Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Page 6

Fréttir - Eyjafréttir - 19.12.2012, Page 6
6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 19. desember 2012 ° ° Fyrsta skóflustungan að nýrri fjögurra hæða viðbyggingu við Hótel Vestmannaeyjar var tekin síðast - liðinn föstudag að viðstöddum vinum og velunnurum eigenda hótelsins, þeirra Magnúsar Braga- sonar og Öddu Jóhönnu Sigurðar - dóttur. Það var einmitt Adda sem tók fyrstu skóflustunguna á voldugri gröfu og fórst það nokkuð vel úr hendi. Viðbyggingin verður samtals 1.000 fermetrar en í byggingunni verða 24 herbergi, þar af níu herbergi fyrir fatlaða. „Framkvæmdir hefjast strax á nýju ári en strákarnir hjá Steina og Olla ætla að byrja 3. janúar og það er stefnt á að framkvæmdum ljúki næsta haust. En hugsanlega getum við tekið neðstu tvær hæðirnar í notkun eitthvað fyrr,“ sagði Adda Jóhanna í samtali við Eyjafréttir. „Við erum búin að skoða þetta frá öllum hliðum og teljum að það sé markaður fyrir þessi herbergi sem við erum að bæta við. Alls verða þetta 43 herbergi og við getum tekið inn hjá okkur um 100 manns. Þar með fáum við tækifæri til að fara inn á markað fyrirtækja sem eru með starfsmenn sína í ferðalögum, sér - staklega þar sem við erum komin með þennan fína veitingastað hans Einsa kalda inn hjá okkur. Svo hefur líka verið mikil fjölgun ferðamanna og við fundum það í sumar að það er skortur á gistirými í Vestmanna - eyjum. Við erum bara bjartsýn og spennt fyrir framhaldinu.“ Adda segir að hótelið muni taka nokkrum breytingum í kjölfarið. „Við munum breyta nokkrum tveggja manna herbergjum í eldri byggingunni í einstaklingsherbergi þar sem þau eru minni. Nýju her - bergin eru mjög rúmgóð, 23 fer - metrar og því er vel hægt að bæta við einu aukarúmi þangað inn ef því er að skipta. Svo mun lobbíið færast aðeins til og við munum koma upp setustofu þar sem lobbíið er núna. Og svo verður auðvitað lyfta í hús- inu,“ sagði Adda Jóhanna að lokum. Jólatónleikar Kórs Landakirkju: Þetta ljós í skammdeginu logaði skært þetta kvöld Það hefur lengi verið tilhlökk un - ar efni þegar Jólatónleikar Kórs Landa kirkju eru á næsta leiti. Enda fátt sem lýsir betur upp á aðventunni þegar skammdegið hellist yfir land og lýð af hvað mestum þunga. Tónleikarnir á fimmtudaginn voru þar engin undantekning enda kórinn sjaldan verið betri og Erla Björg Káradóttir, óperusöngkona, stóð svo sannarlega fyrir sínu. Kitty Kovács, organisti, píanóleikari og kórstjóri, stjórnar eins og hershöfðingi og hefur fengið eiginmanninn, Balázs Stankowsky fiðluleikara, til liðs við kórinn. Bæði frábærir listamenn sem kunna þá list að ná því besta fram hjá þeim sem þau eru að vinna með. Það má segja að boðið hafi verið upp á þrenna tónleika í Safnaðar - heimilinu og Landakirkju þetta kvöld. Byrjað var í Safnaðarheimil- inu sem var þétt setið. Fyrst var það kórinn, síðan tóku við einsöngstón- leikar og næst létu Kitty og Balázs til sín taka á píanó og fiðlu. Seinni hlutinn var svo í kirkjunni sjálfri. Í kórnum er fólk á öllum aldri og er ánægjulegt að sjá ungt fólk sem er tilbúið að taka þátt í jafn krefj - andi verkefni á jólatónleikar Kórs Landa kirkju eru. Fjölbreytt lagaval hefur alltaf einkennt tónleika Kórs Landakirkju en það var sama hvort listafólkið spreytti sig á háklassísk - um verkum eða gömlu góðu jóla - lögunum, allir skiluðu sínu með glæsibrag. Gestir kunnu líka vel að meta það sem boðið var upp á og sjarmatröllið, Jarl Sigurgeirsson, kryddaði fyrri hlutann með skemmtilegum kynningum á milli laga. Þó að Landakirkja hafi ekki verið hugsuð sem tónleikahús er alltaf ákveðin helgi yfir þegar kór, undir - leikarar og söngvarar flytja okkur jólalögin og minna okkur um leið á að jólin eru handan hornsins. Þetta ljós í skammdeginu logaði skært þetta kvöld og hámarkið var óvenju tilkomumikið þegar Erla Björg og bassinn, Geir Jón Þórisson, sungu Heims um ból fyrir altarinu í skini kertaljósa sem þakklátir gestir héldu á. Glæsilegur endir. Þá er bara eitt eftir, takk og gleði- leg jól. Hefð er fyrir því að gestir og tónlistarmenn sameinist í söngnum Heims um ból í lok jólatónleikanna og varð engin breyting á því í ár enda ákaflega hátíðleg stund. Adda Jóhanna bar sig fagmannalega að þegar hún tók fyrstu skóflu - stunguna í síðustu viku Fjölskyldan saman á hótelinu. Frá vinstri: Friðrik, Daði, Adda, Magnús og Bragi. 