Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Page 9
°
°
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014
Sólveig Fríða um föður sinn Einar Gutt lækni:
Vinsæll og virtur læknir í Eyjum
:: Braust til mennta eftir erfið æskuár :: Kvaddi sjúklinga með því að klapp á öxlina
á þeim og segja: „Þetta lagast!“
Sólveig Fríða Einarsdóttir flutti
skemmtilegan fyrirlestur um
mann sem margir Eyjamenn
muna vel eftir, Einar Guttorms-
son lækni sem starfað hér um
áratugaskeið. Einar fæddist á
Arnheiðarstöðum í Fljótsdal 15.
desember 1901 en lést 12.
febrúar 1985. Hann starfaði í
Eyjum frá 1934 og til ársins 1973,
fyrst á sjúkrahúsinu og með
eigin læknastofu í kjallara
heimilis hans við Kirkjuveg.
Foreldrar Einars skildu þegar hann
var á tíunda ári og var honum og
systkinum hans komið fyrir hjá
frændfólki og vandalausum. „Þessi
reynsla átti eftir að marka allt líf
föður míns. Að verða fullgildur
matvinnungur innan við ellefu ára
aldur er hlutur sem nútíma fólk á
erfitt með að skilja, t.d. voru engar
barnabætur, námslán eða sam
félagsleg aðstoð, allt það sem okkur
þykir sjálfsagt í dag. Með mikilli
vinnuhörku og sjálfsaga ákvað hann
að brjótast til mennta,“ sagði
Sólveig Fríða um pabba sinn.
Einar lauk læknanámi 1932 frá
læknadeild Háskólans, sem var í
Alþingishúsinu. „Á kandídatsári
sínu fór hann fyrst til Blönduós,
síðan að Kristneshæli í Eyjafirði. Sú
ferð átti eftir að verða afdrifarík því
þar sá hann móður mína fyrst, 17
ára yngismey með berkla í fæti. Þó
að þráðurinn á milli þeirra hafi
slitnað um tíma er hann fór erlendis
til framhaldsnáms, kom hann aftur
norður 1935 til að vitja móður
minnar á Akureyri. Þessa ferð taldi
hann hafa verið sína mesta
happaferð.“
Mikil starfsorka
Eftir nám í almennum skurðlækn
ingum og fæðingarhjálp og röntgen
í Noregi, Danmörku og Þýskalandi
1934, kom hann til Vestmannaeyja
og varð fastráðinn sjúkrahússlæknir
16. október sama ár. Einar starfaði
síðan í Eyjum í tæp 40 ár, allt þar til
jörð opnaðist í eldgoginu 1973.
„Starfsorka pabba var gríðarleg. Á
sjúkrahúsinu skar hann upp og
gerði minniháttar aðgerðir fyrir
hádegi. Síðan fór hann á stofuna
sína sem var yfirleitt troðin út að
dyrum, síminn hringjandi og fólk
bankaði á gluggann til að fá afhenta
lyfseðla. Eftir það fór hann í
vitjanir um bæinn, jafnframt þurfti
hann lengst af að sinna þeim
neyðartilfellum sem komu upp.
Þetta þýðir að hann var á vakt 365
daga ársins. Ekki myndu læknar í
dag ráða sig upp á þessi kjör. Hann
kvaddi hvern sjúkling með því að
klappa á öxlina á honum og segja
„Þetta lagast!“. Greiðslutilhögun
var oftast eins og hann sagði „25 kr.
ef þú átt þær!“
Stofnaði minkabú
Einar fékkst einnig við eitt og
annað utan við læknastarfið, ýmis
trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið
og sat m.a. í bæjarstjórn. Þá var
hann stofnfélagi í Krabbameins
félagi Vestmannaeyja, einn
stofnenda Sparisjóðsins og
Golfklúbbs Vestmannaeyja. Einar
var svo gerður að heiðursborgara
Vestmannaeyja 14. febrúar 1969.
