Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 4
SUNNUDAGA KL. 20:30 á Hringbraut og vf.is SUÐUR MEÐ SJÓ og SUÐURNESJAMAGASÍN má sjá á Hringbraut, vf.is og í kapalsjónvarpinu í Reykjanesbæ. Allt efni þáttanna er einnig á Youtube- og Facebook-síðum Víkurfrétta. Landnámsdýragarðinum í Reykjanesbæ hefur verið lokað þar sem eftir lifir sumars. Dýrin hafa verið flutt annað. Dýragarðurinn var opnaður snemma í maí og hefur verið opinn daglega þar til 22. júní sl. að honum var lokað. Íbúar eru undrandi á þeirri ákvörðun að loka dýragarðinum, sem hefur verið vinsæll hjá yngstu kynslóðinni. Það var þó ljóst þegar Reykjanesbær opnaði garðinn í vor að dýragarðurinn yrði aðeins opinn til 22. júní. Víkurfréttir spurðust fyrir um ástæður þess að dýragarðinum hafi verið lokað. „Undir lok síðasta árs stóð til að loka Landnámsdýragarðinum. Hann hafði fram til þessa árs verið rekinn með fjármagni menningarmála, en menn- ingaráð ákvað undir lok síðasta árs að fjármagna reksturinn ekki lengur, fannst hann ekki eiga heima undir menningarmálum. Umhverfissvið tók þá yfir reksturinn, en ljóst var í upphafi að opnunartíma yrði að stytta vegna rekstrarkostnaðar,“ segir í skriflegu svari sem barst frá Reykja- nesbæ við fyrirspurn blaðsins. Allt að 300 ein- staklingar sækja um matarúthlutun í Reykjanesbæ Um 270-300 einstaklingar sækja um matarúthlutun hjá Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ í hverjum mánuði. Vel- ferðarráð Reykjanesbæjar heimsótti aðsetur Fjölskylduhjálpar Íslands að Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ í síðustu viku. Anna Valdís Jónsdóttir, varaformaður Fjölskylduhjálpar og umsjónarmaður í Reykjanesbæ, tók á móti fulltrúum velferðarráðs og sagði frá starfsem- inni. Fjölskylduhjálp Íslands hefur óskað eftir stuðningi Reykjanesbæjar við neyðarsjóð en fram hefur komið að Fjölskylduhjálp þurfi að hætta úthlutunum yfir sumarmánuðina vegna fjárskorts. Gera tilraun með hundagerði í Grófinni Hugmyndir að tilraunaverkefni um hundgerði innan skilgreinds hafnar- svæðis smábátahafnarinnar í Gróf í Reykjanesbæ hafa verið kynntar fyrir stjórn Reykjaneshafnar með tölvupósti frá umhverfissviði Reykjanesbæjar. Þar er jafnframt óskað eftir heimild Reykjaneshafnar fyrir þessari tilraun. Lagt er til að Reykjaneshöfn samþykki fyrir sitt leiti viðkomandi tilraunar- verkefni. Verkefnið var samþykkt með fjórum atkvæðum en Sigurður Guðjónson greiddi atkvæði á móti og lagði fram eftirfarandi bókun: „Ég get ekki greitt þessari staðsetningu atkvæði mitt því ég tel að aðrar staðsetningar væru heillavænlegri“. Reykjanesbær og Suðurnesjabær framlengdu í vikunni þjónustusamning þar sem Suðurnesjabær kaupir þjónustu af fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Um er að ræða skólaþjónustu og þjónustu henni tengdri. Samningurinn gildir út skólaárið 2019-2020. Samningur Reykjanesbæjar og Suður- nesjabæjar nær til skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, skimana og ráð- gjafa um íhlutun og kennslufræðilega ráðgjöf vegna tvítyngdra nemenda. Einnig eru í samningum ákvæði um úrræði og fræðslu, endurmenntun starfsfólks, faglegt samstarf stjórn- enda, rekstrarráðgjöf og eftirlit með gæðum þjónustu. Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar hefur á undanförnum misserum þjónustað skólana í Garði og Sand- gerði, nú Suðurnesjabæ. Ánægja er með þjónustuna og verður henni því haldið áfram enn um sinn. Suðurnesjabær vinnur að því í samstarfi við Sveitarfélagið Voga að undirbúa og byggja upp fræðsludeild til þjónustu við skólana í bæjarfélögunum. Þetta kemur fram í pistli sem Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ, skrifar á vef Suðurnesjabæjar. Í síðustu viku undirrituðu bæjar- stjórar Suðurnesjabæjar og Sveitar- félagsins Voga samning um samstarf sveitarfélaganna við uppbyggingu og þróun fræðsludeildar, sem mun veita grunn- og leikskólum sveitar- félaganna faglega þjónustu. Fræðsludeildin mun taka við þessu verkefni þegar framangreindur þjón- ustusamningur við Reykjanesbæ rennur út. „Það er ánægjulegt að eiga samstarf við Sveitarfélagið Voga um þetta verk- efni, en sveitarfélögin hafa um árabil átt mjög gott samstarf um félags- þjónustu við íbúa sveitarfélaganna,“ skrifar Magnús bæjarstjóri í pistli á vef Suðurnesjabæjar. Landnámsdýragarð- inum lokað í sumar Suðurnesjabær og Vogar í samstarf um fræðslumál Fræðsluskrifstofa Reykjanes- bæjar þjónustar Suðurnesjabæ Við undirritun samningsins. Frá vinstri Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Suðurnesjabæjar, Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Helgi Arnarson sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar. 4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.