23 herbergja viðbygging að rísa við Hótel Vestmannaeyjar: Teljum markað fyrir þessi herbergi :: Adda Jóhanna Sigurðardóttir og Magnús Bragason, eigendur hótelsins, bjartsýn á framhaldið Fræðslu- og menningar- ráð - Niðurstöður sam- ræmdra prófa 2012: Áhyggjur og ánægja Fræðslu- og menningarráð fjallaði á síðasta fundi sínum um niður - stöður samræmdra prófa 2012. Lýsti ráðið áhyggjum yfir þeim þáttum sem eru undir landsmeðal- tali en lýsir jafnframt ánægju með árangur sem náðst hefur í íslensku í 4. bekk og stærðfræði í 7. bekk. Bent var á að kostnaður vegna fræðslumála hafi aukist verulega, hlutfall menntaðra kennara við GRV aukist til muna sem eflt hefur faglegt starf. „Ár eftir ár mælast eldri bekkir GRV undir landsmeðal- tali. Verkefnum á borð við orð af orði og íþróttaakademíuna hefur verið ýtt úr vör til að reyna að spyrna við þessari þróun. Ráðið hvetur skólastjórnendur GRV til að halda áfram að fylgja eftir aðgerðaáætlun skólastjóra frá árinu 2011 og leita allra mögulegra leiða til að halda áfram að efla metnað í skólasamfélaginu og auka námsárangur með sérstökum áherslum á að viðhalda árangri í efri bekkjum. Þessa vinnu þarf að vinna í nánu samstarfi við m.a. kennara, fulltrúa foreldra og skólaskrifstofu. Ráðið felur jafn- framt fræðslufulltrúa að undirbúa viðhorfskönnun meðal kennara og foreldra um almennt skólastarf ásamt viðhorfum til samræmdra prófa,“ segir í ályktun fundarins. Fyrir fræðslu- og menningarráði lá erindi frá Hjallastefnunni, sem rekur Leikskólann Sóla, um leyfi til að fjölga börnum. Einnig er sótt um leyfi til að nýta húsnæðið sem dag- foreldradeild og að við tveggja ára aldur verði þau börn flokkuð sem al- menn leikskólabörn. Var því öllu hafn að. Í fundargerð segir að á seinustu árum hafi Vestmannaeyjabær lagt mikla áherslu á að auka framboð af leikskólaplássum. „Árið 2009 var fjöldi leikskólaplássa 170 en árið 2012 hafði þeim fjölgað um 51 og voru því 221. Slíkt kallar eðlilega á aukið fjárframlag enda hækkaði rekstrarkostnaður vegna leikskóla - mála á verðlagi ársins í ár úr 239 milljónum árið 2009 í 269 milljónir árið 2011,“ segir í fundargerðinni. Erindinu var hafnað því fjölgun á leikskólaplássum rúmast ekki innan nýsamþykktar fjárhagsáætlunar og því sé ekki hægt að verða við erind- inu. Jafnframt var óskað eftir heimild til að nýta húsnæði á Sóla sem dag- foreldradeild og þess að við tveggja ára aldur verði þau börn flokkuð sem almenn leikskólabörn. Við þessu taldi ráðið sig ekki heldur geta orðið þar sem slíkt myndi leiða til veru - legrar kostnaðaraukningar umfram nýsamþykkta fjárhagsáætlun ásamt því að hugsanlegt misræmi skapast í inntöku barna frá þeim reglum sem gilda hjá sveitarfélaginu. „Ráðið er aftur á móti tilbúið að skoða þá leið að Hjalli fái heimild Vestmanna - eyjabæjar til að reka dagforeldra - deild í húsnæði sínu að því gefnu að sá rekstur verði á sömu forsendum og hjá öðrum dagfor eldrum í Vest- mannaeyjum. Þar með talið að inn - taka barnanna á leikskóla verði á ábyrgð og undir stjórn Vestmanna - eyjabæjar rétt eins og er með börn hjá öðrum dagforeldrum í Vest - mannaeyjum.“ Fræðslu- og menningarráð: Hafnar beiðni Hjallastefnunn - ar um fjölgun barna á Sóla :: Líka ósk um að þar verði rekin dagforeldradeild ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrettir. is ”Við munum breytanokkrum tveggjamanna herbergjum í eldri byggingunni í einstaklingsherbergi þar sem þau eru minni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.