Skessuhorn - 25.03.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
bý'ÁTT’
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
Akranes: Suðurgötu 65, 2. hæð.
Sími: 431 4222. Fax: 431 2261. Netfang: skessa@aknet.is
Borgarnes: Borgarbraut 57, 2. hæð.
Sími: 437 2262. Fax: 437 2263. Netfang: skessuh@aknet.is
Skrifstofur blaðsins eru opnar kl. 10-12 og 13-16 alla virka daga.
Útgefandi: Skessuhorn ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098
Blaðamaður: Kristján Kristjánsson, sími 892 4098
Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir, Borgarnesi sími 437 2262
Silja Ailansdóttir, Akranesi, sími 697 4495 & 431 4222.
Prófarkalestur: Ágústa Þorvaldsdóttir og fleiri.
Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan.
Prentun: tsafoldarprentsmiðja hf.
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 16.00 á
mánudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasöiu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 200 krónur
með vsk.
Áskriftar- og auglýsingasími er 437 2262.
hott
á hesti
Það rifjaðist upp fyrir mér í gær þegar ég var
skammaður fyrir rúmum þremur árum síðan.
Það er þó ekki svo að ég sé það sjaldan
skammaður að ég muni það árum saman. Þvert
á móti hef ég verið skammaður oft og mörgurn
sinnum á hverjum einasta degi frá því ég man
eftir mér og eflaust átt það allt saman skilið. Ekki svo að skilja að ég taki
það nærri mér því ég hef með árunum orðið það forhertur að ég læt all-
ar skammir sem vind um eyru þjóta. Samt sem áður rifjuðust tilteknar
ávirðingar upp fyrir mér fyrir skömmu þar sem ég var á akstri eftir hrað-
brautum Vesturlands. Þá varð á vegi mínum hestur og ofan á honum
maður. Ég dró úr hraðanum og undirbjó framúrakstur af stakri nærgætni
en það varð þó bið á að ég gæti framkvæmt þá aðgerð. Parið fyrir fram-
an mig skeytti engu um það þótt ég væri afskaplega mikið að flýta mér.
Hesturinn, með manninn á bakinu, rölti milli vegkantanna á víxl þannig
að mér var með öllu fyrirmunað að komast framhjá þessu ágæta pari. Það
var því ekki fyrr en umrætt föruneyti var komið á leiðarenda og sveigði
útaf þjóðveginum sem ég fékk tækifæri til að stíga á bensíngjöfina.
Það var þá sem rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var skammaður. I raun
var ég ekki aðeins skammaður heldur hundskammaður, forsmáður og
bannfærður fyrir að aka einkabifreið minni þar sem tamningamaður var
að störfum sem reyndar var á fjölfömum þjóðvegi. Umræddur temjari
var að fara á bak á einhverri ótemjunni í fyrsta sinn og akstur minn gat
haft þær afleiðingar að hann hefði hugsanlega getað dottið af baki. Ef
hann hefði dottið af baki hefði hann hugsanlega stórslasast og tamning-
in þar að auki fyrir bí. Það kom mér heldur ekki við þótt viðkomandi að-
ili væri á ljóslausum hesti í kolniðamyrkri og með öllu laus við endur-
skinsmerki eða annan viðvömnarbúnað. Ég var að sjálfsögðu með sam-
viskubit lengi vel og fyrst á eftir reyndi ég að ferðast fyrst og fremst á
þeim tímum sem reikna mátti með að allir tamningamenn landsins væm
í fasta svefni.
Nú hef ég ekkert út á það að setja þó fólk stundi hestamennsku þótt
sjálfur fari ég helst ekki á hestbak öðmvísi en að vera annaðhvort hóf-
dmkkinn eða kófdmkkinn. Ennfremur lít ég ekki á tamningar sem neitt
óæðri atvinnustarfsemi en hvað annað nema síður sé. Ég er afturámóti
þeirrar skoðunar að þjóðvegir landsins séu fyrst og fremst ætlaðir fyrir
umferð bifreiða og skyldra ökutækja þrátt fyrir að vegakerfi Vesturlands
hafi lítið farið fram síðan hestar vom okkar helsta samgöngutæki. Að
sjálfsögðu þurfa menn líka að geta komist leiðar sinnar á hestbaki. Víða
hafa verið lagðir sérstakir reiðvegir og er það vel. Hinsvegar vantar mik-
ið upp á að þar sé nóg að gert en þar liggur einmitt hesturinn grafinn. Það
ætti því að vera siðferðileg skylda Vegagerðarinnar eða annarra þeirra
sem málið varðar að sjá til þess að hestamönnum séu sköpuð skilyrði til
að stunda sína iðju annars staðar en á þar til gerðum akvegum. Að sama
skapi er það siðferðisleg skylda þeirra hestamanna sem hafa ekki um
annað að ræða en að feta þjóðveginn að koma sér upp tilskyldum ljósa-
búnaði. Sjálfur hef ég einu sinni orðið fyrir því óláni að aka á hest með
þeim afleiðingum að aðeins annar okkar lifði það af. Það vildi mér til
happs að hesturinn var mannlaus í því tilfelli en það er reynsla mín í
gegnum aldimar að heppni er nokkuð sem varlegt er að treysta á til
lengdar.
