Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Page 13
°
°
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014
„Júníus Meyvant er listamanns-
nafn Vestmannaeyingsins
Unnars Gísla Sigurmundssonar.
Sem ungur maður var Unnar
mjög frjálslegur í anda og komst
aðeins tvennt að í hans lífi, þ.e.
myndlist og hjólabretti. Annað
slagið fann hann fyrir því að
tónlistargyðjan togaði í hann og
velti hann því oft fyrir sér hvort
hann ætti ekki að demba sér í
það að læra á hljóðfæri. Á yngri
árum var hann orkubolti mikill
og óstýrilátur og fljótlega
meinaður aðgangur að tónlistar-
skólanum og þurfti tímabundið
að leggja drauma sína um að
verða hljóðfæraleikari á hilluna.
Fljótlega eftir að Unnar komst
á þrítugsaldurinn færðist ró yfir
dýrið sem bjó innra með honum
og tók hann í hendur munaðar-
lausan gítargarm í húsi foreldra
sinna og fyrr en varði var hann
farinn að semja lög. Svo mikil
var sköpunargleðin að Unnar
upplifði margar andvökunætur í
öngum sínum yfir öllum
lagahugmyndum sínum og lögin
hrönnuðust upp. Laglínurnar
leituðu til hans nótt sem nýtan
dag og úr varð að Unnar tók upp
listamannsnafnið Júníus
Meyvant.
Tónlist Júníusar er fullveðja og
tilfinningaríkt þjóðlagapopp sem
er í senn tímalaust og kunnug-
legt. Alúðlegar útsetningar hans
láta mann á köflum líða eins og
maður sé staddur undir þykku
ullarteppi við arineld í kofa hátt
uppi í fjöllum eða í hina
höndina liggjandi á funheitri
sandströnd á suðlægum
slóðum.“
Þannig lýsir Unnar Gísli sér og
tónlist Júníusar Meyvants á
Facebook síðu hans en hann er einn
þeirra listamanna sem fram kemur á
tónlistarhátíðinni Icelandic
Airwaves dagana 5. 9. nóvember.
Við heyrðum aðeins í kappanum
um tilurð Júníusar.
Auðveldara fyrir
útlendinga
„Ég var nú bara að hugsa um
eitthvað flott íslenskt nafn sem gæti
virkað allstaðar í heiminum og datt
niður á þetta nafn Júníus Meyvant.
Fannst það auðveldara fyrir
útlendinga að bera fram en Unnar
Gísli. Svo var ég í miklum lúðra
pælingum á þessum tíma og fannst
þetta mjög lúðralegt nafn,“ sagði
Unnar Gísli aðspurður um tilurð
nafnsins.
Þrír bræður á sviði
„Ég er svo sem enn mikið í
lúðrunum og verða þeir meðal
annars á Airwaves. Þar verða þrír
blásarar með mér með baritónsax,
básúnu og trompet svo verður ein
fiðla. Reyndar spilar barítónleika
rinn einnig á fiðlu þannig að ég get
líka haft tvær fiðlur. Síðan verð ég
með tvo bræður mína með mér á
sviði, þá Guðmund Óskar og Ólaf
Rúnar. Þriðji bróðirinn, Einar, er
því miður í Vestmannaeyjum núna
þannig að ég get ekki misnotað
hann, annars væri hann pottþétt
með líka.“ Unnar Gísli er sonur
hjónanna Sigurmundar Gísla
Einarssonar og Unnar Ólafsdóttur
og hefur því, eðli málsins sam
kvæmt, verið mikil tónlist á
heimilinu. „Í grunninn er bandið
tiltölulega fast skipað, þetta verður
oftast fimm manna hljómsveit en á
stærri viðburðum eins og Airwaves
reynir maður að hafa þetta aðeins
meira grand. Ég geri líka mikið af
því að spila bara einn með gítarinn.
