Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Page 29
°
° Eyjafréttir / Miðvikudagur 30. ágúst 2012 29
Hrefna Díana
Viðarsdóttir, lauk
BA-prófi í þjóð -
fræði við Háskóla
Íslands en loka -
verkefni hennar
var að fjalla um
þrettándann. BA-
ritgerð Hrefnu
Díönu heitir
„Maður bíður
meira eftir þrettándanum en
eftir jólunum!“ - Form, hlutverk
og þróun þrettándans í Vest-
mannaeyjum. Hrefna vann m.a.
útvarpsefni úr efninu sem hún
viðaði að sér í kringum þrett -
ándahátíðina í Eyjum og verður
innslaginu útvarpað mánudag -
inn 7. janúar á Rás 1 klukkan
15:25 í þættinum Fólk og fræði.
Eyjafréttir fengu leyfi til að birta
valda kafla úr ritgerðinni.
Blysför í höndum Týrara
Á þrettándanum árið 1948 tóku
nokkrir ungir Týrarar sig saman og
lífguðu upp á þrettándann. Þeir
færðu sig í þetta skipti yfir á Hána
þar sem talið var auðveldara að fóta
sig á þessum árstíma. Til að byrja
með þá héldu blysfararnir upp á
Molda með þrjá kræklótta lurka
sem blys. Eftir að hafa gengið
aðeins um Hána hentu þeir svo
blysunum fram af nefinu þar. Blys-
berunum fjölgaði svo smátt og
smátt og þeir fóru að klæðast jóla -
legri fötum eða rauð máluðum Hess-
ian-striga. Loks fóru jólasveinarnir
að hætta sér niður af fjallinu og fóru
þeir þá um götur bæjarins, til aust -
urs að Elliheimilinu við Urðaveg,
með blysin við fögnuð bæjarbúa.
Þeir hurfu svo fyrir björg austan við
gamla Þurrkhúsið. Skátarnir voru
greinilega með þeim í ráðum í ein-
hver ár. Þeir gengu á Helgafell sem
fyrr en komu austan af Urðum. Ferð
jólasveinanna niður af Hánni
þróaðist loks í göngu um bæinn
með blys og flugelda, og upp úr
1960 var kominn vilji í mannskap-
inn að fleiri tækju þátt svo hægt
væri að vera með álfadans, viki-
vaka, söng og hljóðfæraleik.
Tildrög þess drifkrafts má rekja til
40 ára afmælis Týs árið 1961 en þá
fóru 40 blysberar upp á fjall og varð
þá einnig aukning á nýliðum til að
halda áfram þátttöku þó að jóla -
svein arnir hafi haldið áfram að vera
þrettán. Þessir 40 blysfarar mynd -
uðu merki Týs uppi á Molda með
blysum sínum en upp frá því var
merki félagsins myndað með
ljósum á hverju ári.
Fleira nýtt, með gömlu ívafi, varð
til á þessum tíma. Fyrsta tröllið
varð til ásamt Grýlu og Leppalúða
en gert er ráð fyrir að það hafi verið
árið 1960. Tröllið var gert úr sjó-
belg, stórum kassa utan af þvotta -
efni, gömlum samfesting og
gærum. Tröllið var svo látið draga á
eftir sér hreppstjóra eða bónda. Það
hafði einmitt verið rætt um það
hvernig mætti auka á skemmtunina
á þrettándanum og þá gerðist þetta.
Eftir að tröllin hófu þátttöku sína þá
þurfti ekki að bíða lengi eftir komu
álfanna og púkanna.
Samkórinn í Vestmannaeyjum var
fenginn til að fara í hlutverk álf -
anna, að öllum líkindum árið 1962
og sáu þeir þá um álfasöngva, þjóð-
dansa og marseringar. Álfakóngur
og drottn ing sáu um forsönginn þar
sem þau sátu á vagni og jóla -
sveinarnir og hinir álfarnir fylgdu
eftir upp á völl. En upp á velli döns -
uðu og sungu álfarnir í kringum
brennuna á meðan lúðrasveitin
spilaði undir. Einhvern tíma fyrir
gos fór það svo að Samkórinn hætti
þátttöku sinni og krakkar tóku við
hlutverkunum.