Sjálfsagt kann einhver að hugsa sem svo að mér sé andsk... engin vor-
kunn þótt ég þurfi að doka svolitla stund á meðan tamningu lýkur og þar
á ofan fái ég að sjá falleg hross og knáa knapa og það gratís. Ég neita því
heldur ekki að ef ég æki fram á alvöru hestamenn eins og Flosa eða aðra
slíka myndi ég aka út í kant og dást að herlegheitunum. Því miður er það
bara ekki nema í undantekningartilfellum sem ég rekst á svo tilkomu-
mikla reiðmenn og ef ég hef á annað borð áhuga á að horfa á venjulega
hestamenn þá get ég allt eins farið á hestamannamót.
Hvað sem því líður þá er ég því afar hlynntur að menn ríði sem mest
og best en svo lengi sem menn ríða ekki akkúrat þar sem ég ek þá mun
ég forðast að aka þar sem riðið er.
Gísli Einarsson, truntulegur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Gubmundur Runólfsson hf í Grundarfiröi
Gott gengi
„Við veðjuðum á vinnslu á botn-
fiskafla og þar hafa hlutirnir geng-
ið eftir,“ sagði Guðmundur Smári
Guðmundsson framkvæmdastjóri
á aðalfundi Guðmundar Runólfs-
sonar hf. sem haldinn var laugar-
daginn 13. mars sl. Hagnaður af
rekstri fyrirtækisins var rúmar 40
milljónir króna.
Rekstrartekjur námu 565 milljón-
um en rekstrargjöld 428 milljónum.
Afskriftir fastafjármuna voru 51
milljón króna. Eignir eru upp á 959
milljónir króna. Það kom fram að sl.
10 ár hefur fyrirtækið átt góðu gengi
að fagna og hreint veltufé frá rekstri
verið jákvætt öll þessi ár misjafnlega
mikið en er nú rúmar 95 milljónir.
Fyrirtækið hefur fest kaup á nýj-
ustu og fullkomnustu gerð af BAAD-
ER sambyggðri hausunar og flökun-
arvél. Er reiknað með að hún verði
komin í gagnið í september næsta
haust. Auk vinnuspamaðar sem vélin
leiðir af sér mun hún gefa um 4%
aukna nýtingu í vinnslunni. Togarinn
Hringur sem búinn var til veiða eftir
að fyrirtækið seldi togarann Runólf
úr landi, hefur reynst mjög vel. Hef-
ur Hringur verið að landa um 400
tonnum af þorski á mánuði síðan í
haust. Netagerð Guðmundar Run-
ólfssonar hf. gengur einnig mjög vel
og hafa viðskipti og verkefni hennar
stöðugt farið vaxandi. Þar vinna þrír
menn að jafnaði með mikla reynslu
og fagþekkingu.
GK.
Rennibrautin í Jaharsbakkalaug sem ekki hefur verib í notkun sí&an í nóv-
ember. Mynd: KK
Jaðarsbakkalaug
Rennibrautin lagfærb
Bæjarráð Akraness samþykkti á
fundi sínum 18. mars síðast liðinn
samkomulag við Almennu Verk-
fræði - og Teiknistofuna um endur-
bætur á rennibrautinni í Jaðars-
bakkalaug.
I samtali við Skessuhom upplýsti
Gísli Gíslason bæjarstjóri að í sam-
komulaginu væri gert ráð fyrir að
AVT annist ákveðnar lagfæringar
sem m.a. felast í hringrásartenging-
um, lagfæringu á leiktækjum og ör-
yggisgrindum. Jafnframt tekur AVT
ábyrgð á því að eftir lagfæringamar
þá virki rennibrautin og búnaður
tengdur henni eins og til er ætlast. Ef
reksturinn verður f lagi þá endur-
greiðir bærinn til AVT kr. 385.000
vegna kaupa á nýjum varmaskipti,
sem er hluti af þeirri viðgerð sem er
framundan. „Öllum lagfæringum á
að vera lokið fyrir 1. maí,“ sagði
Gísli. „Vonandi verður það endir
málsins."
