Fréttablaðið - 17.08.2019, Side 12

Fréttablaðið - 17.08.2019, Side 12
H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n atvinnuleikhópa Umsóknarfrestur til 1. október Styrkir til Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa á árinu 2020. Veittir eru styrkir til einstakra verkefna eða starfssamninga til tveggja ára. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2019. Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is. Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn. Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef umsækjandi merkir við þar til gerðan reit í umsóknarformi. Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar leiklistarráð tillögu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins um úthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum. Nánari upplýsingar: Guðmundur Ingi Markússon og Ragnhildur Zoëga, sími: 515 5838. atvinnuleikhopar@rannis.is, www.rannís.is NÝR OG GLÆSILEGUR RANGE ROVER EVOQUE VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR landrover.is LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 Range Rover Evoque. Verð frá: 7.890.000 kr. OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16 E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 1 3 9 R a n g e R o v e r E v o q u e 5 x 2 0 a g g u ́ Job.is Þú finnur draumastarfið á UTANRÍKISMÁL Íslendingar undir- búa nú enn eina stórheimsókn ársins. Eftir að hafa tekið á móti Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra NATO, Frank- Walter Steinmeier, forseta Þýska- lands og sjálfum Ed Sheeran, sem reyndar er tónlistarmaður, er röðin nú komin að Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Já og reyndar leiðtogum hinna Norðurlandanna. Merkel kemur hingað sem sér- stakur heiðursgestur á sumarfundi norrænu forsætisráðherranna og mun að auki funda með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra einni. Fyrirséð er að hún virði fyrir sér Þingvelli og Viðey. Fáir núverandi þjóðarleiðtogar hafa setið jafnlengi og Merkel. Hvað þá á Vesturlöndum. Hún tók við sem kanslari árið 2005 og mun, að öllu óbreyttu, sitja til ársins 2021. Þegar hún lætur af embætti eftir tvö ár verður hún komin upp í annað sæti á listanum yfir þaulsætnustu kanslarana. Með sextán ár líkt og Kohl og þannig einungis á eftir Otto von Bismarck, sem sat í 23 ár mínus einn dag. Að því er kom fram í úttekt Deutsche Welle á valdatíð kansl- arans hefur Merkel-tíminn ein- kennst af stækkandi þýsku hag- kerfi og minnkandi atvinnuleysi. Það sem hefur vakið mesta athygli er þó hvernig Merkel hefur tekist á við afar erfið pólitísk mál á borð við grísku kreppuna, sem ógnaði evrusvæðinu öllu, hina ólöglegu innlimun Rússa á Krímskaga, mikið flæði f lóttafólks til Evrópu og upp- gang þjóðernisöfgamanna í Þýska- landi. Merkel hefur getið sér góðan orðstír fyrir að koma á viðræðum á milli karpandi fylkinga og lýsir hinn fyrrnefndi þýski miðill henni sem afar færri í krísustjórnun. Hún hefur dregið Kristilega demókrata, alla jafna stærsta hægri- f lokk Þýskalands nútímans, inn á miðjuna. Til að mynda með því að opna dyrnar fyrir f lóttafólki. Það bauð hins vegar upp á tækifæri fyrir öfgaflokkinn AfD og þótt útlit sé fyrir að Kristilegir demókratar verði stærstir í næstu kosningum, samkvæmt skoðanakönnunum, er fylgið langt frá þeim hæðum sem það náði þegar Merkel sótti 41,5 prósent atkvæða árið 2013. Áður en flóttamannakrísan náði hæðum sínum. thorgnyr@frettabladid.is Þaulsætni kanslarinn Angela Merkel sækir Ísland heim sem gestur fundar norrænna forsætisráð- herra. Hefur setið lengur en nær allir Þýskalandskanslarar og getið sér gott orð. Merkel, með hendurnar í sinni þekktu stellingu. NORDICPHOTOS/AFP 1 7 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 7 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :4 7 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 9 -8 9 0 8 2 3 9 9 -8 7 C C 2 3 9 9 -8 6 9 0 2 3 9 9 -8 5 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.