Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Blaðsíða 20
vetraráætlun herjólfs *áætlun getur tekið breytingum – nánar á ferjur.is vestmannaeyjar - landeyjar fös. sun. 08:30 11:00 16:00 18:45 21:00 mán. fim. lau. 08:30 11:00 - 18:45 21:00 þri. mið. 08:30 11:00 - 18:45 - landeyjar - vestmannaeyjar fös. sun. 09:45 12:45 17:10 19:45 22:00 mán. fim. lau. 09:45 12:45 - 19:45 22:00 Þri. mið. 09:45 12:45 - 19:45 - Opnunartími / mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / um helgar kl . 10-21 góð verslun í alfaraleið Ný tilboð vikulega Heimsendingarþjónusta. pistillinn SuShi frá Osushi kemur til okkar föstudaga kl. 17.30. Tökum niður pantanir! Á laugardaginn er kosið til Alþingis og verða þetta þriðju kosningarnar frá árinu 2013. Ekki ætla ég að ræða stjórnmálaástandið í landinu, sem er þó í nokkurri upplausn og alls ekki segja fólki hvað það á að kjósa heldur gera tilraun til að rýna í þá möguleika sem Vestmannaey- ingar eiga í framtíðinni. Þar eigum við mikið undir öflugum samgöngum og ef ekki rætist úr verða Vestmannaeyjar undir í baráttunni um fólk og fyrirtæki. Flóknara er það ekki en mig langar að kíkja aðeins lengra fram á veginn og spá í hvar tækifærin eru. Í aldir hafa fiskveiðar og framleiðsla á mat verið undirstaðan í atvinnulífi Vestmanna- eyja og þó ferðamennska hafi eflst og orðið önnur stoðin verða fiskveiðar og framleiðsla á sjávarafurðum það sem mestu skiptir. Í sjávarútvegi eins og í öðrum greinum er aukin tæknivæðing og alltaf þarf færri hendur til að koma með aflann að landi og vinna. Ferðamannaiðnaður er mannfrek grein en kemur ekki til með að vega upp á móti og hvað er þá til ráða? Í dag skiptir miklu að skapa sér sérstöðu sem Vestmannaeyjar hafa að einhverju leyti sem eyjar úti í hafi og bjóða upp á meiri fjölbreytni í náttúrunni á litlum bletti en þekkist víðast annars staðar í heiminum. Þetta fer ekki frá okkur en þróun greinarinnar ræðst af samgöngum sem vonandi komast í betra horf með nýrri ferju á næsta ári. Það sem getur hjálpað þessum undirstöðuatvinnugreinum okkar og bæjarfélaginu öllu er að Vestmanna- eyjar sem heild sæki um alþjóðlega umhverfisvottun. Stórt skref í þá átt er uppsetning á sjóvarmadælustöð- inni sem HS Veitur eru að reisa við Hlíðarveginn. Hvað er umhverfis- vænna en að sólin sem í dag hitar upp sjóinn í Mexíkóflóa hiti upp hús hér nyrst í Atlantshafi tveimur eða þremur árum seinna eða hvað það tekur Golfstrauminn langan tíma að ferðast til okkur? Þarna er tækifæri sem sjávarút- vegur, ferðamannaiðnaður og bæjarstjórn ættu að skoða í sameiningu. Kanna hvort þetta sé mögulegt, hvað þarf til og hvað þetta gæti komið til með að kosta. Það skilar sér fljótt því fólk er tilbúið að borga meira fyrir umhverfisvottaða vöru og rekjan- leika hennar sem er lítið mál með fiskinn okkar. Það verður líka eftirsóknarverðara að heimsækja okkur. Þetta yrði að vera sameiginlegt átak okkar allra og víða má taka til hendinni í betri umgengni sem gæti verið fyrsta skrefið. Er það sem nú er verið að gera í fráveitumálum nóg til að Vestmannaeyjar eigi möguleika á vottun fyrir um- hverfismál? Þetta og margt fleira þarf að skoða og ekki eftir neinu að bíða og forkönnun þarf ekki að kosta svo mikið. Umhverfis- vottaðar Vestmanna- eyjar málið? s. 481-1300 | frettir@eyjafrettir.is | www.eyjafrettir.is hEiM AÐ DYRuM - kr. 1.920 á mán. Með áskrift að Eyjafréttum færðu vikulegar fréttir, heim að dyrum, af öllu því helsta sem um er að vera í Vestmannaeyjum eða tengist Eyjum á einn eða annan hátt. Ekki nóg með það heldur getur þú einnig nálgast blaðið þitt á Eyjafrettir.is hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum færðu líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum um leið og þær gerast. NETÁSKRiFT - kr. 1.490 á mán. Með netáskrift að Eyjafréttum ertu alltaf með blaðið við hendina. Þú færðu aðgang að blaði Eyjafrétta á Eyjafrettir.is þegar þér hentar, hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum færðu líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum um leið og þær gerast. Vertu með á nótunum og skráðu þig í áskrift núna á eyjafrettir.is eða í síma 481-1300. ÞÚ FÆRÐ MEiRA Í ÁSKRiFT AUGLÝSING UM KJÖRSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM Kjörstaður í Vestmannaeyjum vegna alþingiskosninga sem fram fara 28. október 2017 verður í Barnaskóla Vestmannaeyja, inngangur um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr. Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 að kveldi sama dags. Bænum verður skipt í tvær kjördeildir: Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 22. september 2017 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra, sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi. Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 22. september 2017 við Hátún til og með Vesturvegi, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum, er bera bæjarnöfn. Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Yfirkjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja á kjördegi. Yfirkjörstjórnin í Vestmannaeyjum. Jóhann Pétursson - Ólafur Elísson - Þór Ísfeld Vilhjálmsson ómar Garðarsson omar@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.