Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.1999, Side 2

Skessuhorn - 11.03.1999, Side 2
2 FIMMtÚDAGLÍR 11. MARS 1999 VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262 FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is Afgreiðsla á Akranesi er á Suðurgötu 62, sími 431 4222 fax 431 2261 Útgefandi: Skessuhorn ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098 Blaðamaður: Kristján Kristjánsson, sími 892 4098 Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir, Borgarnesi sími 437 2262 Silja Allansdóttir, Akranesi, sími 855 2148 Prófarkalestur: Ágústa Þorvaldsdóttir og fleiri. Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Skrifstofur blaðsins eru opnar kl. 10-12 og 13-16. Kristján Kristjánsson Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánudögum. Litaauglýsingar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó að berast biaðinu í síðasta lagi á hádegi á mánudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðió er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda. Áskriftarverð er 800 krónur á mánuði. Verð í lausasölu er 200 krónur. Áskriftarsími er 437 2262. Gubrún Björk Áfengi Gísli Einarsson, ritstjóri. Ég fékk mér í glas með félögunum um síðustu helgi sem vart er í frásögur færandi-. Að vísu er það fátt sem menn færa frekar í frásög- ur en eigin drykkjuskap. Drykkjusögur hafa nefnilega frá örófi alda verið efst á vinsældalista þeirra sem á annað borð hafa gaman af að tala. Mér er þó þröngur stakkur skorinn á þessu sviði sem svo mörg- um öðrum. Ég get kannski sagt frá því hvar ég drakk, með hverjum ég drakk og hvers vegna ég drakk. Ég get aftur á móti ekki sagt hvað ég drakk og hversu sterkt það var. Það myndi flokkast sem áfengis- auglýsing og þessa dagana varðaði það við lög. Ég hefði getað sagt ykkur það fyrir viku síðan en ekki í dag. Þar með er sagan ónýt fyr- ir mér því það eru einmitt þessar upplýsingar sem allar góðar drykkjusögur grundvallast á. Að sjálfsögðu virði ég sjónarmið þeirra sem vilja banna áfengis- auglýsingar og allra þeirra sem basla í vímuvömum af einhverju tagi. Það er ekki aðlaðandi sjón að sjá unglinga veltast um ælandi og skælandi eftir að hafa sett ofan í sig meira af alkohóli en góðu hófi gegnir. I minni sveit er áfengi meðhöndlað af nærgætni og innbyrt á kúltiveraðan hátt og ef allir hefðu sömu siði þá væri ekki um vanda- mál að ræða. Það sem ég geri athugasemd við er að fyrst það er á annað borð leyft að selja áfengi hvaða rök mæla þá gegn því að innflytjendur og seljendur fái að ota sinni vöra að þeim sem á annað borð vilja setja ofan í sig þennan drykk. Kannski þau rök að ef viðkomandi innflytj- andi auglýsir xxxxx gæðadrykkinn með aprikósubragði þá verður Bjössi róni alveg friðlaus og linnir ekki látum fyrr en hann hefur drakkið frá sér allt vit. Kannski er eitthvað til í þessu en ég þekki Bjössa róna það vel að ég veit að hann gleymir ekki sinni áfeng- islöngun þótt hann sjái ekki áfengisauglýsingar í dagblöðum eða sjónvarpi. Það eina sem gæti breyst er að Bjössi myndi kannski frek- ar drekka drykk A en drykk B í dag ef hann yrði fyrir áhrifum frá auglýsingum en það myndi ekki breyta því að hann yrði jafn mikið undir áhrifum og alla aðra daga. Ég lifi sjálfur eftir kenningum Salómons um að hóflega drakkið vín gleðji mannsins hjarta. Ég ótt- ast ekki að áfengisauglýsingar, þrátt fyrir meint hvetjandi áhrif, muni gera það að verkum að mitt hjarta gleðjist um of. Ég mun í engu hvika frá þeim venjum mínum að drekka mitt r... (úps -þama munaði mjóu) bara þegar mig langar í það óháð öllu auglýsingaskrami. Ég ætla að sjálfsögðu ekki að reyna að halda því fram að áfengi sé með öllu hættulaus vökvi. Ég bendi aftur á móti á það að hætturn- ar era fleiri. Bifreiðar eru