Fréttir - Eyjafréttir - 25.10.2017, Blaðsíða 13
Eyjafréttir - 13
öll klár
í bátana
Við Gunnar Marel vorum klárir í bátana í
síðstu viku, komum og fórum fljúgandi, þökk
sé dúndurflugmönnum Arna, eftir mjög góða
tveggja daga heimsókn og ánægjulegar
viðtökur. Við blasir að margt gengur vel í
Eyjum en samt kalla sömu brýnu verkefnin á
lausnir og síðast, enn eitt kjörtímabilið:
Kunnugleg málefni, allt frá samgöngumálum
og heilbrigðisþjónustu til skóla- og velferðar-
mála þar sem almannatryggingar og kjaramál
aldraðra og öryrkja ber hátt. Stefnumál
stjórnarflokkanna og þingmanna þeirra hafa
lítt verið efnd og lofuð samvinna ekki orðið
að veruleika af hálfu stjórnvalda. Stöðnun eða
niðurskurður einkennir fyrirætlanir í ríkisfjár-
málum í þeim málaflokkum sem mest er horft
til. Nú sýna allir stjórnmálaflokkar skilning
líkt og áður en ávallt er spurning um hver
framkvæmir með styrk og trausti sem til þarf.
Tími er til kominn að skipta um forystu í
landsmálunum, vissulega í samsteypustjórn,
en með félagslegar áherslur í fyrirrúmi. Efna
hægt og bítandi til umbótanna, forgangsraða
þeim og koma á þeirri samvinnu sem
nauðsynleg er til að verkin gangi upp. Gunnar
Marel og ég heyrðum margar skoðanir í þessa
veru og lítum á kosningarnar sem sjaldfengið
tækifæri til vinstri stjórnar í töluverðu góðæri,
í stað neyðarviðgerða eftir hrunið.
Vinstri græn leggja áherslu á margar leiðir til
að afla lágmarksupphæðar í brýnustu
lagfæringar á helstu sviðum en hlífa um leið
nær öllum tekjuhópum við skattaálögum. Við
skulum íhuga saman hvort efnuðustu 10%
landsmanna (sem eiga 2/3 hluta allra eigna),
hópurinn í 10. tekjuflokki Hagstofunnar (með
yfir 330 milljarða árstekjur) og 1-2%
fjármagnstekjueigenda (sem eiga upp undir
50% fjármagnstekna eða yfir 50 milljarða)
teljist aflögufær. Til viðbótar mætti horfa til
hærri arðgreiðslna úr bönkum sem ríkið ræður
yfir, til hluta af 43 milljarða afgangi í fjárlaga-
frumvarpinu og til auðlindagjalda stórra
fyrirtækja með þéttan hagnað, svo sumt sé
nefnt. Ég hvet alla til að mæta á kjörstað.
Ari TrAUSTi gUðMUnDSSOn
oddviti lista Vg í Suðurkjördæmi
V
Miðvikudagur 25. október 2017
alþingiskosningar 2017
Við viljum tryggja öruggar samgöngur fyrir
alla. Með uppbyggingu samgangna viljum við
tryggja öryggi íbúa landsins, mörg sveitarfélög
búa við óásættanlegar samgöngur þar sem
ófært er löngum stundum. Við viljum bæta
vegi og göng þar sem því er ábótavant til að
tryggja samgönguflæði allan ársins hring.
Mikilvægt er að styðja við samgöngur á veg-
um, sjó og með flugi fyrir íbúa á landsbyggð-
inni þegar þeir þurfa að sækja þjónustu langt út
fyrir heimabyggð sína.
Dögun vill að endurnýjun og viðhald vega-
kerfisins byggist á heildrænu landsskipulagi
sem miði annars vegar að því að landið haldist
áfram í byggð og hins vegar að því að hámarka
umferðaröryggi samkvæmt svo kallaðri „núll-
sýn“ sem snýst um að fækka dauðaslysum í
umferðinni niður í ekkert.
Að aka um Vestfirðina er ótrúlega fallegt en ég
finn til með bílum þar sem vegirnir eru hand-
ónýtir, hola við holu. Þar er samt hægt að aka
leiðar sinnar eða taka ferjuna Baldur yfir
Breiðafjörðinn. Íbúar í Vestmannaeyjum eiga
ekki kost á því að aka í land og er mér stórlega
til efs að það muni hægt í nánustu framtíð.
Ferjusiglingar og flug eru því þeirra þjóðvegur
númer 1 og því eðlilegt að það sé til staðar
fyrir íbúana í gegnum samgöngustofu. Ferju-
siglingar á milli lands og Eyja þurfa að taka
mið af aðstæðum, ég velti fyrir mér hvort
„flugbátar“ loftpúðaskip gætu nýtst betur
þarna á milli en slík skip voru notuð á milli
Danmerkur og Svíþjóðar.
Við þurfum einnig að draga úr þungaflutning-
um á þjóðvegum enda þjóðhagslega hagkvæmt
að taka upp strandsiglingar að nýju. Vegafram-
kvæmdir verði ætíð metnar með tilliti til ör-
yggis- og umhverfissjónarmiða sem og stytt-
ingar akstursleiða.
Góðar samgöngur og gott aðgengi að heil-
brigðiskerfi helst í hendur. Dögun telur það
forgangsmál að snúa við niðurskurði í heil-
brigðisþjónustu. Niðurskurðurinn hefur stór-
skaðað heilbrigðiskerfið og víðast hvar er
þjónustan verulega skert. Þá er sjúkrahúsþjón-
usta orðin að mestu einangruð við LSH og
FSA. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu er í
kreppu og víða úti um land gengur illa að reka
og manna þjónustuna. Skortur er á heimaþjón-
ustu og stuðningi við aldraða og sjúka.
Dögun vill að heilbrigðisþjónustan verði end-
urskipulögð og snúið frá allsherjar miðstýr-
ingu ráðuneytisins og forstjóraveldi á spítöl-
um. Dögun leggur áherslu á að stjórnvöld
skilgreini grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu
og íbúar eiga ekki að þurfa að aka um langan
veg til að fá góða heilbrigðisþjónustu. Dögun
vill að sjúkrahúsþjónusta og aðgengi að sér-
hæfðu heilbrigðisstarfsfólki verði efld í öllum
landshlutum. Dögun leggur áherslu á samstarf
heilsugæslunnar og félags- og sálfræðiþjón-
ustu.
Það er mikilvægt að kjör heilbrigðis- og um-
önnunarstétta verði bætt til að stöðva spekilek-
ann og tryggja að sú fjárfesting sem lögð hefur
verið í með menntun þessara stétta nýtist inn-
anlands. Dögun vill að lýðheilsa og forvarnir
verði sett í forgang í samfélaginu, vitund fólks
um ábyrgð þess á eigin heilsu elfd og telur það
vera ódýrara að halda fólki heilbrigðu en
lækna sjúka.
rAgnhilDUr l. gUðMUnDSDóTTir
1. sæti í Suðurkjördæmi
Dögun, stjórnmálasamtök um
réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Samgöngur og
heilbrigðismál
T