Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Side 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012
°
°
Einn er sá jólasveinn sem aldrei fær
að koma til byggða. Hann kemur
nokkuð við sögu í leikriti Leikfélags
Vestmannaeyja, Allra, allra besta
jólaleikrit allra tíma. Þessi jólasveinn
heitir Faldafeykir og er Eyjamaður
vikunnar í tilefni þess að jólin eru á
næsta leiti. Hann segir t.d. frá því
hvers vegna hann býr einn og fær
ekki að koma til byggða með
bræðrum sínum.
Nafn: Jah, einu sinni hét ég nú
Hurðaskellir. En mannanafnanefnd
hefur breytt því í Faldafeykir Grýlu-
son. Skil ekki alveg af hverju.
Fæðingardagur: Ehh...man það
ekki alveg. En það var allavega áður
en sneitt brauð var fundið upp.
Fæðingarstaður: Grýluhellir 31/4b
Fjölskylda: Það eru mamma og
pabbi, Grýla og Leppalúði. Svo eru
það bræður mínir; Stekkjarstaur,
Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir,
Potta sleikir, Askasleikir, Hurða -
skell ir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir,
Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrók -
ur, Kertasníkir og öll tröllin sem hef
aldrei getað munað hvað heita. Já,
og svo Snati, jólakötturinn. En nú er
ég „fluttur“ að heiman og held upp
á jólin bara AAAAAAALEINN! En
hann Snati kíkir af og til við hjá
mér til að tuða yfir ástandinu
heima.
Draumabíllinn: Jahh, mig hefur nú
aldrei langað í bíl. En mig langar
rosalega mikið í svona flottan sleða
með hreindýrum sem fjarskyldur
ættingi okkar bræðra í Ameríku
ferð ast um á.
Uppáhaldsmatur: Þorramatur er í
uppáhaldi hjá mér. Annars smakk -
aði ég nú Hjöllabát hjá hon -
um...ha...nú...já Hlöllabát hjá
honum Kára Fúsa í Kránni. Hann
þótti mér gómsætur.
Versti matur: RAUÐKÁL! OJ
BARA! Ég læt það sko ekki inn
fyrir mínar varir. Svo festist þetta
alltaf í skegginu.
Uppáhalds vefsíða: Jah, ég hef nú
ekki verið neitt sérlega tæknivædd -
ur. Hef alltaf verið meira fyrir
bækur, sérstaklega með myndum.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Nú, jólalög auðvitað!
Hvernig spyrðu maður.
Aðaláhugamál: Bútasaumur,
hreindýraræktun, kisumyndir, jogg
(sem heitir víst skokk núna) og að
sjálfsögðu að vera kurteis, hreinn
og alls ekki óþekkur.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Æ, ég held ég sé nú búinn að hitta
flesta, en mig langar ROSALEGA
að hitta mömmu og pabba, já og
bara alla fjölskylduna mína. Sakna
þeirra VOÐA mikið. Sérstaklega
núna um jólin.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Úff...þegar maður ferðast
svona mikið eins og ég þá er erfitt
að velja. En mér þykir alltaf voða -
lega gaman að koma til Vestman-
naeyja.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Ég sá litla stúlku með
húfu um daginn sem stóð á ÍBV.
Hún hélt með þeim, þannig ég held
ég haldi bara líka með þeim :D
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei, ég get
nú ekki sagt það. Og þó, ég hleyp
allavega alltaf undir stiga og brýt
spegil þegar ég sé svartan kött labba
framhjá mér, sem gerist ansi oft þar
sem hann Snati minn er svartur. Er
það ekki eitthvað?
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Já, blessaður vertu. Ég jogga
(skokka) og syndi. Það er voða gott.
Já og svo hleyp ég þegar jólakattar-
kvikindið stelur húfunni minni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Stiklur
með Ómari Ragnarssyni og Stundin
okkar. Já og svo jólamyndir,
sérstaklega Hóm alón!
