Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 1
Eyjafréttir Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Vestmannaeyjum 12. júlí 2017 :: 44. árg. :: 28. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Í síðustu viku komu saman fulltrúar allra stærstu sjávarútvegsfyrirtækja í Vestmannaeyjum og fulltrúar Vestmannaeyjabæjar til að ræða stöðu sjávarútvegs og tengdra greina í Vestmannaeyjum með tilliti til samgangna og flutninga. Er ljóst að þeir anna engan veginn þörfinni. Var ráðherrum sent bréf þar sem þess er krafist að ferðum Herjólfs verði fjölgað úr sex á dag í átta. Á fundinum var staðfest að allar greinar sjávarútvegs í Vestmanna- eyjum líða nú fyrir ónógar sam- göngur. Álagið á Herjólf sé slíkt að þær fáu ferðir sem farnar eru á hverjum degi dugi hvergi til að anna ferðaþjónustu, hvað þá sjávarútvegi eða almennum íbúum. „Á meðan tapast tækifæri, hráefni skemmist og fyrirtæki verða fyrir miklum skaða þar sem illa gengur að vinna verðmæti úr því sjávarfangi sem flytja þarf með Herjólfi,“ segir í ályktun sem fundurinn sendi frá sér. „Fjölgun ferða með Herjólfi um eina á dag í sumaráætlun er góðra gjalda verð og hraustlegt framtak þeirra sem að komu en dugar þó hvergi til að mæta þörfinni eins og hún er. Með bréfi þessu er gerð sú krafa að ferðum Herjólfs í sumar- áætlun verði tafarlaust fjölgað í 8 á hverjum sólarhring, alla vikuna eins og svigrúm er til. Einungis þannig teljum við okkur geta skapað samfélaginu þau miklu verðmæti sem við höfum burði til.“ Gera þeir tillögu um að fyrsta ferð frá Vestmannaeyjum verði klukkan 7.30 og síðasta ferð úr Landeyjahöfn klukkan 22.30. Minnt er einnig á mikilvægi þess að þegar vetraráætlun í Þorlákshöfn tekur við muni vandinn enn aukast verði ekki gripið til aðgerða. „Hafa þarf hugfast að sjávarútvegsráðherra hefur nýverið tekið ákvörðun um aukningu á fjölmörgum nytja- stofnum. Eðlilega veldur það auknu álagi á flutningskerfið og mikilvægt að fyrirtæki verði ekki hindruð í að nýta þau tækifæri sem í því eru fólgin. Með bréfi þessu er því einnig gerð krafa að farnar verði a.m.k. 5 til 6 næturferðir til viðbótar við hefð- bundna áætlun þegar siglt verður til Þorlákshafnar. Vestmannaeyjar eru ein stærsta verstöð á landinu og vinsæll áfangstaður ferðamanna. Samfélagið hér hefur alla burði til að halda áfram að dafna og leggja samfélaginu öllu til verðmæti til samneyslu. Það er þó háð því að ekki verði látið undir hælinn leggjast að tryggja þá undirstöðu sem fólgin er í sam- göngum. Óskað er eftir viðbrögðum við erindi þessu svo fljótt sem verða má enda tapast verðmæti á hverjum degi þar til gripið verður til viðeigandi ráðstafana,“ segir í ályktuninni sem send var Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra, Benedikt Jóhannes- syni, fjármálaráðherra, Jóni Gunnars- syni, samgönguráðherra, Þorgerði Katrín Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- ráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála- og nýsköpunarráðherra. Undir þetta skrifuðu fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og Vestmanna- eyjahafnar, Ísfélags, Vinnslustöðvar, Löngu, Godthaab, Iðunn Seafood, Gríms kokks, Bergs-Hugins, Leo Fresh Fish og Fiskmarkaðs Vest- mannaeyja. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Sjávarútvegurinn vill fjölga ferðum Herjólfs úr sex á dag í átta: Nú tapast tækifæri, hráefni skemmist og fyrirtæki skaðast :: Áskorun send ráðherrum :: Óskað er eftir viðbrögðum sem fyrst :: Verðmæti tapast á hverjum degi þar til gripið verður til ráðstafana Það var margt um manninn í Vestmannaeyjum um helgina þar sem Eyjamenn og gestir nutu þess sem goslokahátíðin hafði upp á að bjóða. Sara Ósk, fyrir miðju, og vinkonur létu sig ekki vanta á Skipasand á laugardagskvöldið þar sem Brimnes og fleiri hljómsveitir skemmtu. >> Nánar bls. 12 foreldrar Margrétar láru og elísu tíu heitustu piparsveinar vestManneyja >> 14 okkar fólk í tækniskólanuM >> 10 >> 8

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.