Eins og til að gæta að jafnvægi
milli þess fallega og þess gróteska
þá urðu einnig til púkar. Púkarnir
komu fram á sjónarsviðið árið 1962
og voru þeir svartklæddir með hala
og sótugir í framan. Lengi vel voru
þetta strákar úr leikfimi og þóttu
setja mjög skemmtilegan svip á há -
tíðina þar sem þeir voru vel þjálf -
aðir í fimleikum. Viðvera púk anna á
íþrótta vellinum við Löngu lág hefur
þó verið stopul í seinni tíð.
Þó að púkarnir hafi ekki alltaf látið
sjá sig þá hefur viðvera jólasvein -
anna, álfanna og tröllanna, ásamt
Grýlu og Leppalúða, verið árviss
viðburður síðan á þessum árum,
1960-1962. Síðan hafa jólasvein -
arnir gengið niður Hána með blys
eftir að kveikt hefur verið á merki
íþróttafélagsins uppi á Molda. Um
það leyti sem jólasveinarnir hafa
verið komnir niður þá hefur
vagninn með tröll unum, ásamt
Grýlu og Leppalúða, lagt af stað í
skrúðgönguna. Skrúðgangan hefur
svo lagt leið sína upp á íþrótta -
völlinn við Löngulág þar sem
kveikt hefur verið upp í brennu og á
meðan hefur tónlist dunað meðan
álfar, púkar, jólasveinar og tröll
hafa arkað hring eftir hring á vell -
inum og heilsað upp á og hrellt
bæjarbúa. Flugeldum hefur svo
verið skotið á loft og í framhaldi af
því hafa allir haldið heim á leið.
Undirbúningur
Undirbúningur þrettándans hefst
þegar nefndin kemur saman í
byrjun desember en þá er hugað að
undirbúningi og skipt niður verk -
efnum. Nefndina skipa ein hverjir
fulltrúar þátttakenda úr undirbún-
ingshópum auk fram kvæmda stjóra
ÍBV, en þátttakendur skiptast enn
fremur í hópa eftir hlutverkum
sínum. Í dag eru til hópar trölla,
jólasveina, álfa, púka, skvettara og
svo er auðvitað áður nefnt skot-
gengi. Þessir hópar vinna allir að
sínum undirbúningi á ólíkum
stöðum og skipta sér lítið hver af
öðrum, svipað og hópar nemenda í
dimission menntaskóla. Þau sem
skipa nefndina eru því, ef svo má
segja, leiðandi í sínum hópi. Sá
hópur, sem mestu athyglina fær alla
jafna í skrúðgöngunni og við
brennuna, er hópur trölla og því
kaus ég að fylgjast að mestu með
undirbúningi þeirra.
Undirbúningur
í tröllasmiðju
Seinni part miðvikudagsins 4.
janúar 2012, þegar flestir voru búnir
í vinnu eða höfðu fengið leyfi frá
vinnu, kom ég í hina svo kölluðu
tröllasmiðju. Tröllasmiðjan er í
þeim hluta bæjar ins sem mikið er
um iðnaðarhúsnæði, sem jafnframt
er oftar en ekki tengt útgerð.
Tröllasmiðjan átti einmitt afdrep í
Veiðarfæragerðinni hjá þeim Gauja
Manga og Hallgrími Þórðarsyni. Þá
umbreyttist almennur vinnustaður í
hátíðarsvæði með því að þátttak-
endur tröllasmiðju komu þar fyrir
búningum sínum og leikur um. Þetta
húsnæði er hins vegar aðeins
geymsla fyrir það sem fylgir
þrettándanum.
