Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Page 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. júlí 2017
Sjaldan eða aldrei hafa fleiri
mætt á Goslokahátíð en í ár og
má segja að bærinn hafi verið
fullur af fólki. Dagskráin var
mjög fjölbreytt og lætur nærri að
um 50 viðburðir hafi verið í boði,
myndlistarsýningar, tónleikar og
uppákomur fyrir börn á öllum
aldri og svo skemmtanir á
kvöldin. Góð mæting var á alla
viðburði og ekki annað að heyra
en að fólk væri ánægt enda
veður gott og fólk mætti til að
eiga góða stund, skemmta sér
og öðrum og sýna sig og sjá
aðra. Er Goslokahátíðin í
Vestmannaeyjum búin að vinna
sér sess sem ein allsherjar
menningarhátíð og sem
ættarmót af stærri gerðinni.
Goslokanefnd lagði áherslu á að
bæjarbragurinn yrði í anda
hátíðarinnar og voru margir sem
svöruðu því kalli.
Ekki var möguleiki að komast
yfir alla viðburði en blaðamenn
Eyjafrétta fóru víða og hér má
sjá afraksturinn.
Spákona
Spákonan Sunna Árnadóttir spáði í
bolla og spil fyrir gesti og gangandi
í Pennanum og komust færri að en
vildu.
Myndefnið sótt í Surtsey
Þórunn Bára Björnsdóttir bauð upp
á athyglisverða myndlistarsýningu í
Eldheimum þar sem gróður í
Surtsey og framþróun hans var
viðfangsefnið. Skemmtileg sýn á
þessa náttúruperlu sem fengið hefur
að þróast án afskipta mannsins frá
1963. Þórunn Bára hefur aldrei
stigið fæti á Surtsey en nýtir Netið
við vinnslu verka sinna.
Sýndi og sagði sögur
Andrés Sigmundsson sýndi og
sannaðí á sýningu sinni í Gallery
Papacross, við Heiðarveg að hann
kann að mála og hefur auga fyrir
litum og formum. Flott sýning og
skemmtileg.
Hann bætti um betur þegar hann
fór göngu um miðbæinn og sagði
sögu húsa og annars sem fyrir augu
bar. Þátttaka var góð og gerður
góður rómur að þessu framtaki
Andrésar.
Frumraun sem lofar góðu
Myndlistarsýning Magna Freys
Ingasonar í Húsi Taflfélagsins við
Heiðarveg kom á óvart. Hann tók
sig til fyrir tveimur árum að mála
myndir og notar mest akrýlliti. Þetta
er hans fyrsta sýning og lofar hún
góðu um framhaldið.
Magni er ófeiminn að nota sterka
liti og hefur gott vald á viðfangsefn-
inu. Hlakka til að sjá næstu sýningu
því hann segist hvergi nærri hættur.
Með auga fyrir smáatriðum
Ísleifur Arnar Vignisson, Addi í
London, er yfirleitt með myndavél á
lofti ef eitthvað er að gerast í
Vestmannaeyjum. Þetta hefur hann
gert í áratugi og mátti sjá örlítið
sýnishorn úr safni hans á sýningu í
Akóges um helgina.
Viðfangsefnið eru Vestmannaeyjar
og það sem hér gerist. Hann hefur
mikið dálæti á Smáeyjum sem blasa
við honum út um stofugluggann
sem mátti sjá á sýningunni sem er
góður vitnisburður um ljósmyndar-
ann Adda í London sem hefur auga
fyrir smáatriðunum og veit hverju
hann vill koma til skila þegar mynd
er tekin.
Um 1000 manns sóttu sýninguna
og er Addi mjög þakklátur fyrir
það.
Haldið ótrauð áfram
Alltaf koma félagar í Myndlistar-
félagi Vestmannaeyja manni á óvart.
Um helgina sýndu þau í sal
Listaskólans. Verkin eru eins
fjölbreytt og þau eru mörg sem
þarna sýndu. Og enn og aftur segi
ég, það má sjá framfarir með hverri
sýningu og á meðan svo er á félagið
rétt á sér og miklu meira en það.
Haldið ótrauð áfram.
Þarft og tímabært framtak
Sýningin „Örnefni í Vestmanna-
eyjum“ er þarft framtak hóps undir
forystu Péturs Steingrímssonar.
