Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2016, Side 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júní 2016
Pæjumót ÍBV og TM fór fram í
síðustu viku þar sem komu saman
lið úr fimmta flokki kvenna og
kepptu sín á milli um níu bikara.
Í ár voru það 76 lið frá 28
félögum og í allt voru þetta um
800 stelpur sem tóku þátt í
mótinu með þjálfurum og
farastjórum.
Að sögn Dóru Bjarkar Gunnars-
dóttur, framkvæmdarstjóra ÍBV
gekk mótið vel fyrir sig og gestir
mótsins fóru allir glaðir í bragði
heim eftir vel heppnaða daga í
Eyjum, þó veðrið framan af hefði
mátt vera betra.
,,Mótið gekk mjög vel en hér voru
28 félög sem spiluðu tæplega 400
leiki á þrem dögum. Til þess að
svona stórt mót gangi upp þarf
margar hendur, komu 70 manns að
því á hverju degi í að skammta mat,
dæma, sinna gæslu í skólum og
starfsfólk hér í Týsheimilinu var á
fullu. Það er því óhætt að segja að
það sé ekki hægt að halda mót sem
þetta nema með því að allir leggist
á eitt. Foreldrar í yngri flokkum
félagsins hafa á síðustu árum komið
töluvert meira að mótunum okkar
en var. En fyrirtækin í Vestmanna-
eyjum hafa verið okkur hjálpleg og
lána starfsfólk sitt til okkar í
dómgæslu og er það ómetanlegt,”
sagði Dóra Björk.
Hæfileikakeppninn ávallt
hápunkturinn
Margrét Lára Viðarsdóttir setti
mótið fyrir hönd TM og ÍBV og
talaði við stelpurnar um mikilvægi
liðsheildar í hópíþróttum og að
hvert lið þurfi að hugsa vel um sína
liðsheild. Einnig var Margrét Lára
með snapchat fyrir TM á fimmtudag
og föstudag og vakti það mikinn
áhuga hjá stelpunum.
Fyrstu leikirnir fóru svo fram
snemma morguns á fimmtudag og
var leikið langt fram eftir degi. Á
milli leikja gerðu liðin sér glaðan
dag og fóru í bátsferðir, sund og
fleira. Hápunktur fimmtudagsins að
mati flestra keppenda var svo
hæfileikakeppnin á kvöldvökunni.
Þar kom hvert lið með heimatilbúið
skemmtiatriði og var gaman að sjá
hversu fjölbreytt og frumleg atriðin
voru.
,,Í ár voru stelpurnar í Selfoss-
liðinu með frumlegasta atriðið og
Fylkir vann keppnina og fengu þær
í verðlaun fyrir þetta ávaxtakörfur
frá Ingimar í Vöruval. Þetta er
árvisst hjá okkur og lukkast alltaf
vel,“ sagði Dóra Björk.
Vindasamur föstudagur
Föstudagurinn var tekinn snemma í
töluverðu roki, en stelpurnar létu
það ekki á sig fá. Landsleikur TM
mótsins var svo á sínum stað, þar
sem landslið og pressulið mættust,
en hann fór fram á Hásteinsvelli.
Mörg glæsileg tilþrif sáust í
leiknum en ekki vildi boltinn inn
þannig að liðin skildu jöfn 0-0.
Dómarar og starfsmenn völdu lið
mótsins sem samanstóð af átta
stelpum, þeim Þóru Björk Stefáns-
dóttur ÍBV, Kötlu Tryggvadóttur
Val, Kristínu Önnu Smára Val,
Ólöfu Söru Sigurðardóttur
Stjörnunni, Ernu Sólveigu Sverris-
dóttur Fylki, Þórdísi Kötlu
Sigurðardóttur Breiðabliki,
Theodóru Guðný Vilhjálmsdóttur
Víkingi R og Amelíu Rún Hjartar-
dóttur RKV. Eftir langan og
strangan dag héldu stelpurnar í
sundlaug Vestmannaeyja þar sem
var diskósund og skemmtu þær sér
þar fram eftir kvöldi.
