Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Qupperneq 26

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Qupperneq 26
26 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. júní 2016 Orkumótið fór fram síðastliðna helgi í Vestmannaeyjum en þar mættu rúmlega 1200 keppendur til leiks og fjöldinn allur af foreldrum og skyldmennum sem fygldu eftir. Fjöldi liða hefur aldrei verið fleiri en 108 lið tóku þátt frá 35 félögum, spilaðir voru yfir 600 leikir á mótinu. Mótið hófst á fimmtudeginum í ágætis veðri en spilað var á mótinu frá klukkan 08.00 á morgnana til klukkan 17.00 á daginn. Spilar hvert einasta lið þrjá leiki á fimmtudeginum og föstudeginum en á laugardeginum spila liðin 4 leiki. Ágætis veður var allan tíman en það rigndi örlítið seinnipartinn á föstudeginum en strákarnir létu það ekki á sig fá. Mikið er að gera hjá strákunum meðan á mótinu stendur en dagskráin var til fyrirmyndar og alltaf eitthvað í gangi. Á fimmtu- dagsvöldinu fór fram setning mótsins sem hófst á skrúðgöngu frá Barnaskólanum og endaði hún á Týsvelli þar sem Íris Róbertsdóttir formaður ÍBV íþróttafélags setti mótið. Á setningunni tekur hvert félag þátt í boðhlaupi og voru það Stjörnustrákar sem fóru með sigur af hólmi þetta árið í boðhlaupinu. Á föstudagskvöldið fór fram kvöldvaka í íþróttahúsinu. Tóti trúður tróð upp og var með gamanleik og töfrabrögð við mikla kátínu strákanna. Kvöldvakan endaði síðan á því að Leó Snær tróð upp og ætlaði þakið að rifna af húsinu, en strákarnir tóku vel undir hjá Leó. Eftir kvöldvöku héldu síðan allir niður á Hásteinsvöll þar sem spilaðir voru 2 landsleikir á sama tíma en í landsleikinn tilnefnir hvert félag einn mann sem tekur þátt í landsleiknum, mótstjórn skiptir þeim leikmönnum í 4 lið og spila liðin síðan sín á milli fyrir framan fullan Hásteinsvöll. Á laugardagskvöldið fór fram lokahóf þar sem allir sigurvegarar á mótinu voru verðlaunaðir en það er spilað um 13 bikara á mótinu. Víkingur 1 vann Orkumótsbikarinn eftir sigur á Stjörnunni í úrslitaleik mótsins. ÍBV stóð sig mjög vel á mótinu en ÍBV 1 tapaði ekki leik á mótinu en þeir lentu í 5 sæti af 108 liðum sem verður að teljast mjög góður árangur. ÍBV mætti til leiks með 7 lið og stóðu þau sig öll mjög vel þrátt fyrir að vinna ekki nein verðlaun. Á lokahófinu var einnig valið úrvalslið Orkumótsins en þá eru valdnir 12 strákar sem þóttu hafa staðið sig best á mótinu, en þetta úrvalslið velja dómarar og mótstjórn mótsins. Ásgeir Galdur Guðmundsson leikmaður ÍBV var valinn í Orkumótsliðið annað árið í röð en hann er gríðarlega efnilegur knattspyrnumaður. Þegar uppi er staðið heppnaðist mótið gríðarlega vel og fóru því sáttir strákar til síns heima á laugardagskvöldinu. Aldrei fleiri lið keppt á Orkumótinu frá upphafi :: 1200 keppendur :: 108 lið :: Yfir 600 leikir :: Vel heppnað mót í alla staði arnar GauTi GrETTiSSon frettir@eyjafrettir.is Verðlaun og viður- kenningar Orkumótsbikarinn 1. Víkingur-1 2. Stjarnan-1 Heimaeyjarbikarinn 1. Selfoss-1 2. Breiðablik-2 Eldfellsbikarinn 1. Skallagrímur 2. Selfoss-4 Álseyjarbikarinn 1. Njarðvík-1 2. FH-2 Elliðaeyjarbikarinn 1. Fylkir-1 2. Haukar-1 Stórhöfðabikarinn 1. Stjarnan-3 2. Víkingur-2 Heimaklettsbikarinn 1. Sindri/Neisti-2 2. ÍA-2 Surtseyjarbikarinn 1. HK-3 2. Fram-4 Bjarnareyjarbikarinn 1. Afturelding-1 2. Fjölnir-1 Helliseyjarbikarinn 1. Víkingur-3 2. Grindavík-3 Suðureyjarbikarinn 1. Valur-2 2. Fram-2 Ystaklettsbikarinn 1. Fjölnir-4 og Breiðablik-5 Jafnt eftir leik, framlengingu og vítakeppni. Helgafellsbikarinn 1. Selfoss-2 2. Fjölnir-2 Háttvísi KSÍ • Hvöt • Þróttur Vogum • ÍA • Haukar Prúðustu liðin • Fjarðabyggð • KA Orkumótsliðið 2016 • Theodór Ingi Óskarsson Fylkir • Cole Campell FH • Valdimar Logi Sævarsson KA • Daniel Tristan Guðjohnsen HK • Stígur Diljan Þórðarson Víkingur • Lars Erik Bragason KR • Jóhann Kanfory Tjörvason Víking. • Hafþór Andri Benediktsson Stjarn. • Þorkell Kári Jóhannsson UBK • Ásgeir Galdur Guðmundsson ÍBV • Þorri Stefán Þorbjörnsson Fram • Daníel Ingi Jóhannesson ÍA Ómar Garðarsson kíkti á mótið með myndavélina. Við leyfum myndunum að tala sínu máli.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.