Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Page 27

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Page 27
27Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. júní 2016 Íþróttir u m S j Ó n : Guðmundur TÓmaS SiGFúSSon gudmundur@eyjafrettir.is Stjörnumenn hefndu fyrir bikar- tapið með eins marks sigri á ÍBV um daginn. Leikurinn var alls ekki mikið fyrir augað en Stjörnumenn tóku forystuna í fyrri hálfleik með marki Arnars Más Björgvinssonar sem fylgdi eftir sínu eigin skoti. Eftir þetta varð leikurinn frekar leiðinlegur, Stjarnan sætti sig við sigurinn og þessi eyjageðveiki sem oft er talað um var ekki til staðar. Ævar Ingi Jóhannesson slapp í gegn um vörn ÍBV en Jón Ingason virtist toga hann niður, dómari leiksins dæmdi ekki neitt og voru Stjörnu- menn allt annað en sáttir. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari þeirra, var rekinn upp í stúku eftir nokkur vel valin orð sem voru látin falla í garð dómaranna. Guðjón Baldvins- son, leikmaður Stjörnunnar, fékk síðan rautt í uppbótartíma fyrir að slá til Sindra Snæs Magnússonar. Leikurinn rann síðan út í sandinn og eftir góða leiki á síðustu vikum hafa komið tveir leikir í röð þar sem liðið hefur tapað og ekki skorað mark. Bjarni Jóhannsson sagði leikinn hafa verið mjög jafnan. „Við töpuðum hérna í hnífjöfnum leik.“ „Ég er óánægður hvernig við brugðumst við pressunni þeirra í fyrri hálfleik sem ég vil meina að hafi orðið okkur að falli og áttum að geta hreinsað boltann miklu betur. Við hefðum átt að fara betur með sóknirnar sem við fengum þegar við losuðum þessa pressu. Það vantar þennan neista og græðgi í teignum,“ sagði Bjarni einnig sem virtist þó ekkert alltof ósáttur með leik sinna manna. Bjarni er einnig ekki ánægður með hversu langt hlé er á deildinni og áhrif þess. „Þetta er náttúrulega sundurtætt deild en þetta vissum við í upphafi móts, við erum að spila þrjá leiki í deild í júlí,“ segir Bjarni en honum finnst það alltof lítið. FH 9 6 2 1 12 - 4 20 Fjölnir 9 6 1 2 21 - 9 19 Breiðablik 9 5 1 3 10 - 7 16 Stjarnan 8 4 2 2 14 - 8 14 Víkingur Ó 8 4 2 2 11 - 11 14 ÍBV 9 4 1 4 10 - 9 13 Valur 9 3 2 4 13 - 10 11 Víkingur R. 8 3 2 3 12 - 9 11 KR 9 2 3 4 8 - 11 9 ÍA 8 2 1 5 7 - 15 7 Þróttur R. 8 2 1 5 6 - 21 7 Fylkir 8 0 2 6 4 - 14 2 Pepsídeild karla Um síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands fyrir aldurinn 11-14 ára. UMFÓ fór með fjóra keppendur sem stóðu sig með eindæmum vel og bættu sig í nánast öllum keppnis- greinum og voru nálægt verð- launasæti. Öll eru þau fædd 2005 og því á sínu fyrsta ári á meist- aramótum í frjálsum. Lúkas Orri Sæþórsson lenti í fjórða sæti í hástökki með stökk upp á 1.16 en hann rétt feldi næstu hæð, hefði annars verið í baráttu um 2-3 sætið, svo sterk innkoma þar. Hann stökk 3,22 m í langstökki sem er hans besta. Hljóp 600 m á 2,20,99 sek sem er einnig hans besti árangur. Kastaði 2 kg kúlu 5,24 m sem er bæting og spjótinu 10,51 m sem er einnig bæting. Klara Örvarsdóttir varð fjórða í langstökki með risastökki og 20 cm bætingu frá síðasta móti, 3,63 cm. Hún komst í úrslit sem þriðja besta en lét í þetta sinn í lægra haldi. Klara kastaði 10,19 m í spjótkasti sem er þrusu bæting, hljóp 60 m á 9,84 sek sem er bæting og komst í úrslit og endaði í fimmta sæti, frábær árangur þar. Hún tók svo einnig þátt í 600 m hlaupi og fékk tímann, 2.27.15 sek sem er bæting frá síðasta móti. Erika Rún Long hljóp 60 m á 10,11, komst í úrslit og endaði í níunda sæti með þessari flottu bætingu. Erika stökk 3,12 m í langstökki, kastaði tveggja kílógramma kúlu 4,04 m en allt eru þetta bæting frá síðasta móti. Inga Dan Ingadóttir