„Öllum þessum störfum sem hann
gegndi hefði hann þó ekki getað
sinnt nema með dyggri aðstoð
móður minnar.“
Börn Einars og eiginkonu hans,
Margréti Kristínu Pétursdóttur urðu
fimm talsins; Páll Jóhann flugstjóri,
f. 1937 látin 2. ágúst 2008,
Guttormur kerfisfræðingur, fæddur
1938, Pétur leikari, fæddur 1940, ég
Sólveig Fríða ljósmóðir, fædd 1945
og Sigfús doktor í líffræði, fæddur
1951.
Viðurnefnið „Gutt“
„Á meðal Eyjamann fengum við
systkinin viðurnefnið „ Gutt" á eftir
nöfnum okkar,“ bætti Sólveig Fríða
við brosandi og bætti því við að
fólk hefði átt það til að hringja heim
til hennar og þegar móðir hennar
svaraði, hefði fólk ávarpað hana
sem frú Gutt, því einhverjir héldu
að um ættarnafn væri að ræða. Hún
hefði þá lagt á með það sama.
„Eina konu vil ég sérstaklega
minnast á, en það er Selma
Guðjónsdóttir yfirhjúkrunarkona.
Hún veitti föður mínum ómetanlega
aðstoð í starfi hans sem lækni, að
öðrum ólöstuðum,“ sagði Sólveig
Fríða og bætti við að lokum:
„Kynslóðin sem er að hverfa lagði
grunninn að því þjóðfélagi sem við
búum við í dag. Til þess þurfti hún
að færa margar fórnir. Það er okkar
sem á eftir koma að halda minningu
þeirra í heiðri.“
Halldór Gunnlaugsson Axelsson,
barnabarn Halldórs Gunnlaugs-
sonar, læknis í Vestmannaeyjum
fór yfir ævi pabba síns. Umfjöll-
unina byggði hann á grein sem
Jóhann Gunnar Ólafsson
skrifaði í desemberblað Fylkis
árið 1977. Halldór lifði stutta
ævi en vann dag og nótt. Hann
drukknaði 49 ára gamall eftir 18
ára starfsævi í Vestmanna-
eyjum.
Halldór var fæddur á Skeggjastöð
um á Langanesströndum og voru
foreldrar hans séra Gunnlaugur Jón
Ólafur Halldórsson prestur þar og
eiginkona hans Margrét Andrea
Luðvigsdóttir Knudsen. Hann hélt
1897 til Kaupmannahafnar til að
læra læknisfræði og tók lokapróf í
þeim fræðum 1903. Fyrst um sinn
starfaði hann á Amtssjúkrahúsinu á
Friðriksbergi og Fæðingarstofnun
inni en þegar til Íslands kom, var
hann ráðinn aðstoðarlæknir á
Akureyri. 1905 var hann svo
skipaður héraðslæknir á Hornafirði
en tók ekki við því embætti og síðar
sama ár var hann gerður að
héraðslæknir í Rangárhéraði. Ári
síðar var honum veitt héraðslæknis
embættið í Vestmannaeyjum.
Viðbrigði að koma til Eyja
„Það voru mikil viðbrigði fyrir
Halldór að koma til Eyja frá
Akureyri og Rangárvallasýslu. Í
Eyjum var þá 841 íbúi og allt var í
hinu forna fari. Húsakynni léleg og
heilbrigðisástand fremur bágborið.
Berklaveikinn fór þá yfir eins og
logi um akur og hörgulsjúkdómar
voru algengir. Það er sagt að
Halldór hafi lýst einkennum
mannlífsis með þremur orðum,
útgerð – aðgerð ígerð. Handar
mein voru mjög algeng, Vatns
skortur mikill, engar uppsprettur,
fiskiþvottur með sjó úr höfninni og
mjólkurskortur mikill.“
Á þessum árum var vélbátaútgerð
að hefjast í Vestmannaeyjum með
tilheyrandi velmegun og samfélags
legum breytingum. Á vetrarver
tíðum bættust milli 400 og 500
manns við íbúatöluna og því nóg að
snúast hjá héraðslækninum. „Þegar
sjúkrahúsið var ekki starfrækt þurfti
Halldór oft að taka erlenda
sjúklinga til umönnunar á heimili
sitt og útvega legurými fyrir þá hjá
öðrum. Hinn mikli innflúensufar
aldur 1918 þegar nærri allir
Vestmannaeyingar veiktust svo til
samtímis, reyndi mikið á þolrifin.