Framkvæmdir eru hafnar vi& nýtt sambýli fatla&ra á Akranesi. Mynd: KK
Nýtt sambýli fatlaöra rís á Akranesi
Opnar í desember
Nýtt sambýli fatlaðra verður byggt
við Laugarbraut á Akranesi. Á
þriðjudagsmorgun síðast liðinn var
byrjað að taka fyrir grunninum að
hinu nýja húsi sem mun verða rúm-
lega 400 fermetrar að stærð á einni
hæð. Húsið kostar ríflega 60 milljón-
ir. Verktakar eiga að skila því af sér
fyrir 1. desember á þessu ári. Að
-sögn - Magnúsar Þorgrímssonar -á-
Svæðisskrifstofu Vesturlands verður
flutt inn fyrir jól. „Það hefur tekið ein
fimm ár að berjast fyrir þessu húsi og
kostaði mikinn barning að koma
málinu í gegn,“ sagði Magnús.
„Áherslur fjárveitingavaldsins í þess-
um málum hafa beinst að höfuðborg-
arsvæðinu síðustu ár og það hefur
bitnað á okkur.“
Banaslys á
Snæfellsnesi
Ljósmóðir úr Borgamesi féll
fram af tröppum á íbúðarhúsí í
Kolbeinsstaðahreppi á Snæ-
fellsnesi síðastliðinn fimmtu-
dag og lést á sjúkrahúsi fáum
tímuin síðar. Konan hét Gerða
Sigursteinsdóttir. Hún lætur
eftir sig eiginmann og þrjú
böm.
Hitaveitan í
Hólminum:
Samib um efni
Gengið hefur verið frá
samningum vegna efnisútveg-
unar fyrir Hitaveitu Stykkis-
hólms. Bæjarráð samþykkti á
fundí stnum fyrir skömmu að
ganga til samninga við Nör hf
um einangraðar plastpípur en
einnig var samþykkt að taka til-
boði Reykjalundar varðandi
bakrásarpípur dreifikerfis hita-
veitunnar. Þá var gengið frá
samningi við: Kolla ehf. um
sandöflun.
G.E.
Olíufélagib
fær lób
Á síðasta fundi bæjarráðs
Akráness var samþykkt að út-
hluta Olíufélaginu hf. lóðinni
nr. 14 við Þjóðbraut: á Akranesi.
Þá var Trésmiðju Þráins sf út-
hlutað lóðunum nr. 17 -18 og
21 - 23 við Leynisbraut.
Menningar-
fer&amennska
Á síðasta fundi bæjarráðs
Borgarbyggðar var lögð fram
tillaga frá menningarmálanefnd
sveitarfélagsins þess efnis að
Borgarbýggð hefði forgöngu
um ráðstefnu um menningar-
ferðamennsku. Tillögunni var
beint til atvinnumáianefndar og
menningarmálanefndar til úr-
vinnslu.
G.E.
Danskir dagar
Undirbúningur er hafinn að
Dönsku dögunum í Stykkis-
hólmi sem verða 13.-15. ágúst í
sumar en þeir eru nú haldnir í
sjötta sinn. Þegar er búið að
skipuleggja samkeppni um
mynd á plakat og póstkort Dön-
sku daganna, en hún er haldin
: meðal nemenda Grunnskólans í
1.-6. bekk. G.E.
Undirbúning-
ur Jörfaglebi
hafinn
Leikklúbbur Laxdæla hefur
tekið til æfingar leikritið Nörd
eftir Larry Shue og er leikstjóri
Hörður Toifason og leikendur
eru Elías M. Kristjánsson, Ás-
dís ííristjánsdóttir, Guðmundur
Geirsson, Una Hauksdóttir,
Sigurður Sígurðsson, Pálmi Jó-
hannsson og Leó Freyr Hall-
dórsson Er þetta einn af föstum
dagskrárliðum fyrir Jörfagleði
Dalamanna sem haldin er annað
hvert ár. Nánar verður fjallað
um hana síðar.
HÁ/SJ
■' ■■ >: ■ f-> ■ .':• ■ 1 ■,* ■