Afraksturinn er á ljósmyndum af
Heimaey þar sem örnefni eru skráð
inn á. Með Pétri voru Hávarður
Sigurðsson, Már Jónsson, Ólafur
Týr Guðjónsson, Friðbjörn
Valtýsson og Óskar Ólafsson
prentari sem vann tölvuvinnuna á
myndunum sem er mikil og
vandasöm vinna. Síðar kom inn í
hópinn Gunnlaugur Grettisson.
Gestir geta aðstoðað og bætt á
listann.
Það sem aldrei hefur
verið rætt
Guðrún Erlingsdóttir blaðamaður
með meiru var í Eldheimum með
það sem hún kallaði Spjallstund -
samtal kynslóða. Fékk hún til sín
mæðginin Sjöfn Kolbrúnu Ben-
ónýsdóttur, Bobbu og Grím
Gíslason og mæðgurnar Ester
Kristjánsdóttur og Hafdísi Sigurðar-
dóttur til að segja frá upplifun sinni
af gosinu. Bobbu og Ester sem
mömmurnar sem þurftu að flytja
heimili og börn og aðlagast nýjum
aðstæðum og Hafdís og Grímur
sögðu frá sinni lífsreynslu.
Kom þar margt á óvart eins og
það að Grímur, þá átta ára grét sig í
svefn á hverju kvöldi þar sem hann
dvaldi hjá frænku sinni í Fljóts-
hlíðinni veturinn 1973. Horfandi á
Vestmannaeyjar út um gluggann.
Eitthvað sem mamma hans vissi
ekki áður.
Ester og Hafdís fluttu nokkru
sinnum í gosinu og skipti Hafdís
jafn oft um skóla. Þar þurfti hún að
standa á sínu því krakkar réðust á
hana vegna þess að hún kom frá
Vestmannaeyjum.
Mæting var góð og var athyglis-
vert að heyra hvernig þau upplifðu
gosið og það sem á eftir fór.
Niðurstaðan var að enn er mikið
óuppgert og að þetta var enginn
dans á rósum.
Hrafnarnir sungu sinn söng
Hrafnarnir brugðust ekki á
tónleikunum í Eldheimum á
föstudagskvöldið. Ein reyndasta
hljómsveit landsins í árum talið og
drengirnir njóta þess að koma fram
og skemmta fólki, bæði í tónum og
tali.
Troðfullt var og mikil stemning í
anda Eyjamanna. Sindri Freyr hitaði
upp og sýndi og sannaði að þar er
rísandi stjarna á ferðinni.
Enn eitt púslið í sögunni
Það var vel mætt á frumsýningu
heimildarmyndar Gísla Pálssonar,
Valdimars Leifssonar og Bryndísar
Kristjánsdóttur, Hans Jónatan:
Maðurinn sem stal sjálfum sér.
Hún er byggð á samnemdri bók
Gísla sem rekur sögu Hans Jónatans
sem var sonur ambáttar á St. Croix í
Karíbahafi en fluttist með dönskum
húsbónda sínum til Kaupmanna-
hafnar áður en hann kom sér til
Íslands. Hann settist að á Djúpavogi
árið 1802 og giftist Katrínu
Antoníusdóttur. Afkomendur þeirra
í dag eru um 1000 talsins.
Allt svo leikandi létt
Það var upplifun að vera viðstaddur
tónleika Silju Elsabetar Brynjars-
dóttr og Alexanders Jarls Þorsteins-
sonar í Eldheimum á laugardaginn.
Þetta unga fólk sem nú stundar
söngnám við virta tónlistarskóla í
London tók sín fyrstu skref á
Vel heppnuð Goslokahátíð í góðu veðri :: Gestir sjaldan eða aldrei verið fleiri :
Fjögurra daga veisla í listum og sjálfsprottinni gleði
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Páll Helgason á sýningunni hjá Andrési Sigurmundssyni.
Aron Brink syngur á barnaskemmtun Ísfélagsins.
Skólahreystibrautin á fjölskylduhátíð Landsbankans var vinsæl.
Hrafnar krunka í Eldheimum.
Júníus Meyvant hélt tónleika og myndlistarsýningu.
Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar héldu tónleika á Háaloftinu.
Guðrún Erlingsdóttir stóð fyrir spjallstund um gosið á Heimaey.