Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2016, Qupperneq 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. desember 2016
Föstudagskvöldið þann 9. desember
var slegið upp veislu í Akóges.
Tilefnið var 35 ára afmæli Skipa-
lyftunnar þar sem hæst bar
frumsýning heimildamyndarinnar
„Lyftan - Skipalyftan í 35 ár“ sem
unnin var af þeim Sighvati Jónssyni
og Sigríði Diljá Magnúsdóttur.
Myndin spannar tímabilið fyrir
stofunun Skipalyftunnar allt til
dagsins í dag og er óhætt að segja
að þeim Sighvati og Diljá hafi tekist
vel til enda myndin afar fróðleg og
jafnframt mikil skemmtun.
Skipalyftan 35 ára:
Athyglisverð mynd um sögu félagsins
Stefán Jónsson, framkvæmdastjóri með Helenu systur sinni.
Addi í London, Siggi Friðbjörns. og Sigurjón.
Eva María, Erna og Valgerður í góðum gír.
Ólafur Friðriksson, tæknifræðingur Skipalyftunnar ásamt fjölskyldu,
Þuru konu sinni, Andra syni sínum og tengdadótturinni Thelmu.
Guðjón, Tómas, Ásdís, Hallgrímur, Laufey og Eyþór létu sig ekki vanta.
Magnús Ríkharðsson, skipstjóri, Þórarinn Sigurðsson, stjórnarformað-
ur Skipalyftunnar, Þórdís Úlfarsdóttir hjá Íslandsbanka og Guðni
Ingvar Guðnason hjá Vinnslustöðinni voru mætt til að fagna afmælinu.
Feðgarnir Halldór og Hafþór.
Höfundar myndarinnar,
Sighvatur og Diljá.
Áætlað er að um 350 manns hafi
sótt jólakaffi Vinnslustöðvarinnar í
Höllinni þriðja sunnudag á aðventu.
Þetta var þrettánda jólakaffið frá
upphafi og líklega hið fjölmennasta
hingað til. Séra Viðar Stefánsson,
nýr sóknarprestur Eyjamanna, flutti
hugvekju sem góður rómur var
gerður að. Hann er úr Gnúpverja-
hreppi í Árnessýslu og þarna fengu
flest sóknarbörnin í salnum fyrstu
kynni af nýja prestinum sínum.
Sjálfur jólasveinninn mætti með
nammi í poka handa fjölmörgum
börnum starfsmanna á vettvangi.
Veisluborðin svignuðu undan öllum
kræsingunum, það var gott með
kaffinu nú sem endranær.
Starfsmenn fengu jólagjafir og
nokkrir þeirra viðurkenningu að
auki í tilefni tímamóta, afmælis eða
starfsloka.
Af VSV.is / myndir: Addi í London.
Aldrei fleiri í jólakaffi Vinnslustöðvarinnar
Hér eru aðstandendur viðurkenn-
inganna, frá vinstri; Sigurgeir B.
Kristgeirsson framkvæmdastjóri,
Jason Stefánsson fyrir hönd Inga
Árna Júlíussonar í tilefni
sjötugsamælis. Kristinn Anders-
son í tilefni þess að hann lætur af
störfum eftir um 30 ár hjá
Vinnslustöðinni. Baldur B. Birgis-
son fyrir hönd Kristins Valgeirs-
sonar í tilefni fimmtugsafmælis.
Jasoslav R. Pustula í tilefni
fimmtugsafmælis. Ingigerður
Helgadóttir í tilefni fimmtugsaf-
mælis og Gunnar Davíð
Gunnarsson fyrir hönd Erlendar
Gunnars Gunnarssonar í tilefni
fimmtugsafmælis og loks Þór
Vilhjálmsson.
Þessi jólasveinn er alls staðar
þessa dagana. Veisluborðið svignaði undan kræsingunum í Höllinni í aðventukaffinu. Höllin var þétt setin en um 350 manns sóttu aðventukaffi VSV.