Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2016, Síða 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. janúar 2016
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
>> Smáauglýsingar
Landakirkja
Fimmtudagur 7. janúar
Kl. 20.00 Æfing, Kór Landakirkju.
Sunnudagur 10. janúar
Kl. 11.00 Barnaguðsþjónusta með
miklum söng, sögu, leik og
lofgjörð.
Kl. 13.00 Helgistund í Stafkirkjunni
á þrettánda.
Kl. 20.00 Fyrsti fundur ársins hjá
Æskulýðsfélagi Landakirkju/
KFUM&K í Safnaðarheimlinu.
Mánudagur 11. janúar
Kl. 13.30 Fermingarfræðsla
Kl. 14.30 Fermingarfræðsla
Kl. 17.00 Kirkjustarf fatlaðra.
Kl. 20.00 Tólf spora andlegt
ferðalag. Framhaldshópur
Þriðjudagur 12. janúar
Kl. 13.45 Fermingarfræðsla.
Kl. 14.00 STÁ (1.-3. bekkur)
Kl. 16.30 NTT (4. og 5. bekkur)
Kl. 16.30 LK-Movie (6. og 7.
bekkur)
Kl. 20.00 Gídeon fundur
Kl. 20.00 Samvera hjá Kvenfélagi
Landakirkju
Miðvikudagur 13. janúar
Kl. 10.00 Bænahópur
Kl. 10.00 Kaffistofan
Kl. 17.30 Kyrrðarbæn
Kl. 19.30. OA fundur í Safnaðar-
heimilinu.
Viðtalstímar presta Landakirkju eru
í Safnaðarheimilinu alla virka daga
milli 11.00 og 12.00. Vaktsími er
488 1508.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Biblíulestur og bænastund,
Höldum áfram með Hebreabréfið.
Sunnudagur kl. 13:00
Samkoma. Guðni Hjálmarsson
prédikar, lifandi söngur, kaffi og
notalegt spjall á eftir.
Mánudagur til laugardags
kl. 20:00 Bænavika, biðjum fyrir
landi, þjóð og fl.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Væri ekki ónýtt að
drekka eina rauðvín
með salvador Dalí
Í miðri jólaösinni í enda desember
fór fram skákþing Vestmannaeyja.
Hinn gamalkunni skákmaður, stefán
gíslason, sigraði og er því skák-
meistari Vestmannaeyja 2015.
stefán hefur lengi teflt með
Taflfélaginu og tekið þátt í flestum
mótum þess síðustu áratugi, en
þetta er í fyrsta sinn sem hann
hlýtur hinn eftirsótta titil. stefán
hlaut 4 vinninga af 5 mögulegum
og varð einn efstur á skákþinginu.
stefán er því Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Stefán Gíslason.
Fæðingardagur: 6. janúar 1950.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Makalaus í augnablik-
inu að minnsta kosti, en bý með
kettinum Góða Dátanum Svejk.
Uppáhaldsmatur:
Piparsteik a la Pálmi Lór.
Uppáhalds vefsíða: https://www.
facebook.com/ArtGuide/?pnref=-
story
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Góð gömul Blues lög eru
toppurinn.
Aðaláhugamál: Skák, menning og
list.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Það væri ekki ónýtt að drekka eina
rauðvín með Salvador Dalí og
Monulísu.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Tæland.
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Gamanþættir og vísindaþættir.
Hefur þú stundað skák lengi?
Lærði mannganginn af pabba um 5
ára aldur, en fór ekki að tefla fyrir
alvöru fyrr en 12 ára.
Hvað er það skemmtilegasta við
skákina? Félagsskapurinn og
skákbrögðin á þeim hvítu og svörtu
reitum.Stefán Gíslason
er Eyjamaður vikunnar
Íbúð til leigu
Lítil stúdíóíbúð til leigu. Hentar
fyrir einn einstakling, laus í janúar.
Uppl. í s. 698-2993
-------------------------------------------
Íbúð óskast
Lítil fjölskylda óskar eftir 3-4
herbergja íbúð til langtímaleigu sem
fyrst. Nánari upplýsingar í síma 665
9014.
-------------------------------------------
Til leigu
2ja herbergja íbúð til leigu að
Illugagötu 7, jarðhæð, laus strax.
Einnig til leigu tvö herbergi. Hjá
sama aðila fást gefins túbusjónvörp.
Uppl í s.899-2582, Árný
-------------------------------------------
Stúlku vantar í þrif
Ég er öryrki og vantar stúlku í þrif
einu sinni í viku, til bráðabirgða.
Uppl. í s.893-4016.
Óskar Ísak Brynjarsson
fæddist þann 12. apríl 2015.
Foreldrar hans heita Brynjar
Ólafsson og Ragnheiður Lind
Geirsdóttir. Þau eru búsett í
Kópavogi.
nýr Eyjamaður
Jólin eru senn á enda og við tekur
frábær fjölskylduhátíð sem allir
bíða eftir og þá sérstaklega börnin,
Þrettándagleðin. Flest börn eru
spennt yfir þeim furðuverum sem
þá mæta, vinum sínum jólasvein-
unum og Grýlu og Leppalúða og er
spennan yfirþyrmandi hjá flestum
Við erum einstaklega heppin að
hafa jólaendinn svona frábæran eins
og hann er. Hátíðin er einstök og
setur skemmtilegan svip á menn-
ingu Vestmannaeyja. Fólk flykkist
ofan af landi til að sjá og upplifa
þetta kvöld, kveðja jólasveinana
sem komu og gáfu flestöllum
börnunum eitthvað fallegt í skóinn,
sjá Grýlu og Leppalúða og vona að
þau taki ekki einhvern með sér upp
í fjall. Öll tröllin eru hræðileg en
samt svo spennandi að hitta. Já það
langar öll börnin að koma við,
labba með og tala við þessa
rauðklæddu karla, ljótu tröllin og
grimmu Grýlu. Hinum megin við
bandið standa mörg hundruð börn
og bíða spennt eftir að einhver af
þessum fígúrum labbi framhjá þeim
og heilsi þeim, klappi þeim á
kollinn og TAKI eftir þeim.
