Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Blaðsíða 28

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Blaðsíða 28
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir Nú er makrílvertíðin að hefjast og voru Huginsmenn fyrstir til að hefja veiðar þetta árið. Að sögn Guðmundar Inga Guðmundsson, skipstjóra hefur veiðin verið ágæt til þessa en Huginn VE var staddur suðaustur af Eyjum þegar Eyjafréttir náði tali af honum í gær, þriðjudag. ,,Við erum bara að reyna að kort- leggja þetta eins er og finna út hvar fiskurinn er. Veiðin hefur gengið ágætlega fram að þessu og í þessum töluðu orðum er fínn gangur á þessu. Við erum núna suðaustur af Eyjum sem eru nokkuð hefðbundnar slóðir í upphafi vertíðar. Það er mikið af síld hérna ef maður fer nær landi, sem er jákvætt, en við þurfum að fara lengra út til þess að finna makrílinn.” Huginn VE landaði í síðustu viku rúmlega 300 tonnum og stefna á löndun í dag, miðvikudag rúmum 600 tonnum af hausuðum makríl. Áður en við kvöddum Inga skipstjóra komst fótboltinn til tals, enda er það umræðuefni sem er á allra vörum þessa dagana. ,,Stemningin hérna um borð er búin að vera virkilega góð meðan á leikjunum stendur. Maður er eiginlega bara orðlaus eftir leikinn í gær. Þetta er ótrúlegt. “ Minni makrílkvóti í ár Leyfilegur heildarafli íslenskra skipa í makríl á þessu ári er 147.824 lestir, samkvæmt reglugerð. Til viðbótar er úthlutað 3.825 lestum sem ekki veiddust af óskiptum potti smábáta á síðasta ári. Auk þess sem sum skip geymdu talsvert af heimildum sínum milli ára og mega veiða nú, en geymsluheimild milli ára var aukin í 30% í kjölfar viðskiptabanns Rússa. Úthlutun síðasta árs nam rúmlega 170 þúsund tonnum. Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar hafa gert með sér samning um makrílveiðar og ákváðu þessi strandríki 896 þúsund tonna aflamark samkvæmt veiðireglu. Miðað við þann kvóta er leyfilegur afli íslenskra skipa 16,5% af heildinni, svipað og verið hefur síðustu ár. Samkvæmt ráðgjöf ICES ætti heildarafli árið 2016 að vera að hámarki 667 þúsund tonn. Ráðgjöf ICES fyrir árið 2015 var að hámarki 906 þúsund tonn og er því um verulegan samdrátt að ræða í ráðgjöfinni. Afli síðasta árs var hins vegar verulega umfram ráðgjöf og útlit fyrir að svo verði einnig í ár. Þannig eru 896 þúsund tonnin, sem ESB, Noregur og Færeyjar ákváðu sem heildaraflamark um 34% umfram ráðgjöf ársins. Að auki má ljóst vera að afli Íslendinga, Rússa og Græn- lendinga verði verulega umfram þau 15,6% sem þeim eru ætluð sam- kvæmt áðurgreindum þriggja ríkja samningi. Ef litið er á hlut Íslands sem hlutfall af ráðgjöf ICES nemur hann um 22%. Makrílvertíðin fer ágætlega af stað :: Minni makrílkvóti en í fyrra SædÍS EVa BirGiSdÓTTir seva@eyjafrettir.is Frysting á makríl er hafin hjá Ísfélaginu. B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl Vikutilboð SuShi frá osushi Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30 Tökum niður pantanir ! ath! Opið aLLa DaGa tiL KL. 21.00 B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl Grillmatur í úrvali ! taktu þá tt Taktu girnilega mynd sem fangar þína grillstemningu með grillvörum frá Hunt’s, Caj P, Patak’s, Tabasco , Sælkerafisk, Rose Poultry, Filippo Berio og Fazer Dumle. Merktu myndina með millumerkinu #GrillsumaridMikla2016 á tímabilinu 15. júní – 10. ágúst. Vikulega verður dreginn út veglegur kassi stútfullur af grillvörum. Aðalvinningshafinn fær veislu fyrir 10 manns, þar sem kokkur mætir á svæðið og grillar fyrir mannskapinn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.