Af hverju færð þú ekki að fara til
byggða eins og bræður þínir: Æ,
það er löng og leiðinleg saga. Sko,
ég og Snati vorum að rífast eitthvað
og hann hellti yfir mig mjólk. Ég
var nýbúinn að þvo fötin mín og
varð öskureiður. Þannig að ég tók
hann upp og henti honum ofan í
grautarpottinn hennar mömmu sem
stóð á matarborðinu. Það slettist allt
út um allt og allir urðu pirraðir og
fúlir. Mamma skammaði mig rosa
mikið. Ég fór að gráta, og sagði
henni að mig langaði ekki lengur að
vera ókurteis, skítugur og að mig
langaði ekki að hrekkja lítil börn.
Allir fóru að hlæja að mér. Þá fór ég
meira að gráta. Mamma og pabbi
sögðu mér þá bara að fara og ég fór.
En mig hefur alltaf langað að koma
heim aftur. Vonandi kemst ég heim
þessi jól.
Hefur þú einhvern tímann leyst
þá af, t.d. ef þeir verða veikir:
Jah...einu sinni át Skyrgámur yfir
sig og ég þóttist vera hann. Snati
fattaði það strax því ég er ekki eins
feitur og Skyrgámur, þannig hann
klagaði í mömmu. Hún kom alveg
brjáluð og öskraði á mig. Þá fór ég
að gráta.
Af hverju heitirðu Faldafeykir:
Ég hét einu sinni Hurðaskellir og
skellti hurðunum svo fast að pilsin
þau þutu upp. Sko, faldur þýðir ein-
mitt pils og að feykja þýðir vindur.
Bræður mínir voru oft að stríða mér
og kalla mig þetta, svo bara allt í
einu þá var þetta orðið nafnið mitt.
Eitthvað að lokum: Já, ég vil
hvetja alla til að koma í leikhúsið
og sjá Allra, allra, langbesta jóla -
leikrit allra tíma! Þar er ég og fullt
af krökkum og hellingur af
skemmtilegum persónum. Já og
gleðileg jól allir saman!
Eyjamaður vikunnar: Kirkjur bæjarins:
Eyjamaður vikunnar er Faldafeykir
Landakirkja
Fimmtudagur 20. desember:
Kl. 11-12. Viðtalstímar presta í
Safn aðarheimilinu alla virka daga.
Bakvaktarsími 488 1508.
Kl. 20. Jólaperlur. Tónleikar í Safn -
aðarheimilinu undir stjórn Birkis
Thors Högnasonar með fjölda tón -
listarmanna í Vestm. til styrktar
Æskulýðsfélagi Landakirkju.
Föstudagur 21. des:
Kl. 13.30. Litlir lærisveinar, æfing.
Aðfangadagur jóla, 24. desember:
Kl. 14. Bænastund í Kirkjugarði
Vestmannaeyja.
Kl. 18. Aftansöngur með
hátíðarsöngvum. Kór Landakirkju,
jólasálmar og kórverk. Organisti
Kitty Kovács. Einsöngur Silja Elsa-
bet. Píanóleikur Matthías og Guðný
Charlotta Harðarbörn. Fiðluleikur
Balázs Stankowsky.
Jólanótt, 24. desember:
Kl. 23.30. Hátíðarguðsþjónusta á
jólanótt. Jólaguðspjall lesið í fléttu
við jólasálm. Kór Landakirkju,
jólasálmar og kórverk. Organisti
Kitty Kovács. Fiðluleikur Balázs
Stankowsky.
Jóladagur, 25. desember:
Kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta.
Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur
jólalög frá kl. 13.30. Kór Landa -
kirkju, jólasálmar og kórverk.
Organisti Kitty Kovács.
2. dagur jóla, 26. desember:
Kl. 14. Fjölskylduguðsþjónusta
með Litlum lærisveinum. Gítar-
leikur og kórstjórn Gísli Stefánsson.
Kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta á
Hraunbúðum. Kór Landakirkju.
Organisti Kitty Kovács.
Kl. 15.15. Helgistund á Sjúkrahús-
inu, dagstofu. Litlir lærisveinar og
Gísli Stefánsson.
5. dagur jóla, 30. desember:
Kl. 16. Jólatrésskemmtun í Safn -
aðarheimilinu, öllum opin og í boði
Kvenfélags Landakirkju og starfs-
fólks kirkjunnar.
Gamlársdagur 31. desember:
Kl. 18. Aftansöngur með hátíðar -
söngvum. Kór Landakirkju. Organ-
isti Guðmundur Hafliði Guðjóns -
son.