afskaplega hættuleg tæki og get ég vottað það. Þó hefur engum dottið í hug að banna bílaauglýsingar. Jú, það má vissulega segja að það séu ekki bílamir sjálfir sem skapa hættuna heldur vitleysingamir sem sitja undir stýri. Sömu rök gilda um áfeng- ið. Afengi er hættulaust þeim sem kunna með það að fara og getur jafnvel verið heilsusamlegt. Vissulega er stór hópur manna sem ætti alls ekki að smakka áfengi en það er örugglega ekki minni hópur sem ætti ekki að fá að aka bíl. Það er að mínu mati lítilsvirðing við alla þá sem geta umgengist áfengi á eðlilegan hátt að setja boð og bönn eingöngu vegna þess að mikill minnihluti getur það ekki. Það er jafn öfgakennt og að saka menn um nauðgun á þeim forsendum að þeir hafi tólin til þess. Gísli Einarsson, allsgáður Nýr vegur yfir Snæfellsnesfjallgaröinn Vegagerbin kynnir valkosti Vegagerðin í samvinnu við VSÓ ráðgjöf boðaði til kynningar mánudaginn 8. mars að Skildi í Helgafellsveit. Á kynningunni voru bornar saman tvær leiðir. Annars vegar endurbættur vegur yfir Kerlingarskarð og hins vegar veglagning um Vatnaheiði. Á fundinum lágu fyrir drög að skýrslu um mat á hugsanlegum um- hverfisáhrifum vegna nýrrar veglínu. Fram kemur í drögunum að gert er ráð fyrir lágmarksröskun á lífríki, náttúruminjum og fuglalífi með veglagningu yfir Vatnaheiðina. M.a. á að leggja fljótandi veg yfir mýr- lendi svo uppfyllt séu skilyrði um vemdun votlendis. Þegar þessir tveir kostir eru bomir saman vega þyngst rök með lagningu nýrrar veglínu yfir Vatnaheiðina að sú leið mun verða 50% ömggari en endurbættur vegur um Kerlingarskarð. Þá mun hæsti punktur nýrrar leiðar verða 90 metr- um undir hæsta punkti endurbætts vegar um Kerlingarskarð og mikill meirihluti leiðar undh hæð vegar á Kerlingarskarði. Mesta hæð yfir sjávarmáli verður 228 metrar á móti 318 á Kerlingarskarði. Mesti halli á vegi um Vatnaheiði verður 7.8% á móti 9% á endurbættum vegi yfir Kerlingarskarð. Vindmælingar sýna einnig lægri vindhraða í hviðum á Vatnaheiði en á Kerlingarskarði. Það sem kemur þó kannski mest á óvart er að vegur yfir Vatnaheiði er áætlað- ur 30 milljón krónum ódýrari en end- urbættur vegur urn Kerlingarskarð. Gert er ráð fyrir að endanleg skýrsla vegna mats á umhverfisáhrifum verði lögð fyrir Skipulagsstjóra rikis- ins innan hálfs mánaðar en síðan kveður hann upp úrskurð sinn innan 10 vikna. Þetta ferli mun því taka þrjá mánuði og komi frám kæra vegna úrskurðar hans getur málið tafist í allt að þrjá mánuði til viðbót- ar. Reiknað er með því að fram- kvæmdir hefjist á árinu 2000 og verði að fullu lokið árið 2002. Gallup könnun Ingibjörg vinsæl Ingibjörg Pálmadóttir hefur á- stæbu til a& brosa þessa dagana en samkvæmt könnun Gallups nýtur hún mikilla vinsælda á Akranesi og í nágrenni. Ingibjörg Pálmadóttir nýtur mik- illa vinsælda meðal Akumesinga og nágranna ef marka má skoðanakönn- un sem Gallup gerði í spuminga- vagni dagana 5. - 11. febrúar síðast- liðinn. 65% þeirra sem tóku afstöðu töldu Ingibjörgu hafa staðið sig vel sem ráðherra og 70% svarenda töldu hana hafa staðið sig vel sem þing- maður Vesturlands. Úrtakið var tilviljunarúrtak úr Ár aldrabra bo&að er til fundar í Borgarnesi 'í tilefni af samþykkt Samein- uðu þjóðanna um að árið 1999- verði ár aldraðra og að málefni þeirra fái sérstaka umfjöllun á árinu verður haldinn fundur í Hótel Borgamesi fimmtudaginn 18. mars n.k. klukkan 14:00. Á fundinum mun Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra flytja ávarp, Ólafur Ólafsson f.v. landlæknir fjallar um heil- brigðismál aldraðra, sagt verður frá samþykkt S.