Í tröllasmiðju eru tröllin og
vagninn, sem leiðir skrúðgönguna,
gerð klár. Á portinu fyrir framan
húsið var verið að setja upp hliðar
vagnsins en þegar inn var komið sá
ég að upp við alla veggi voru hausar
af tröllum og við hlið hvers hauss
var númeraður strigapoki sem
geymdi gærur, púða og festingar
sem fylgdu því trölli. Þar var Ævar
Þóris kominn, ásamt sínu fólki, að
sortera tröllin, hausana og búning -
ana, og huga að því hvort allt væri
til staðar og hvað þyrfti að laga og
endurbæta.
Mér virðist sem gerð tröllanna hafi
tekið einhverjum breytingum á
síðustu 50 árum. Þau hafa stækkað
og orðið létt ari. Fyrsta tröllið var
gert úr sjóbelg, kassa og gærum.
Síðar bættust við síldartunnur til að
hækka þá, fyrst úr viði og svo úr
plasti. Í dag eru þau oft úr stórum
papparörum, frauðplasti og gærum.
Gerð þeirra hefur þá ekki aðeins
breyst heldur hefur þeim fjölgað
gífurlega en þau voru kannski, að
sögn Obba, átta þegar hann byrjaði
árið 1975 en eru í dag áttatíu. Mis-
vel hefur oft gengið að fá efni í
tröllin og þá hafa menn stund um
leitað heim til sín til að redda sér.
Þannig eru til dæmi um að gardínur
hafi verið teknar niður og nýttar og
eitt sinn þegar gæruna vantaði þá
var pels klipptur niður, við lítinn
fögnuð frúarinnar, svo efniviðurinn
er oft fjölbreyttur. Það eru þó til
óskrifaðar reglur um hvernig tröll
eiga að líta út en Obbi segir:
„Þetta eru forynjur sko; þetta á að
vera [myndar afar lágt stríðsöskur]
ógeðslegt […]; þetta á allt að vera
einhvern veginn svona ýkt allt
saman sko […], stækkaðu nefið og
eyrun um helming sko...“
Til að geta tekið þátt í tröllunum
þarftu að vera orðinn svona 14-15
ára og til að koma inn í hópinn
þarftu annað hvort að byrja sem
aðstoðarmaður eða koma með þitt
eigið tröll tilbúið: Nýliðar fara sem
sagt út í kostnaðinn sjálfir til að
sýna fram á skuldbindingu. En eins
og bent var á hér að ofan þarf
búningurinn að fylgja ákveðnum
reglum. Eitt árið gerðist það að rétt
fyrir hátíðahöldin kom einhver með
tröll sem var Disn ey vera, eða
Shrek. Hann var vel gerður en alls
ekki í sömu ætt og þær forynjur
sem þarna voru saman komnar.
Honum var leyft að taka þátt fyrst
hann var þarna kominn og búinn að
leggja á sig vinnuna en næsta ár var
hann beðinn um að breyta tröllinu
allverulega.
Þrátt fyrir reglurnar eru nýjungar:
Ungu fólki í hóp tröllanna hefur
fylgt sú nýjung að í heim yfirnáttúr-
legra vera, er sækja til Eyja á þrett -
ándanum, eru nú drekar og þar að
auki hafa stafir, í ætt við stafi
galdramanna eða illmenna, verið að
aukast. Þessir nýliðar ólust upp við
sögur af Harry Potter og Eragon svo
drekar eru partur af þeirra yfirnátt -
úrulega ævintýraheimi sem skilar
sér svo inn í þessa sköpun þeirra.
Stafirnir eru svo kannski vísun í
Samantekt
JÚLÍUS INGASON
Eyjamenn eru stoltir af
hátíðahöldunum sínum
:: Kaflar úr BA-ritgerð Hrefnu Díönu Viðarsdóttur um þrettándann í Vestmannaeyjum
Hrefna Díana
Viðarsdóttir
Tildrög þess drifkrafts má rekja til 40 ára
afmælis Týs árið 1961 en þá fóru 40 blys-
berar upp á fjall og varð þá einnig aukning á
nýliðum til að halda áfram þátttöku þó að
jólasvein arnir hafi haldið áfram að vera
þrettán. ”