Nýársdagur 1. janúar 2013:
Kl. 14. Hátíðarguðsþjónusta. Kór
Landakirkju. Organisti Guðmundur
Hafliði Guðjónsson. Einsöngur
Geir Jón Þórisson.
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur 22. des.
Kl. 11. Bibliulestur.
Kl. 12. Guðsþjónusta.
Ræðumaður Þóra Jónsdóttir.
Allir velkomnir.
Hvítasunnu -
kirkjan
Þorláksmessa kl. 15:00
Söngstund – jólasöngvar og heitt
súkkulaði í jólaasanum.
Komum og syngjum saman.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Aðfangadagur kl. 18:00
Fagnaðarstund. „Ég boða yður
mikinn fögnuð“
Komum og fögnum Frelsaranum.
Jóladagur kl. 14:00
Hátíðarsamkoma. „Yður er í dag
frelsari fæddur“
Syngjum og fögnum frelsaranum.
Allir eru velkomnir til hátíðarinnar.
Hleyp alltaf undir
stiga og brýt spegil
þegar ég sé svartan
kött labba framhjá
V
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhuga vegna andláts og útfarar hjartkærrar
eiginkonu minnar og móður okkar,
Esterar Guðjónsdóttur
frá Skaftafelli,
sem lést 2. desember síðastliðinn. Guð blessi ykkur.
Benedikt Frímannsson
Rebekka Benediktsdóttir
Rakel Benediktsdóttir
Kristín Benediktsdóttir
Líney Benediktsdóttir
og fjölskyldur.
Okkar fyrstu kynni hófust er hann,
sem ungur drengur, kom í bakaríið
að hitta bróður sinn, Heiðmund, sem
var þá að læra bakariðn. Ég tók strax
eftir því hvað hann var snöggur og
léttur á sér. Hann átti eftir að vinna
mikið fyrir mig sem trésmíðameist -
ari og kom þar fljótt í ljós hvað hann
var duglegur, vandvirkur, útsjónar -
samur og góður í að sjá hvernig best
væri að gera hlutina. Eftir að ég fór
að fást við bókband í Spörvaskjóli,
litu þar ýmsir við, þar á meðal annars
Róbert, sem setti of fjör í umræð -
urnar enda sagði hann vel frá og
hermdi vel eftir. Það var oft hlegið
mikið, svo mikið að þeir sem áttu
leið um gangstéttina, stoppuðu og
horfðu inn um gluggan sem var með
einföldu gleri, svo vel heyrðist út, og
hugsuðu, hvað er svona skemmtilegt
þarna fyrir innan? Stundum fór
Róbert ekki heim í mat, kom við í
skjólinu og þá kannski með banana,
jógúrt eða skyrdós og borðaði það í
flýti, fékk sér síðan kaffisopa og var
þotinn því tíminn var naumur. Það
var alltaf gaman er hann leit við.
En það kom að því fyrir nokkrum
árum að örlögin gripu inn í hans líf
er hann greindist með illgreinandi
sjúkdóm, sem byrjaði með því að
hann átti bágt með að tala og borða.
Að seinustu hætti hann að geta tjáð
sig nema hann hafði alltaf með sér
blað og blýant og skrifaði skýrri
hendi það sem hann vildi segja.
Þetta hefur verið honum ótrúlegt
áfall en Róbert kvartaði aldrei. Hann
notaði Netið mikið og naut þess að
kynnast þar ýmsu skemmtilegu fólki
og var ótrúlega duglegur við það.
Er ég hætti í bókbandinu seldi ég
Róberti Spörvaskjólið, sem hann
ætlaði síðan að byggja upp að nýju í
sinni upphaflegu mynd og leigja það
út sem sumarhús. En því miður
hafði hann ekki tíma til þess. Svan-
hildur, kona hans, var ótrúlega dug-
leg að hjálpa honum með allt sem
hún gat og sýndi honum ótrúlega
væntumþykju og styrk fram á
seinasta dag.
Um leið og við kveðjum góðan vin,
vottum við aðstandendum innilega
samúð.
Dóra og Sigmundur Andrésson.
V
Minning um
Róbert
Sigurmundsson
f. 13. sept 1948. - d. 10. des. 2012.