Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Síða 12
12 - Eyjafréttir Miðvikudagur 25. október 2017
alþingiskosningar 2017
Það eru kosningar á laugardaginn og það eru
margir flokkar í boði. Við sem skrifum þessa
grein mælum með því að þú kæri lesandi
kjósir Samfylkinguna. Það eru margar
ástæður fyrir því. Fyrst og fremst er ástæðan
sú að Samfylkingin er jafnaðarmannaflokkur
Íslands og berst fyrir jafnaðarstefnunni alla
daga allan ársins hring. Við erum ekki
jafnaðarmenn eingöngu dagana fyrir
kosningar eins og nýju flokkarnir sem fengu
brautargengi í síðustu kosningum en felldu
grímuna rækilega með fjárlagafrumvarpinu
fyrir árið 2018. Við viljum endurreisa
heilbrigðiskerfið og gera það með því að
styrkja opinbera hluta þess, spítalana og
heilbrigðisstofnanirnar um allt land. Sjúkra-
flutningar eru þar með taldir.
Heilbrigðismálin brenna á íbúum í Vest-
mannaeyjum og það gera samgöngumálin
einnig, enda augljóst vegna landfræðilegra
ástæðna að það þarf að gera miklu betur á
þeim sviðum. Og þessi tvö stóru hagsmuna-
mál eru samofin.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur átt við
rekstrarvanda að stríða sem nauðsynlegt er að
taka á af festu. Sjúkraflutninga verður að bæta
og Samfylkingin vill að kaup eða leiga á
þyrlum verði könnuð sérstaklega sem leið til
að auka öryggi sjúklinga og tryggja að þeir
komist undir læknishendur eins fljótt og
mögulegt er. Nýta á í auknum mæli tækni og
nýjustu tæki til að bæta heilbrigðisþjónustuna.
Samfylkingin leggur áherslu á að fjarlækn-
ingar verði aðgengilegar þannig að lands-
byggðin njóti greiningar færustu sérfræðinga
án þess að þurfa að ferðast um langan veg.
hagsmunir í húfi
Nýr Herjólfur og betri Landeyjahöfn er ekki
bara nauðsynleg samgöngubót fyrir íbúa
heldur er samgöngubótin nauðsynleg fyrir
atvinnurekstur og ekki síst ferðaþjónustuna.
Hver dagur sem ekki er mögulegt að sigla frá
Landeyjahöfn bitnar á möguleikum Vest-
mannaeyinga til að selja þjónustu sína og
skapa samfélaginu verðmæti. Svo ekki sé
talað um mikilvægi þess að Vestmannaeyingar
geti sótt þjónustu og heimsótt ættingja sína í
landi. Samfylkingin telur að það þjóni best
hagsmunum íbúa Vestmannaeyja að bærinn
sjái um reksturinn á nýju ferjunni.
Skólastarf sem mætir þörfum íbúa er einn af
hornsteinum búsetuskilyrða í Vestmanna-
eyjum. Þar er Framhaldsskólinn í lykilhlut-
verki og háskólastarfsemin drifkraftur
nýsköpunar. Nýsköpun í sjávarútvegi er frjó
og spennandi þessi misserin þar sem leitað er
leiða til að hámarka virði hvers fisks sem
dregin er að landi. Verðmætar afurðir úr
fiskroði eru nýjungar sem hafa gengið vel.
Rannsóknir á enn fleiri möguleikum eru
hafnar og ríkið á að ýta undir frekara starf á
þessu sviði.
látum hjartað ráða för
Samfylkingin jafnaðarmannaflokkur Íslands
hefur ekki skipt um stefnu frá kosningum
fyrir ári síðan. Stefnan er innblásin af
hugsjónum jafnaðarmanna. Við hverjum þig
lesandi góður til að skoða stefnuna okkar á
heimsíðu Samfylkingarinnar www.xs.is og
hugsa til okkar í kjörklefanum á laugardaginn.
Látum hjartað ráða för.
Kjósum Samfylkinguna.
S
Kjósum Samfylkinguna
ODDný g. hArðArDóTTir, alþingismaður
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
ArnA hUlD SigUrðArDóTTir,
hjúkrunarfræðingur í Vestmannaeyjum
M
Við búum í lýðræðisríki, kjósendur hafa sem
betur fer völd. Kjósendur geta ákveðið hverjir
fara á þing og hverjir ekki. Margir frambjóð-
endur telja sig geta unnið landi og þjóð gagn
og vilja verða þingmenn og aðrir vilja halda
áfram að vera þingmenn. Sumir ná takmark-
inu en aðrir ekki. Kjósendur geta líka, sem
betur fer, tekið nokkuð upplýsta ákvörðun
áður en þeir setja kjörseðilinn í kassann.