Og í taugaveikifaraldrinum 1923
varð hann að koma upp sjúkrastof
um í samkomuhúsi Góðtemplara í
nokkrar vikur.“
Halldór tók einnig virkan þátt í
samfélaginu, var m.a. í bæjarstjórn
og barðist fyrir bættu hreinlæti og
að tryggja góða mjólk og mjólkur
afurðir. „Hann gerði uppdrátt að
kafbát sem átti að draga neðan
sjávar gegnum brimgarðinn frá
Landeyjasandi og út í eyjar með
mjólk og mjólkurafurðir en þetta
voru hugsjónir sem ekki voru
framkvæmanlegar,“ sagði Halldór.
Heiðraður af Frökkum
Eitt af hlutverkum héraðslæknis var
að fara í skip sem lágu utan við Eiði
til sóttvarnarstarfa og voru þessar
ferðir hinar mestu svaðilfarir, oft í
misjöfnum veðrum. Í einni slíkri
ferð, 16. desember 1924 drukknaði
Halldór læknir, ásamt átta mönnum.
„Í ýtingunni tókst svo hrapalega til
að bátinn fyllti og maraði hann
borðstokkafullur af sjó út úr
brimgarðinum undan vindi. Fáir
voru í fjörunni þegar ýtt var frá
landi og gátu þeir engum björgunar
tilraunum komið við sakir þess að á
Eiðinu var enginn bátur eða tæki.
Báturinn mun hafa hálfsokkið.
Mennirnir losnuðu allir við hann
nema einn maður sem hélt sér í
þóftu og var honum einum bjargað.
Nokkru síðar tóku líkin að berast
upp í fjöruna en um fjórar klukku
stundir liðu þar til síðasta líkið barst
upp á ströndina.“
Halldór læknir naut mikilli
vinsælda í Eyjum og var m.a.
heiðraður af sýslunefnd 1915 og
einnig veittu Frakkar honum
heiðursmerki. Þá reistu Vest
mannaeyingar veglegan minnis
varða á leiði hans. „Það er mikil
eftirsjá í mikilhæfum mönnum sem
fara svo um aldur fram. Halldór
læknir á Kirkjuhvoli hafði um nærri
tvo áratugi sett svip sinn á Vest
mannaeyjakaupstað, og látið að sér
kveða í bæjarfélaginu á eftir
minnanlegan hátt. Fjölmargir áttu
honum gott upp að inna og öllum
var hann minnisstæður sökum
lækninga, geðprýði og gamansemi.
Ungir og gamlir minntust hans með
söknuði. Halldór og Anna kona
hans eignuðust fjögur börn: Ólaf
Þorstein lækni, Gunnlaug Pétur
Kristján, arkitekt, Axel Valdemar
heildsala, og Ellu Vilhelmínu
kaupakona,“ sagði Halldór að
lokum um afa sinn
Halldór Gunnlaugsson Axelsson um afa sinn og nafna, Halldór Gunnlaugsson lækni:
Naut mikilla vinsælda í Eyjum
:: Lést aðeins 49 ára gamall í sjóslysi utan við Eiði
Halldór Gunnlaugsson, læknir ásamt fjölskyldu sinni fyrir utan húsið
Kirkjuhvol. Frá hægri: Halldór og hann heldur á syni sínum Gunn-
laugi, frú Anna Gunnlaugsson með soninn Ólaf. Aðrir eru óþekktir.
Einar Guttormsson með fjölskyldunni. Frá vinstri: Páll Jóhann, Sólveig Fríða, Einar, Sigfús, Margrét,
Pétur og Guttormur Pétur.
Halldór Gunnlaugsson Axelsson.