Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Qupperneq 4
4 - Eyjafréttir Miðvikudagur 25. október 2017
eyjamaðurinn og bakarinn
Birgir Þór sigurjónsson, sonur
sigurjóns Birgissonar og
Mjallar kristjánsdóttur býr í
reykjavík ásamt konu sinni
Hafdísi og tveimur börnum,
þeim Hilmari aroni og ástu
Guðrúnu. Birgir, sem er 36 ára
gamall, kláraði bakaranám árið
2015 en hefur verið viðloðinn
bakstur síðan árið 2001 bæði
hjá arnóri bakara
og Bergi í vilberg í
vestmannaeyjum. Í
dag starfar Birgir
hjá bakaríinu
Brauð & Co. sem
er eitt vinsælasta
bakarí landsins um
þessar mundir.
einnig ferðaðist hann á
dögunum til stokkhólms ásamt
íslenska bakaralandsliðinu þar
sem liðið keppti í norðurlanda-
keppni í bakstri.
Vildi bara baka og
djamma í Eyjum
Eins og fyrr segir hóf Birgir störf
við bakstur upp úr aldamótum og
hefur hann allar götur síðan starfað
á þeim vettvangi. „Þeir voru í fullri
vinnu við að kenna mér að baka og
ala mig upp,“ segir Birgir um fyrstu
ár sín hjá Arnóri og Bergi. „Ég var
svo mikill Vestmannaeyingur að ég
ætlaði aldrei að flytja upp á land og
nennti því aldrei að klára þennan
skóla. Ég vildi bara baka og
djamma í Eyjum. En svo fullorðnast
maður og klárar skólann loksins
eftir að Einar Björn bróðir ýtti mér í
námið.“
Fyrst um sinn var Birgir að vinna í
bakaríi í bænum sem heitir Passion
en það var með fyrstu íslensku
bakaríunum sem fór út í súrdeigs-
brauðgerð. „Ég fékk síðan símtal
frá Ágústi eða Gústa eins og hann
er kallaður, sem bjó í Danmörku á
þeim tíma, en hann langaði að gera
eitthvað alveg nýtt á Íslandi. Ég
hafði aldrei hitt hann né heyrt af
honum og var nú svolítið efins um
þetta en ákvað að slá til og hjálpaði
honum að opna Brauð & Co. Síðan
þá hef ég verið honum innan handar
og sé ekki eftir því í dag því þetta
gjörsamlega sló í gegn og á Gústi
mikið hrós skilið fyrir sína
hugmyndafræði sem er einfaldlega
bara að hafa þetta einfalt og nota
besta mögulega hráefni sem er í
boði,“ segir Birgir.
Nota innflutt hveiti frá Ítalíu
Það er óhætt að segja að gæði séu
sérstaða Brauð & Co. en bakaríið
notast aðallega við innflutt lífrænt
hveiti frá Ítalíu í bland við íslenskt
lífrænt hráefni. Það sem gerir okkur
sérstaka er í rauninni það að við
erum með gott hráefni sem er mikið
dýrara en gerir allt mikið betra. Við
byrjuðum tveir í einni lítilli búð en
nú eru búðirnar orðnar þrjár og
fleiri á leiðinni og bakararnir orðnir
hátt í 14 að mig minnir. Brauðin
okkar eru öll gerð úr súrdeigi og
snúðarnir okkar eru líklega
vinsælastir en fólk bíður í röðum til
að fá þá. Sérstaða okkar er líka sú
að við erum að baka allan daginn
og fólk getur alltaf fengið nýbakaða
vöru og séð okkur gera vöruna frá
grunni,“ segir Birgir.
Fer út með landsliðinu í mars
Í byrjun árs var stofnað íslenskt
bakaralandslið en liðið keppti á sínu
fyrsta móti nú haust þegar Norður-
landakeppni í bakstri fór fram í
Stokkhólmi. „Við vorum nokkur
ásamt Landssambandi bakarameist-
ara sem ákváðum að stofna loksins
landslið bakara. Við völdum þrjá
einstaklinga til að
taka þátt í þessari
keppni og er
óhætt að segja að
við höfum rennt
svolítið blint í
sjóinn því við
vissum ekkert
hvað við vorum
að fara út í. Við fórum nokkur með
út til að fylgjast með og læra
hvernig þetta virkar. Liðið okkar
stóð sig með sóma miðað við fyrstu
keppni en þetta snýst töluvert um
reynslu eins og sást á hinum
liðunum. En planið er svo að fara
aftur út í mars, í keppni sem haldin
verður í Danmörku. Þar mun ég sjá
um brauðið, annar um skrautstykki
úr brauðadeigi og svo annar um
pastry sem eru vínarbrauð, croissant
og brioche. Svo er öllu raðað á borð
og dómarar dæma síðan herleg-
heitin,“ segir Birgir en að hans sögn
er Bakaralandsliðið opið öllum sem
hafa áhuga og metnað. Ef maður
ætlar að keppa á svona móti þarf
maður að hafa áhuga og metnað því
það fer gríðarlegur tími í æfingar,“
segir Birgir að lokum.
Birgir Þór Sigurjónsson starfar sem bakari hjá Brauð & Co.
Einfaldleiki og besta
mögulega hráefnið
:: Er hugmyndafræði Brauð & Co. sem er eitt vinsælasta bakarí landsins
um þessar mundir :: Tók þátt í að stofna íslenska bakaralandsliðið
EiNAR KRiStiNN HELGASoN
einarkrist inn@eyjafrett ir. is
Birgir Þór og félagar í íslenska bakaralandsliðinu.
Birgir Þór Sigurjónsson, bakari hjá Brauð og Co.” Sérstaða okkar er líka sú að við erum að baka allan daginn og fólk getur alltaf fengið nýbakaða vöru og séð okkur gera vöruna frá grunni.