Ég á sjálf þrjár stelpur sem bíða
spenntar og hræddar eftir eftir-
tektinni. Alltaf eru einhver börn
sem fá að labba með jólasveinunum
og einhverjum tröllum en stað-
reyndin er sú að það virðist bara
vera í boði fyrir suma, sem mér
finnst mjög skrítið og velti því fyrir
mér hvort hátíðin sé ekki fyrir alla.
Erum við að kenna börnunum okkar
að sumir eigi skilið að vera með og
leiða jólasveininn en aðrir ekki?
Hvernig á að útskýra fyrir 4 - 9 ára
barni að það megi ekki fara hinum
megin við bandið, að það sé
bannað, og svo horfir það á besta
vininn hinum megin við bandið að
leiða tröll eða jólasvein? Eða þá
börnin sem standa í hnapp við
bandið og eru svo óheppin, já ég
segi bara óheppin, að við hliðina á
þeim stendur einhver þekktur
einstaklingur eða sonur/dóttir
þekkts einstaklings og öll tröllin,
jólasveinar, Grýla og Leppalúði
koma og heilsa þessum einstakling
eins og hann standi bara aleinn
þarna og enginn í kring og sjá ekki
að það er fullt af börnum sem
standa með eftirvæntingu í augun
eftir að fá smá athygli frá þessum
furðuverum. Hin börnin sperrast
upp og bíða eftir klappi, halló-i eða
einhverju, en ekkert kemur og
tröllið gengur framhjá án þess að
líta við öðrum börnum en þeim sem
þau þekkja og hafa jafnvel heilsað
þeim með nafni, djókað í þeim eða
gert eitthvað annað sem telst
sniðugt. Ég veit alveg að tröllin
þekkja suma betur en aðra en við
verðum að gæta þess að þau upplifi
ekki þennan mismun og þurfi ekki
að velta því fyrir sér af hverju alltaf
er verið að atast í vininum eða
kallinum sem þau lentu við hliðina
á, og þeim alltaf heilsað en svo er
ekki litið við þeim. Að þeim finnist
þau ekki utanveltu af því að vissir
mega bara labba inn á svæðið og
leiða jólasveininn, en ekki þau. Ég
hef bannað mínum að fara inn á þar
til eitt árið að ég ákvað að leyfa
þeim að fara inn á, þar sem fleiri
voru inni á. Um leið var komið
með þau strax til baka og sagt að
það væri ekki leyfilegt að fara inn
fyrir bandið en á meðan voru
fjölmörg börn inni á svæðinu.
Mig langar að njóta þrettándans
með börnum mínum og fjölskyldu.
Mig langar að þurfa ekki að banna
þeim eitthvað sem á að vera bannað
en aðrir komast upp með að gera.
Mig langar að sama gangi yfir öll
börn sem koma, að upplifa gleðina
sem fylgir Þrettándanum. Auðvitað
eru ekki allir sem vilja fara inn fyrir
bandið en ef það á að leyfa einum,
leyfið þá öllum. Það hlýtur að vera
hægt að koma því við að þeir sem
vilja fái kannski að fara einn hring
með jólasveininum eða smá spöl,
bara svo þau standi nú ekki og suði í
foreldrunum um að fá að fara inn
fyrir, þannig að við þurfum ekki að
koma með einverjar fáránlegar
afsakanir fyrir því af hverju þau megi
ekki fara inn á svæðið en öðrum sé
það leyfilegt. Það þarf svo lítið til að
gleðja blessuð börnin, bara eitt klapp
á kollinn eða eitt HALLÓ.
Því langar mig að biðla til allra
þeirra sem komið geta skilaboðum
til jólasveinanna, tröllanna, Grýlu
og Leppalúða að það eru svo mörg
börn sem bíða og bíða eftir smá
eftirtekt, klappi á kollinn eða smá
stríðni. Ég hef heyrt að sumir hafa
farið heim með tárin í augunum af
því að jólasveinninn heilsaði ekki
eða að tröllið tók ekki eftir þeim í
öll þessi skipti sem þau fóru
framhjá en heilsuðu hins vegar
fullorðna manninum sem stóð við
hliðina á þeim eða jafnvel bara
besta vininum sem þau voru með,
til þess að njóta Þrettándans.
Spennan sem hafði magnast upp
fyrir þessum furðuverum varð að
engu, þau fóru svekkt heim og voru
jafnvel hálf fúl út í mömmu og
pabba fyrir að leyfa þeim ekki að
fara inn á svæðið. Er það ósk mín
að þetta verði lagað, svo að öll börn
fái að njóta þess sem Þrettándinn
býður upp á. Það ætti ekki að vera
mikið mál að laga þetta, bara ef
viljinn er fyrir hendi.
Með ósk um gleðilegt nýtt ár til
ykkar allra og tilhlökkun til
Þrettándans.
Salóme Ýr Rúnarsdóttir.
salóme Ýr
rúnarsdóttir
Leyfum öllum börnum
að njóta Þrettándanns