzur
Pepperoni & Salami
eða Hawaiian
Opnunartími Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
Opnum snemma
lokum seint
Frábær júlítilboð
AVA drykkir
Appelsínu eða Skógarberja
33 cl
Muffins
Caramel, Double Choc
eða Milk Chocolate
389
kr/stk
áður
599 kr
35%
199
kr/stk
áður
289 kr
31%
50%
79
kr/stk
áður
159 kr
Háhraða internet og hágæða sjónvarp
EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER
ENGIR AUKAREIKNINGAR
Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is
www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding
frá 6.890 kr/mán.
Bæjarráð Reykjanesbæjar sam-
þykkti á fundi sínum á fimmtu-
dag að stefnt skuli að því að lækka
álagningarstuðul í Reykjanesbæ
þannig að ekki komi til hækkunar
á fasteignaskatti vegna breytingar á
fasteignamati sem taka á gildi 2020.
Samkvæmt gögnum Þjóðskrár Ís-
lands er hækkun á fasteignamati
upp á 8,6% í Reykjanesbæ árið 2020.
Íbúar Suðurnesja eru 27.557 talsins
núna 1. júlí. Þeim hefur fjölgað um
508 talsins frá 1. desember 2018.
Flestir eru íbúar Reykjanesbæjar
eða 19.253 talsins. Þeim hefur fölgað
um 371 eða 2,0 % frá 1. desember
í fyrra.
Íbúar Suðurnesjabæjar eru næstfjöl-
mennastir á Suðurnesjum. Þeir eru
3.531 talsins og hefur fjölgað um 49
frá 1. desember sl. eða 1,4%.
Grindvíkingar eru 3.492 samkvæmt
upplýsingum Þjóðskrár Íslands. Þeim
hefur fjölgað hlutfallslega mest á
Suðurnesjum frá því í desember eða
um 95 einstaklinga. Það gerir fjölgun
upp á 2,8% á tímabilinu.
Íbúum Sveitarfélagsins Voga fækkar
hins vegar um sjö einstaklinga frá
því 1. desember 2018. Núna, þann 1.
júlí, eru íbúar í Vogum 1.281 talsins.
Reykjanesbær er ennþá fjórða stærsta
sveitarfélag landsins en Akureyri er í
fimmta sæti með 18.957 íbúa þann 1.
júlí. Reykjavík, Kópavogur og Hafnar-
fjörður eru einu sveitarfélögin sem
eru stærri en Reykjanesbær.
Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemdir við frummatskýrslu
vegna Suðurnesjalínu 2 en Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn
Grindavíkur á frummatsskýrslu Suðurnesjalínu 2.
Framkvæmdin við Suðurnesjalínu
2 er matsskyld skv. tl. 3.08 í viðauka
laga nr. 106/2000 um mat á um-
hverfiáhrifum.
Bæjarráð telur að vel sé gerð
grein fyrir umhverfisáhrifum
framkvæmdarinnar ásamt helstu
valkostum sem komu til greina.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir
við frummatskýrsluna.
Umrædd framkvæmd er háð fram-
kvæmdarleyfi hjá Grindavíkurbæ.
Fjölgað um 500
frá áramótum á
Suðurnesjum
Reykjanesbær enn 4. stærsta
sveitarfélag landsins:
Grindavík gerir ekki athuga-
semd við Suðurnesjalínu 2
Fasteignaskattur hækki ekki
Víkurfréttir koma næst út 18. júlí
Vegna sumarleyfa starfsfólks Víkurfrétta í júlímánuði kemur blaðið ekki
út í næstu viku. Víkurfréttir koma næst út á prenti fimmtudaginn 18.
júlí. Vefútgáfa blaðsins, vf.is, fer hins vegar ekki í sumarfrí og þar verður
staðin fréttavakt alla daga júlímánaðar. Þar eru líka fjölbreyttir mögu-
leikar til að koma að auglýsingum í ýmsum stærðum. Sími auglýsinga-
deildar er 421 0001 og póstfangið er andrea@vf.is. Vaktsími blaðamanns
er 898 2222 og þá má senda ábendingar eða efni á póstfangið vf@vf.is.
- dagleg fréttaþjónusta á vefnum, vf.is
Bæjarráð Suðurnesjabæjar fagnar því að Alþingi hafi samþykkt þingsálykt-
unartillögu þingmanna Suðurkjördæmis um stöðu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum.
Þetta kemur fram í afgreiðslu
bæjarráðs á tillögu til þingsálykt-
unar um stöðu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og ályktun Alþingis
um stöðu sveitarfélaganna á Suður-
nesjum. Jafnframt lýsir bæjarráð
ánægju með samstöðu þingmanna
kjördæmisins í málinu.
„Suðurnesjabær er reiðubúinn til
að leggja sitt af mörkum í þeirri
vinnu sem framundan er á grund-
velli ályktunar Alþingis og væntir
þess að vinna samkvæmt henni
hefjist sem fyrst,“ segir í afgreiðslu
bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
Lýsir ánægju með samstöðu þing-
manna vegna stöðu Suðurnesja
Ekki auðveldur
fugl á fjórtándu!
KYLFINGAR ÞEKKJA VEL TAL UM FUGLA. Að fá örn er til dæmis gott í golfinu og þá er stundum talað um auðveldan fugl. Svo mikið er víst að krían sem
hefur gert sér hreiður í glompu við 14. braut á Hólmsvelli í Leiru er alls ekki auðveldur fugl. Hún ver hreiður sitt af hörku en var þó hin rólegasta þegar
ljósmyndari blaðsins, Jóhann Páll Kristbjörnsson, smellti af meðfylgjandi mynd.
fimmtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2