Ég var til dæmis núna að koma frá
Seattle þar sem ég spilaði á KEXP
sem er stór útvarpsstöð þar og
stundar það að taka upp hljóm
sveitir og listamenn live og birta
svo einnig á youtube. Þar var ég að
vinna með þrusu bandi frá Seattle,
Cadaldo. Annars er ég búinn að
vera mest í upptökum að undan
förnu en fer svo reyndar til
Hollands á Eurosonic í janúar.“
Eurosonic Noorderslag er mikill
tengslamyndunarvettvangur fyrir
evrópska tónlistarbransann og hefur
tekið þátt í að kynna nýja upprenn
andi tónlistarmenn fyrir tónlistar
heiminum þar. Íslensk tónlistaratriði
sem leikið hafa á hátíðinni hafa
mörg fengið fjölda bókana á
tónlistarhátíðir og tengsl við
lykilaðila sem hjálpa við að koma
atriðunum á framfæri. Uppselt er á
hátíðin á hverju ári, og hana sækja
3.200 fulltrúar úr tónlistarbrans
anum, 33.000 gestir, 300 tónlistarat
riði og samhliða tónlistarhátíðinni
er rekin tónlistarráðstefna með 150
pallborðsumræðum, fyrirlestrum,
viðtölum, vinnustofum, partíum og
fundum. En Ísland verður fókus
þjóð þar þetta árið. Þetta er því
mikið tækifæri til frekari frama
erlendis, en er það eitthvað sem
togar í okkar mann?
„Já, markaðurinn er náttúrulega
mikið stærri heldur en hérlendis og
það er mikið „hæp“ fyrir íslenskri
tónlist í augnablikinu. Sérstaklega
þegar þú syngur á ensku. Enskan er
einhvern veginn bara auðveldari
viðureignar heldur en íslenskan.
Hún er svo rík af orðum að þú getur
nánast bullað bara eitthvað og það
hefst. Ég á samt pottþétt eftir að
gera eitthvað á íslensku einhvern
tímann. Það þarf bara að vera svo
rosalega vel gert til þess að mér
finnist það virka. Hún er erfið
íslenska tungan.“
Fyrsta lagið sem Júníus Meyvant
sendi frá sér, Color decay, kom út í
maí og fékk gríðarlega góðar
viðtökur hér á landi og rauk beint á
topp vinsældarlista útvarpsstöðv
anna. Einnig hefur það verið spilað
töluvert erlendis. „Ég hef fengið
spilun hér og þar út í heimi. Það er
alltaf einhver að senda mér skilaboð
um að hafa heyrt í mér í útvarpinu
til að mynda í Californiu, Texas og
víðar. Þannig að þetta er svona að
dreifast hægt og bítandi. En svo fer
þetta náttúrulega ekkert almenni
lega af stað fyrr en maður fer út og
fylgir þessu eftir og er mikill
þrýstingur frá umboðsmanni mínum
að gera það.“
Plata í byrjun árs
Hvenær er von á nýju lagi frá þér?
„Það er eitthvað meira á leiðinni og
ætti að koma út núna í kringum
Airwaves. En þetta er alltaf basl
þegar maður er svona „soundperri“
eins og ég er. Maður er hálf
hugsjúkur og geðveikur í stúdíóinu
og er í rauninni aldrei ánægður en
verð á endanum sáttur og verð bara
stoppa þar. Gott er bara ekki nóg,
þetta verður að vera frábært. Annars
er ég búinn að taka upp grunna að
einum ellefu lögum og reikna ég
með að gefa út tíu til tólf laga plötu
í byrjun næsta árs.“
Fyrir þá sem ekki geta beðið eftir
plötunni þurfa ekki að örvænta því
Unnar Gísli kemur til með að flytja
megnið af þessum lögum á
Icelandic Airwaves. „Þetta verður í
fyrsta sinn sem ég spila þessi lög
live með bandi, þannig að það er þó
nokkur spenningur kominn í mann.
Við erum að spila sex sinnum,
tvisvar á „onvenue“, í Gamla Bíói
miðvikudaginn 5. nóv kl. 20:50 og í
Norðurljósasal Hörpu laugardaginn
8. nóv kl. 21.00 en þá er ég með
hljómsveitina alla með mér. Síðan
kem og fjórum sinnum á „off
venue,“ tvisvar sinnum verð ég með
band með mér á Kex hostel
fimmtudaginn 6. nóv. kl. 16.00 og
The Laundromat Café föstudaginn
7. nóv. kl. 17. Síðan verð ég aleinn
með gítarinn á dvalar og hjúkr
unarheimilinu Grund miðvikudag
inn 5. nóv. kl. 10.30 og í Lands
bankanum Austurstræti
laugardaginn 8. nóv kl. 15.00. Þá
tek ég að miklu leyti önnur lög en
með bandinu.“ Það ætti því enginn
að þurfa að missa af Unnar Gísla
eða Júníusi Meyvanti sem í honum
vilja heyra.
