Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Blaðsíða 10
10 - Eyjafréttir Miðvikudagur 25. október 2017 alþingiskosningar 2017 Vinna Atvinna er undirstaða vaxtar og velferðar og gegna lítil og meðalstór fyrirtæki þar lykilhlutverki. Hlutverk ríkisins er fyrst og fremst að skapa hagstæða umgjörð um atvinnulífið, meðal annars með einföldun skattkerfis og regluverks atvinnu- rekstrar. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki búi við íþyngjandi kröfur sem ekki þjóna tilgangi sínum. Mikilvægt er að gefa sem flestum tækifæri til að nýta starfskrafta sína með viðeigandi hætti. Framsókn vill afnema frítekjumarkið af atvinnutekjum. Margir þeir sem eru komnir á efri ár og eiga rétt á lífeyri frá almannatryggingum vilja halda áfram að vinna. Fólk á rétt á að hafa val. Þeir sem vilja og geta unnið, eiga að fá tækifæri til þess. Fátt er eins ömurlegt að langa til að halda áfram á atvinnumarkaðnum en upplifa neikvæða umbun í formi skerð- ingar á lífeyri. Atvinnuþátttaka aldraða leiðir til betri heilsu og heilbrigðara samfélags. Vöxtur Framsókn vill fjarlægja húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs og banna verðtryggingu á á neytenda- og íbúðalánum. Banna þarf ný verðtryggð lán svo heimilum bjóðist hag- stæðir óverðtryggðir vextir og skapa þannig hvata og stuðning við heimili til að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð. Verð á húsnæði hefur að jafnaði hækkað meira en verð á öðrum vörum og þjónustu sem skekkir vísitölu neysluverðs. Afleiðingin er að verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um tugi milljarða undan- farin ár. Framsókn vill stuðla að því að raunvextir lækki. Aðgerðir varðandi verðtrygg- ingu og að húsnæðis- liðurinn sé tekinn út úr vísitölunni munu stuðla að vaxtalækk- un. Framsókn vill samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um hvernig hægt sé að sammælast um lækkun vaxta t.a.m. við kjarasamningsgerð. Velferð Framsókn vill fjárfesta í heilbrigðis-, samgöngu- og menntamálum. Setja þarf 20 milljarða í heilbrigðis-, samgöngu- og menntamál til að bregðast við brýnni þörf. Framsókn telur mikilvægt að nota ríflegan afgang af ríkisrekstri til að fjárfesta í betra heilbrigðiskerfi, betri lífsgæðum og betri samgöngum ásamt því að lækka skuldir ríkissjóðs. SiGurður iNGi JÓhANNSSoN, formaður Framsóknarflokksins, 1. sæti í Suðurkjördæmi BVinna - vöxtur - velferð Ísland er fámennt og dreifbýlt land og því er góð heilbrigðisþjónusta fyrir alla heilmikil áskorun. En markmiðið er að íbúar njóti jafnræðis. heilbrigðisáætlun Við Framsóknarmenn gerðum heilbrigðisáætlun fyrir Ísland, að forgangsmáli okkar. Málið var samþykkt vorið 2017. Áætlunin felur í sér að fé verði úthlutað til stofnana með markvissum hætti og tekið tillit til íbúaþróunar, aldurssamsetningar íbúa, fjarlægða og umfangi ferðamannastaða, svo eitthvað sé nefnt. Fæðingar fjarri heimabyggð Brýnt er að komið sé til móts við fólk sem þarf að sækja fæðingarþjónustu um langan veg. Undirrituð hefur lagt fram frumvarp í tvígang um að lögum um fæðingarorlof verði breytt. Með frumvarpinu er lagt til að réttur foreldra til fæðingarorlofs eða -styrks framlengist sem nemur þeim tíma sem þeir þurfa að dveljast fjarri heimili til að vera í öruggri nálægð við fæðingarhjálp. Fólk á ekki að gjalda þess að búa fjarri fæðingar- stöðum og fjarri heilbrigðisþjónustu almennt. Fjármagnið er til staðar Við getum fjármagnað þessi verkefni. Framsóknarflokkurinn vill fjárfesta 20 milljarða í heilbrigðis-, samgöngu- og menntakerfinu, þar af færu 10 milljarðar í heilbrigðiskerfið. Slík fjárfesting ógnar ekki stöðugleikanum. Tekjuafgangur ríkissjóðs er umtalsvert meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er kominn tími til að fjárfesta í heil- brigðiskerfinu okkar. Getum við ekki öll verið sammála um það? SilJA DöGG GuNNArSDÓttir, þingmaður Framsóknarflokksins Samgöngur eru lífæð hvers byggðar- lags, tökum á þeim málum og tryggjum samgöngur milli lands og Eyja bæði á sjó og í lofti. tryggjum siglingar herjólfs Í huga Framsóknarmanna er ljóst að tryggja þarf öruggar siglingar Herjólfs milli lands og Eyja. Þegar nýr Herjólfur hefur siglingar þarf „gamli Herjólfur” að vera til taks til að