Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Qupperneq 1
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Vestmannaeyjum 12. júlí 2017 :: 44. árg. :: 28. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Í síðustu viku komu saman fulltrúar
allra stærstu sjávarútvegsfyrirtækja í
Vestmannaeyjum og fulltrúar
Vestmannaeyjabæjar til að ræða
stöðu sjávarútvegs og tengdra greina
í Vestmannaeyjum með tilliti til
samgangna og flutninga. Er ljóst að
þeir anna engan veginn þörfinni. Var
ráðherrum sent bréf þar sem þess er
krafist að ferðum Herjólfs verði
fjölgað úr sex á dag í átta.
Á fundinum var staðfest að allar
greinar sjávarútvegs í Vestmanna-
eyjum líða nú fyrir ónógar sam-
göngur. Álagið á Herjólf sé slíkt að
þær fáu ferðir sem farnar eru á
hverjum degi dugi hvergi til að anna
ferðaþjónustu, hvað þá sjávarútvegi
eða almennum íbúum.
„Á meðan tapast tækifæri, hráefni
skemmist og fyrirtæki verða fyrir
miklum skaða þar sem illa gengur að
vinna verðmæti úr því sjávarfangi
sem flytja þarf með Herjólfi,“ segir í
ályktun sem fundurinn sendi frá sér.
„Fjölgun ferða með Herjólfi um
eina á dag í sumaráætlun er góðra
gjalda verð og hraustlegt framtak
þeirra sem að komu en dugar þó
hvergi til að mæta þörfinni eins og
hún er. Með bréfi þessu er gerð sú
krafa að ferðum Herjólfs í sumar-
áætlun verði tafarlaust fjölgað í 8 á
hverjum sólarhring, alla vikuna eins
og svigrúm er til. Einungis þannig
teljum við okkur geta skapað
samfélaginu þau miklu verðmæti sem
við höfum burði til.“
Gera þeir tillögu um að fyrsta ferð
frá Vestmannaeyjum verði klukkan
7.30 og síðasta ferð úr Landeyjahöfn
klukkan 22.30.
Minnt er einnig á mikilvægi þess að
þegar vetraráætlun í Þorlákshöfn
tekur við muni vandinn enn aukast
verði ekki gripið til aðgerða. „Hafa
þarf hugfast að sjávarútvegsráðherra
hefur nýverið tekið ákvörðun um
aukningu á fjölmörgum nytja-
stofnum. Eðlilega veldur það auknu
álagi á flutningskerfið og mikilvægt
að fyrirtæki verði ekki hindruð í að
nýta þau tækifæri sem í því eru
fólgin.
Með bréfi þessu er því einnig gerð
krafa að farnar verði a.m.k. 5 til 6
næturferðir til viðbótar við hefð-
bundna áætlun þegar siglt verður til
Þorlákshafnar.
Vestmannaeyjar eru ein stærsta
verstöð á landinu og vinsæll
áfangstaður ferðamanna. Samfélagið
hér hefur alla burði til að halda áfram
að dafna og leggja samfélaginu öllu
til verðmæti til samneyslu. Það er þó
háð því að ekki verði látið undir
hælinn leggjast að tryggja þá
undirstöðu sem fólgin er í sam-
göngum.
Óskað er eftir viðbrögðum við
erindi þessu svo fljótt sem verða má
enda tapast verðmæti á hverjum degi
þar til gripið verður til viðeigandi
ráðstafana,“ segir í ályktuninni sem
send var Bjarna Benediktssyni,
forsætisráðherra, Benedikt Jóhannes-
syni, fjármálaráðherra, Jóni Gunnars-
syni, samgönguráðherra, Þorgerði
Katrín Gunnarsdóttur, sjávarútvegs-
ráðherra og Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála- og
nýsköpunarráðherra.
Undir þetta skrifuðu fulltrúar
Vestmannaeyjabæjar og Vestmanna-
eyjahafnar, Ísfélags, Vinnslustöðvar,
Löngu, Godthaab, Iðunn Seafood,
Gríms kokks, Bergs-Hugins, Leo
Fresh Fish og Fiskmarkaðs Vest-
mannaeyja.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Sjávarútvegurinn vill fjölga ferðum Herjólfs úr sex á dag í átta:
Nú tapast tækifæri, hráefni
skemmist og fyrirtæki skaðast
:: Áskorun send ráðherrum :: Óskað er eftir viðbrögðum sem fyrst
:: Verðmæti tapast á hverjum degi þar til gripið verður til ráðstafana
Það var margt um manninn í Vestmannaeyjum um helgina þar sem Eyjamenn og gestir nutu þess sem goslokahátíðin hafði upp á að bjóða. Sara Ósk,
fyrir miðju, og vinkonur létu sig ekki vanta á Skipasand á laugardagskvöldið þar sem Brimnes og fleiri hljómsveitir skemmtu. >> Nánar bls. 12
foreldrar
Margrétar
láru og elísu
tíu heitustu
piparsveinar
vestManneyja >> 14
okkar fólk í
tækniskólanuM >> 10 >> 8