Hvenær er von tónleikum í
Vestmannaeyjum?
„Vonandi bara sem fyrst, það væri
gaman að gera eitthvað í desember.
Trommarinn minn er að fara til
Kúbu núna strax eftir Airwaves að
læra betur á kóngur og kemur aftur
í byrjun desember. Ég myndi þá
vilja gera eitthvað flott úti í Eyjum,“
sagði Unnar Gísli að lokum og
grínast með aðspurður hvort hann
fái ekki bara foreldrana með sér.
„The Simmsons,“ segir hann og
hlær.
Þarna er bráðefnilegur tónlistar
maður á ferðinni sem vert er að
fylgjast með og hvet ég fólk til að
gera sér ferð á tónleika hans ef þeir
mögulega geta. Einnig er hægt að
hlýða á tvö laga hans í sérstakri
Airwaves upphitun á vef Lands
bankans http://www.landsbankinn.
is/icelandairwaves/.
Gott er bara ekki
nóg, þetta verður að
vera frábært
:: segir Unnar Gísli Sigurmundsson öðru nafni Júníus Meyvant
:: Kemur fram sex sinnum á Airwaves helgina 5.-9. nóv.
Hinn landsþekkti söngvari og
leikari Helgi Björnsson er að
fagna 30 ára söngafmæli um
þessar mundir, en það eru 30 ár
síðan fyrsta hljómplatan kom út
með þessum ástsæla söngvara,
en það var Grafík - Get ég tekið
cjéns sem innihélt m.a. lögin
Mér finnst rigningin góð, 16 og
Þúsund sinnum segðu já. Helgi
hefur fagnað þessum tímamót-
um með 30 tónleikum víðsvegar
um landið undir heitinu Kvöld-
stund með Helga Björns. Nú er
röðin komin að okkur Eyja-
mönnum og verður Helgi á
Háaloftinu á fimmtudagskvöld.
Eyjafréttir heyrðu í Helga í
gærkvöldi, skömmu áður en hann
steig á svið á Bifröst. „Þetta eru
tónleikar númer 26 í þessari
tónleikaferð sem hefur staðið yfir í
fimm vikur. Ég er semsagt á Bifröst
í kvöld, Hvolsvöllur á miðvikudag,
Vestmannaeyjar á fimmtudag,
Flúðir á föstudag og svo enda ég
tónleikaferðina í Reykjavík á
laugardag.“
Þannig að þetta er vertíð hjá þér,
eins og svo mörgum hér í Eyjum?
„Það má kannski segja það. En
fyrst og fremst er þetta auðvitað
tónleikaferð þar sem ég fagna 30
ára starfsafmæli. Í ár eru 30 ár
síðan fyrsta platan sem ég tók þátt í,
Get ég tekið cjéns með Grafík þar
sem var að finna Rigninguna, 16 og
fleiri smelli. Svo rekjum við okkur
áfram ferilinn, SSSól, Reiðmennina
og allt það sem ég hef verið að
gera,“ sagði Helgi.
Tónleikarnir eru með dálítið öðru
sniði en Helgi hefur verið þekkt
astur fyrir, því hann kemur fram
með gítar og hefur sér til stuðning
Guðmund Óskar Guðmundsson,
sem einnig leikur á gítar. „Þetta eru
rúmlega tveggja tíma tónleikar með
spjalli á milli laga þar sem ég segi
sögur af ferlinum. En það er rétt,
þetta er öðruvísi en ég hef verið að
gera. Við erum tveir á sviðinu með
sitthvorn kassagítarinn en Gummi
grípur líka í rafmagnsgítarinn hér
og þar. Þetta verður mjög skemmti
legt, ég get lofað því.“
Tónleikarnir fara fram á Háaloft
inu á fimmtudagskvöld og hefjast
kl. 21.00 og er forsala hafinn í
Tvistinum.
Helgi Björns fer
yfir 30 ára feril á
tónleikum á morg-
un á Háaloftinu:
Þetta
verður
skemmti-
legt, ég
lofa því
SæÞÓr ÞorBJarnarSon
sathor@eyjafrettir.is
Síðan verð ég með tvo bræður mína með
mér á sviði, þá Guðmund Óskar og Ólaf
Rúnar. Þriðji bróðirinn, Einar, er því miður
í Vestmannaeyjum núna þannig að ég get
ekki misnotað hann, annars væri hann
pottþétt með líka.”