bætti sig í langstökki og stökk 3,22 m og í kúluvarpi og kastaði hún 5,26 m sem er einnig nýtt met hjá henni. „Allir þessir krakkar hafa æft vel í vetur og staðið sig einstaklega vel á mótum, en þetta er fyrsta meistara- mót þeirra utanhúss og því er árang- urinn sérstaklega sætur. Nú er alveg tilefni til að fylgjast vel með þessum krökkum á komandi mótum og árum, öll með þrusu bætingar og áhuginn leynir sér ekki, Spennandi tímar framundan hjá þeim,“ sögðu þjálfararnir Karen Inga og Þóra Kristín sem vildu þakka krökkunum fyrir frábæra helgi. Íslenska landsliðið í knattspyrnu er komið alla leið í 8-liða úrslit Evrópumótsins. Það er í raun ótrúlegt afrek en við Eyjamenn eigum okkar fulltrúa í hópnum, þeir Einar Björn Árnason og Heimir Hallgrímsson eru nefnilega hluti af þessari veislu. Einar eldar ofan í mannskapinn og hefur greinilega staðið sig gríðarlega vel. Heimir hefur þó einnig staðið sig ótrúlega og það er hrein unun að fylgjast með honum, hvar sem hann kemur fram er hann Eyjunum til sóma og íslensku þjóðinni. Enska pressan og heimspressan gerir mikið úr því að Heimir sé tannlæknir og finnst þeim það alveg geggjað. Þar er einnig nefnt að fyrrum þjálfari Englendinga, Roy Hogde- son, þéni 700 milljónir króna á ári og til samanburðar sé aðstoðar- þjálfari Íslendinga tannlæknir í hlutastarfi. Þar segir enska pressan að íslenski þjálfarinn hafi tekið tennurnar úr enska liðinu, án deyfingar. Heimir sagði einnig við ensku pressuna að stærsti sigur Íslandssögunnar hafi verið auðveld- ari en hann átti von á. Knattspyrna | EM Heimir heldur áfram að sigra heiminn :: Ísland komið í 8-liða úrslit Knattspyrna | Stjarnan 1:0 ÍBV tap á teppinu í Garðabæ Jón Ingason í leik gegn Breiðavlik á dögunum. ÍBV er komið á skrið í kvennabolt- anum eftir annan sigurleikinn í röð. Liðið sigraði ÍA með tveggja marka mun á föstudaginn. ÍA er í botnsæti deildarinnar en ÍBV hefur oft spilað betur en í þessum leik. Stigin enduðu þó öll hjá ÍBV og um það snýst málið. Natasha Anasi skoraði mark ÍBV í fyrri hálfleiknum en staðan var 1-0 í hálfleik. Lisa-Marie Woods kom inn með aukinn kraft í liðið eftir rúman hálftíma og það skilaði sér. Hún gerði úti um leikinn eftir 77 mínútur þar sem hún skoraði flott mark. Tvær ungar og efnilegar stelpur komu inn á hjá ÍBV undir lokin og er það hið besta mál. Nú taka við tveir erfiðir leikir hjá ÍBV sem gætu haft mikið að segja upp á restina af sumrinu. Á miðvikudaginn (í dag) koma Blikastúlkur í heimsókn en þær hafa verið eitt besta lið landsins undanfarin ár og eru taplausar í sumar. Það verður spennandi að sjá hvernig ÍBV kemur inn í þann leik en liðið hefur tapað þremur heimaleikjum gegn sterku liðum deildarinnar á heimavelli. Á eftir leiknum við Blika er síðan komið að enn mikilvægari leik þar sem Selfyssingar koma í heimsókn í Borgunarbikarnum. Selfoss hefur verið jójó-lið tímabilsins þar sem úrslit þeirra hafa verið mjög skrýtin. Þær slógu Val úr bikarnum á Selfossi með mörkum á 88. mínútu og þeirri 93. Þá leiddu þær gegn KR eftir 75 mínútur með þremur mörkum gegn einu en tókst á einhvern ótrúlegan hátt að tapa 4-3. Knattspyrna | ÍBV vann botnliðið í Eyjum :: tveir sigrar í röð Stjarnan 5 4 1 0 11 - 1 13 Breiðablik 5 3 2 0 8 - 3 11 Þór/KA 5 2 2 1 10 - 6 8 Valur 5 2 2 1 5 - 6 8 FH 5 2 1 2 2 - 5 7 ÍBV 5 2 0 3 5 - 4 6 Selfoss 5 2 0 3 8 - 9 6 KR 5 1 2 2 7 - 10 5 Fylkir 5 0 3 2 4 - 7 3 ÍA 5 0 1 4 1 - 10 1 Pepsídeild kvenna Varnarmaðurinn Adrianna Romero, Frjálsar | Krakkarnir halda áfram að bæta sig Stimplar Ýmsar gerðir og litir Eyjafréttir Strandvegi 47 | S. 481 1300

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.