Þ., erindi verður flutt um kjaramál auk þess sem sagt verður frá starfi félaga eldri borgara í kjördæminu. Dagskrá fundarins verður kynnt nánar í dreifibréfi. -MM þjóðskrá og voru þeir sem spurðir vora í póstnúmerum 300 og 301. Úr- takið var 600 einstaklingar. Fjöldi svarenda var 436 eða um 75% en 164 neituðu að svara eða náðist ekki í. í könnuninni var spurt tveggja spurninga. Fyrri spurningin var: Finnst þér Ingibjörg Pálmadóttir hafa staðið sig vel eða illa sem heilbrigð- isráðherra. 64,6% sögðu frekar vel eða mjög vel. Hvorki vel né illa sögðu 19,3%, frekar illa 10,9% og 5,2% töldu hana hafa staðið sig mjög illa. Síðari spumingin var: Finnst þér Ingibjörg Pálmadóttir hafa staðið sig vel eða illa sem þingmaður Vestur- landskjördæmis. Frekar vel eða mjög vel sögðu 70,0%, Hvorki vel né illa 19,7%, frekar illa 6,6% og mjög illa 3,8%. G.E. Snæfell í úrslit Úrvalsdeildarlið Snæfells í körfuknattieik tryggði sér um síðustu helgi sæti í úrslita- keppni íslandsmótsins í fyrsta sinn í sögu félagsins. Snæfellingar unnu góðan sig- ur á Haukum á útivelli og eru nú með 20 stig í deildinni í sjö- unda sæti þegar ein umferð er efth en IA og Haukar hafa 16 stig. Það er ljóst að Snæfelling- ar halda' sjöunda stætinu og mæta Njarðvík í átta liða úrslit- urh. Þeir leika við Keflvíkinga í síðustu umferðinni en úrslit þess leiks breyta engu um nið- urröðun í úrslitakeppninni. Það eru Haukar og ÍA sem berjast um sfðasta sætið í úrslitakeppn- inni. Haukarnir mæta Njarðvík- ingum í síðustu umferðinni en ÍA leikur við Skallagrím í Borg- amesi. Skallagrímur er í fall- baráttunni og ef þeir tapa þá verða þeir að treysta á að Valur geri það einnig. Síðasta um- ferðin fer fram í kvöld. -G.E. Innbrot á Akranesi Aðfáranótt síðastliðins laug- ardags var brotist inn á tveimur stöðum á Akranesi, Bíræfnh þjófar brutu sér leið inn í versl- unina Hljómsýn við Stillholt og létu þar greipar sópa og annar hópur braust inn í Bjamalaug og braut þar rúður, henti drash í laugina og hirti eitthvað af pen- ingum. Að sögn lögreglunnar á Akranesi eru bæði málin upp- lýst. Ekki hefur verið mikið um innbrot á Akranesi að undan- fömu ef frá eru skilin þessi at- vik um síðustu helgi. -G.E. Har&ur árekstur Nagladekkin ofmetin segja lögreglumenn Harður árekstur varð við Stillholt á Akranesi síðastliðinn mánudag er bifreið sem ók efth götunni rakst á aðra sem verið var að búkka út úr stæði. Engan sakaði í árekstrinum en báðh bflamir eru mikið skemmdir. Að sögn lögreglunnar á Akra- nesi var ökuhráðinn ekki í sam- ræmi við aðstæður en ísing var á götum. „Við verðum varh við að menn eiga það til að ofmeta nagladekkin en við aðstæður eins og hafa verið að undan- fömu vhka nagiamir eins og skautar og ökumenn hafa enga stjóm á bílunum ef þeir þurfa að nauðhemla." sagði Pétur Jó- hannsson lögrégluþjónn á Akra- nesi. Pétur Blöndal á Málstofu Pétur Blöndal alþingismaður og fjár- m á 1 a - speking- ur verð- ur máls- hefjandi á Mál- s t o f u S a m - vinnuhá- pétur Blöndal skólans alþingisma&ur. m i ð - vikudaginn 17. mars næstkom- andi. Yfirskrift fundarins er „Verðmæti heiðarleika og góðs siðferðis“. Pétur mun velta fyr- h sér hvort heiðarleika megi beinlínis meta til verðmæta, fyrir einstaklinga, atvinnulífið og þjóðfélagið. og þá hvemig. Málstofan hefst kl. 15.30. í há- tíðasal Samvinnuháskólans á Bifröst. Vegna fréttar um vinnslu á lobnu og síld á Snæfellsnesi Það skal tekið fram að frétt þessi var höfð nánast orðrétt eftir heimildarmanni Skessu- horns í Snæfellsbæ sem sat fundinn þar sem áskorunin var borin upp. Undirrituðum þykir leitt ef eitthvað hefur skolast til í meðföram og þá aðallega um hugsanlega staðsetningu vinnslunnar. Það er hins vegar alveg ljóst að þegar rætt er um samvinnu sem sé til hagsbóta fyrir svæðið,'í heild sinni þá er óhjákvæmilegt annað en láta af allri hreppapólitík og líta á það sem eitt atvinnusvæði. GK.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.