Víkurfréttir - 04.07.2019, Síða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir,
sími 421 0002, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, vf@vf.is //
Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit &
umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími
421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag:
9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er
á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá
kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta,
vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt
fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
SUNNUDAGA KL. 20:30
á Hringbraut og vf.is
Reykjanesbær auglýsir fjögur áhugaverð störf í heilsíðu auglýsingu í Víkurf-
réttum sem kom út í síðustu viku. Störfin eru aðstoðarmaður bæjarstjóra,
forstöðumaður Súlunnar, fjármálastjóri og lýðheilsufræðingur.
Frestur til að sækja um er til 8. júlí
og sótt er um á vef Reykjanesbæjar.
Þar eru einnig nánari upplýsingar
um auglýst störf.
Starf aðstoðarmanns bæjarstjóra
felur í sér að aðstoða bæjarstjóra
við dagleg verkefni. Þar er m.a. átt
við undirbúning funda og viðburða
sem bæjarstjóri kemur að eða stendur
fyrir. Einnig að koma erindum sem
bæjarstjóra berast í réttan farveg.
Súlan er ný skrifstofa þar sem ýmsir
málaflokkar heyra undir. Má þar
nefna atvinnumál, ferðamál, menn-
ingarmál, safnamál, markaðs- og
kynningarmál. Starf forstöðumanns
felur í sér ábyrgð á stjórnun, stefnu-
mótun og þjónustu þeirra stofnana
sem heyra undir Súluna.
Fjármálastjóri stýrir fjármálaskrif-
stofu Reykjanesbæjar, styður bæjar-
ráð við framlagningu, samþykkt og
framkvæmd fjárhagsáætlunar. Þá sér
fjármálastjóri um gerð og kynningu
viðauka við fjárhagsáætlun og leiðir
umbætur og styrkingu á umgjörð
fjármála Reykjanesbæjar.
Lýðheilsufræðingur mun sinna verk-
efnum á sviði forvarna og lýðheilsu-
mála hjá Reykjanesbæ. Einnig mun
lýðheilsufræðingur vinna að upp-
byggingu heilsueflandi samfélags í
samræmi við lýðheilsustefnu.
Fræðslustofnanir og íþrótta- og æskulýðsfélög á Suðurnesjum gegna lykil-
hlutverki í aðgerðum stjórnvalda sem miða að uppbyggingu á svæðinu
í kjölfar falls Wow Air nú í vor. Í framhaldi af fundi Lilju Alfreðsdóttur
mennta- og menningarmálaráðherra með íbúum Suðurnesja í apríl um
atvinnu- og fræðslumál á svæðinu var stofnaður starfshópur um málið
innan mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Hlutverk hans var að
móta aðgerðaáætlun er byggði á sýn heimamanna og stjórnvalda og vinna
henni brautargengis ásamt því að vakta, greina og miðla upplýsingum um
stöðu og þróun mála, með sérstakri áherslu á greiningu á aðstæðum þeirra
hópa sem verst stæðu.
Í síðustu viku var skrifað undir
samninga um sérverkefni er því
tengjast við Miðstöð símenntunar á
Suðurnesjum, Keili – Miðstöð vísinda,
fræða og atvinnulífs, Skátafélagið
Heiðabúa, Ungmennafélagið Kefla-
vík, Ungmennafélag Njarðvíkur og
Reykjanesbæ. Umfang aðgerðanna
sem samið var um nú er alls tæpar
28 milljónir kr. og er um að ræða fjöl-
þætt verkefni sem tilheyrir fyrri hluta
aðgerðaráætlunar stjórnvalda er snýr
að menntaúrræðum á svæðinu. Meðal
þeirra verkefna sem styrkt eru nú eru
fjölbreytt frístundanámskeið fyrir
börn á grunnskólaaldri og námskeið
í tölvuleikjagerð, jöklamennsku og
útivist á vegum Keilis. Þá mun Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum
bjóða upp á námskeið í valdeflingu
kvenna, starfsþróun, styrkingu og
handleiðslu, náms- og starfsráðgjöf
og íslenskukennslu fyrir útlendinga.
„Markmið okkar aðgerða er meðal
annars að tryggja gott aðgengi að
námi á öllum skólastigum á Suður-
nesjum, að góð þjónusta sé við íbúa
á svæðinu sem hafa annað móður-
mál en íslensku og að ekki verði
fall í þátttöku barna og ungmenna
í frístundastarfi, tónlistarnámi og
íþróttastarfi,“ sagði Lilja Alfreðs-
dóttur mennta- og menningarmála-
ráðherra. „Við eigum í góðu samstarfi
við sveitarfélögin í þessu samhengi
og fylgjumst vel með þróuninni á
svæðinu.“
Gott samráð er einnig við aðra
fræðsluaðila svo og Vinnumála-
stofnun sem hefur yfirsýn yfir þróun
atvinnumála á svæðinu og samsetn-
ingu atvinnuleitenda.
Fjölmennt lög-
reglulið leysti
ágreining
Fjölmennt lögreglulið var kallað að
strætisvagni við Krossmóa í Njarð-
vík í síðustu viku. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á Suður-
nesjum kom upp ágreiningur milli
farþega og bílstjóra.
Atvikið var minniháttar að sögn lög-
reglu og var leyst á staðnum.
Folfvöllur opnar senn í Vogum
Nú eru framkvæmdir við Frisbígolfvöll, eða svk. Folfvöll, í Vogum langt komnar. Búið er að setja upp körfurnar
en þær eru sjö talsins. Nú geta Vogabúar og aðrir farið að nota völlin til æfinga og keppni en á næstu dögum
verður lokið við að merkja brautir og upphafsstaði og að því loknu verður völlurinn formlega tekinn í notkun.
Anne Lise Jensen:
„Mér finnst gaman að fara í ferða-
lög, til dæmis í dagsferðir með
nesti og teppi til að sitja á.“
Jóhann Guðbrandsson:
„Í sumar hefði ég helst viljað fá að
ferðast á heimaslóðum mínum í
Strandasýslu.“
Karl Þorbergsson:
„Að borða grillmat.“
Vilborg Guðný Óskarsdóttir:
„Mér finnst gaman að heimsækja
vini og ættingja. Fara í grasagarð-
inn og svona.“
SPURNING VIKUNNAR
Hvað finnst þér gaman
að gera á sumrin?
Aðgerðaáætlun á
Suðurnesjum virkjuð
Bæjarstjóri fær
aðstoðarmann
Frá vettvangi við Krossmóa í Njarðvík.
VF-mynd: Hilmar Bragi
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.