tryggja að hægt verði að sigla til Þorláks- hafnar þegar veður hamlar siglingum í Landeyjahöfn og á meðan reynsla kemur á nýtt skip. Halda þarf áfram að hanna og þróa Landeyja- höfn, fá mat frá nýjum óháðum aðila áður en haldið verður áfram með verkið. innanlandsflugið er almenn- ingssamgöngur Eflum innanlandsflugið að skoskri fyrirmynd þar sem íbúar skilgreinds svæðis fái afslátt af flugfargjaldi. Setjum stefnu um almenningssam- göngur um land allt - strætó, ferjur og flug með það að markmiði að draga úr kostnaði og tryggja að allir eigi kost á að nýta sér samgöngur óháð efnahag. ÁSGErður K. GylFADÓttir, 3. sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. tækifærin eru til staðar Er leiðin fær? C Okkur ber skylda til að fjárfesta í grundvallar- stofnunum samfélagsins af skynsemi og til framtíðar. Það er á hinn bóginn dýrt að taka velferðina að láni eins og vinstri lántöku- flokkarnir boða. Að ráðast í hundruða milljarða króna útgjaldaaukningu í áhættu- stórsókn mun auk þess enda með stórtapi fyrir allan almenning í landinu. Allt mælir gegn því að eyða afganginum og taka lán fyrir restinni eins og sumir flokkar boða nú. Öruggar samgöngur, góð heilbrigðis- og velferðarþjónusta, gott menntastarf á öllum skólastigum, tryggt húsnæði og öflugt atvinnulíf um allt land, allt eru þetta vel- ferðarmál sem eiga ekki bara að vera í lagi, heldur í hæsta gæðaflokki. En velferð til framtíðar kallar á ábyrgð og ítrustu útsjónar- semi af hálfu stjórnvalda. Almannafé verður að forgangsraða í verkefni sem munu nýtast landsmönnum sem best. Að forgangsraða í uppbyggingu hjúkrunar- heimila er skynsamleg nýting á almannafé enda stórbætir það bæði lífsgæði aldraðra að hafa aðgengi að viðeigandi þjónustu og dregur stórum úr kostnaði ríkisins af því að bjóða öldruðum upp á aðstæður sem hvorki þjóna þeim né sjúkrastofnunum landsins. Þannig bætum við líka þjónustu við aðra aldurshópa sem eru á biðlistum eftir þjónustu sjúkrahúsa. Að forgangsraða í samgöngukerfið í sinni víðustu merkingu, lífæðar samfélagsins, þjónar öllum til framtíðar. Þar ber að sjálfsögðu að forgangsraða á þau svæði þar sem álagið og óöryggið er hvað mest, þ.e. á suður- og suðvesturhorn landsins. Viðreisn vill að flugvélaeldsneyti kosti það sama um allt land þannig að flugfélög geti flogið beint á flugvelli á landsbyggðinni og við viljum að innanlandsflug verði skilgreint sem almenn- ingssamgöngur líkt og strætó og ferjuflutn- ingar. Að draga úr kostnaði við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með einföldun bygginga- reglugerðar tryggir lægra húsnæðisverð og þjónar þannig öllum þeim fjölda sem nú er að undirbúa sig við að stíga fyrstu skref inn á íbúðamarkað sem og þeim sem vilja minnka við sig. Jafnréttismál eru velferðarmál. Þess vegna viljum við ná fram, í samstarfi ríkis, sveitar- félaga og stéttarfélaga, þjóðarsátt um leiðréttingu launa kvennastétta sem aftur væri stórt skref í átt að því að útrýma kynbundnum launamun. Við viljum brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, efla leikskóla- stigið og að réttur til dagvistunar sé tryggður frá 12 mánaða aldri. Þá þarf að ráðast í átak gegn kynbundnu ofbeldi, m.a. með nýju samþykkisfrumvarpi sem Viðreisn lagði fram til að stórbæta réttarstöðu þolenda kynferðis- ofbeldis. Viðreisn sýndi á spilin um síðustu helgi, þ.e. hvernig við ætlum að fjármagna það sem við setjum fram í þessari kosningabaráttu. Upplýsingar um það má finna á heimasíðu flokksins. Þá eiga stjórnmálamenn að nýta öll möguleg tækifæri til að bæta lífskjör í landinu og þar er stærsta sóknarfærið að festa krónuna við öflugan gjaldmiðil til að ná niður vaxtastiginu og skapa íslenskum fyrirtækjum stöðugt og gott rekstrarumhverfi til framtíðar. Að festa gengið gæti helmingað vaxtakostnað heimila, fyrirtækja og ríkisins sem aftur skapar stóraukið svigrúm fyrir alla til varanlegrar velferðar. Almenningur á ekki að þurfa að vinna kauplaust í sex vikur á ári fyrir fljótandi íslenska krónu! Kjósum varanlega velferð, lægri vexti og stöðugleika. Kjósum Viðreisn! Kjósum varanlega velferð Jóna Sólveig Elínardóttir varaformaður Viðreisnar og oddviti flokksins í Suðurkjördæmi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.