Valsstelpur sigurvegarar TM
bikarsins
Laugardagurinn var svo stóri
dagurinn þar sem spilað var til
úrslita áður en haldið var heim á
leið. Þar fóru Valsstelpur með sigur
af hólmi eftir æsispennandi leik á
móti Stjörnunni en leikurinn fór í
framlengingu og svo í vítaspyrnu-
keppni og voru Valsstelpurnar því
sigurvegarar TM bikarsins. Mótið
endaði svo með glæsilegu lokahófi
þar sem verðlaun voru afhent og
pulsur grillaðar. Lið Sindra var
valið prúðasta liðið á mótinu og lið
Þróttar Reykjavík vann nammipok-
ann sem Heildverslun Karls
Kristmanns gefur ár hvert. ,,Mótið
var mjög vel heppnað í alla staði og
ég veit ekki betur en að allir hafi
farið sáttir til sins heima að
mótslokum” sagði Dóra Björk.
Knattspyrna | Vel lukkað TM mót að baki :: Tæplega 400 leikir á 3 dögum:
Valsstelpur unnu TM-
bikarinn í æsispennandi
leik á móti Stjörnunni
:: Ekki hægt að halda mót sem þetta nema með því að allir leggist á eitt
Úrslit
mótsins
TM mótsbikarinn
1. Valur-1
2. Stjarnan-1
3. Víkingur R-1
Huginsbikarinn
1. Haukar-1
2. Breiðablik-3
3. Þór Ak.-1
Ísleifsbikarinn
1. Snæfellsnes-1
2. Víkingur R.-2
3. Stjarnan-2
Bergsbikarinn
1. Valur-2
2. Haukar-2
3. FH-2
Glófaxabikarinn
1. Breiðablik-6
2. Fjarðabyggð-1
3. Selfoss-1
Dala Rafnsbikarinn
1. Stjarnan-4
2. Stjarnan-3
3. Höttur-1
Gullbergsbikarinn
1. Afturelding-2
2. Fylkir-3
3. Breiðablik-7
Drangavíkurbikarinn
1. Fram-1
2. KA-2
3. Sindri-1
Stígandabikarinn
1. FH-4
2. Fylkir-4
3. ÍR-2
Kvöldvakan
rosalega
skemmtileg
Nafn: Emilía Rún Árnadóttir.
Lið: Álftanes.
Hvað fannst þér skemmtilegast á
TM mótinu: -Mér fannst kvöld-
vakan rosalega skemmtileg, þar
voru allskonar skemmtiatriði og
hæfileikakeppni. Liðið mitt dansaði
í henni. Svo er bara búið að vera
rosalega skemmtilegt að spila alla
leikina.
Hver er uppáhalds fótboltakonan
þín: -Margrét Lára Viðarsdóttir.
En uppáhalds fótboltamaðurinn
þinn: -Gylfi Sigurðsson.
Hvað ertu búin að æfa fótbolta
lengi: -Ég er búin að æfa síðan ég
var 6 ára gömul, er 11 ára í dag.
Ætlar þú að verða fótboltakona
þegar þú ert orðin stór: -Já, ekki
spurning. Ég mundi mest vilja spila
með Liverpool ef ég ætti að velja
mér lið.
Liverpool
og íslenska
landsliðið
Nafn: Inga Rakel Aradóttir.
Lið: KA.
Hvað ertu búin að æfa fótbolta
lengi: -Ég er búin að æfa í 4 ár.
Hvað fannst þér skemmtilegast á
TM mótinu: -Mér fannst eiginlega
skemmtilegast að fara í sund.
Rosalega flott sundlaugin hérna.
Hver er uppáhalds fótboltakonan
þín: -Sara María Jessen.
En uppáhalds fótboltamaðurinn:
-Hannes Þór Halldórsson.
Ætlar þú að verða fótboltakona
þegar þú ert orðin stór: -Já, og
mundi mest vilja spila með
Liverpool og íslenska landsliðinu.
Kynnast
öllum
stelpunum
Nafn: Sonja Shíí Kristjánsdóttir.
Lið: FH.
Hvað fannst þér skemmtilegast á
TM mótinu: -Mér fannst skemmti-
legast að hitta önnur lið og kynnast
öllum stelpunum sem voru á
mótinu. Svo fannst mér hæfileika-
Sara SjöFn GrETTiSdÓTTir
sarasjofn@eyjafrettir.is
M
yn
d:
S
ig
fú
s
G
un
na
r
G
uð
m
un
ds
so
n
M
yn
d:
S
ig
fú
s
G
un
na
r
G
uð
m
un
ds
so
n
M
yn
d:
Ó
sk
ar
P
ét
ur
F
ri
ðr
ik
ss
on