Viljum við hafa fólk í vinnu sem á erfitt með
að taka ákvarðanir eða taka af skarið? Viljum
við hafa fólk í vinnu sem fer í skóla þegar það
er kosið til þess að sinna þingstörfum? Viljum
við hafa fólk í vinnu sem segir eitt en gerir
annað?
Sjósamgöngur til Eyja
Dæmalaus vandræðagangur þingmanna
Suðurkjördæmis er varðar sjósamgöngur til
Eyja er vægast sagt sorglegur. Greiðar
samgöngur til og frá Eyjum eru ekki einkamál
Eyjamanna. Greiðar samgöngur til Eyja eru
hagsmunamál allra landsmanna til að landið
allt virki sem ein heild. Kröfurnar sem
Vestmannaeyjabær setur fram í dag fyrir hönd
íbúa sinna sem sínar ítrustu kröfur í við-
ræðum sínum við kerfið og biðja þingmenn
Suðurkjördæmis að aðstoða sig við eru þær
helstar að heimamenn vilja tryggja reglulegar
siglingar til og frá landi og að sá rekstur
standi undir sér.
Er þessi ósk sem heimamenn kalla ítrustu
kröfur, freklegar? Er krafan um greiðar
sjósamgöngur á milli lands og Eyja, frekleg?
Er óskin um að það verði siglt alla daga
ársins, frekleg? Er óskin um að sömu fargjöld
gildi, hvort sem siglt er að og frá Þorlákshöfn
eða Landeyjahöfn, frekleg? Hvað finnst þér?
Okkur í Miðflokknum finnst þessar kröfur á
engan hátt vera freklegar. „Ítrasta krafan“ er
einfaldlega sjálfsögð.
Hvernig væri nú að kerfið og þingmenn
Suðurkjördæmis settust niður með Eyja-
mönnum og færu ekki frá borði fyrr en besta
lausnin í dag og til framtíðar er fundin og
þeim síðan fylgt eftir af krafti þ.e. með
framkvæmdum.
Upplýst hefur verið að nokkrir undirbúnings-
fundir hafi verið haldnir vegna þessa
verkefnis nú rúmlega sjö árum eftir að
Landeyjarhöfn var tekin í notkun. Sjö ára
vandræðagangur og svo ekkert gefið upp um
það hvað verið er að ræða eða hvort það sé
verið að vinna að einhverri rökréttri lausn.
Miðflokkurinn telur að besta lausin í dag sé
sú að Vestmannaeyjabær taki yfir rekstur
ferjusiglinga á milli lands og Eyja. Eyjamenn
sjái um rekstur nýju ferjunnar og að Herjólfur
verði ávallt til staðar er á þarf að halda.
Miðflokkurinn telur síðan að vinna þurfi af
krafti að framtíðarlausn svo að samgöngur til
Eyja séu minna háðar veðurguðum.
Miðflokkurinn er afl sem þorir.
Miðflokkurinn er nýtt stjórnmálaafl sem
byggt er á traustum grunni. Við erum komin í
stjórnmál til þess að framkvæma og erum
ekki ákvarðanafælin. Við ætlum að láta
lýðræðið virka á Íslandi. Við látum ekki kerfið
segja okkur fyrir verkum né telja okkur trú
um að engu sé hægt að breyta. Við ætlum að
breyta fjármálakerfinu, lækka vexti, afnema
verðtrygginguna, leiðrétta kjör eldri borgara,
byggja nýjan Landspítala og bæta samgöngur.
Allt kostar þetta peninga en við höfum
raunhæfar tillögur um hvaðan peningarnir
eiga að koma. Þeir munu koma úr endur-
skipulagningu fjármálakerfisins. Við munum
ekki hækka skatta. Við ætlum að bæta
lífskjörin á Íslandi og bæta búsetuskilyrðin í
Suðurkjördæmi. Við óskum eftir þínum
stuðningi á laugardaginn kæri kjósandi, svo
við getum hafist handa.
X-M
Að segja eitt en gera annað
Birgir ÞórArinSSOn, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi.