Skessuhorn - 25.03.1999, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
Leikarar og a&standendur Konungs Ijónanna.
Mynd: Svanur Steinarsson
Metnaðarfull upp-
setning á árshátíb
Nýlega er lokið sýningum Nem-
endafélags Grunnskólans í Borgar-
nesi á árshátíðarleikverki vetrarins
sem var Konungur ljónanna í leik-
stjóm Stefáns Sturlu Sigurjónssonar.
Rúmlega 800 leikhúsgestir sáu upp-
færsluna sem þótti metnaðarfull og
vel heppnuð í alla staði. Góður söng-
ur og skemmtilegar tæknibrellur
settu svip sinn á sýninguna en þetta
er í fyrsta skipti sem leikrit byggt á
þessu fræga kvikmyndaverki er sett á
svið hér á landi.
Forma&ur Lionsklúbbs Borgarness Hákon Örn Arnþórsson afhendir Birni Björnssyni formanni OK og Bjarna Gu&-
mundssyni gjaidkera styrkinn. Fyrir framan sitja Lionsmennirnir. Mynd: Guðjón Arnason
Styrkur til bílakaupa
Lionsklúbburinn í Borgamesi hef-
ur verið iðinn við að veita fé á báðar
hendur til líknarmála af ýmsu tagi.
Fyrir skömmu veittu þeir Björgunar-
sveit SVFÍ OK í Reykholti 200 þús-
und króna styrk til bílakaupa en
sveitin réðist í kaup á nýrri og full-
kominni björgunarbifreið. Af þessu
tilefni héldu Lionsmenn fund á Hótel
Reykholti þar sem styrkurinn var af-
hentur.
Stykkishólmur
Fjölmenn árshátíÖ Grunnskólans
Árshátíð Grunnskólans í Stykkis-
hólmi var haldin 4. og 5. mars sl.
Var hátíðin tvískipt eins og undan-
farin ár og eftir fyrra kvöldið var
gestum boðið upp á glæsilegt tertu-
hlaðborð.
Er það liður í árlegri fjáröflun 7.
bekkjar vegna skíðaferðalags og tí-
unda bekkjar vegna útskriftarferðar
bekkjarins. Liðlega fimm hundmð
gestir sóttu árshátíðina fyrra kvöldið
þar sem yngri bekkir skólans fluttu
sín atriði og fjölmargir gestir voru á
seinna kvöldinu. I lokin var svo sleg-
ið upp balli fyrir eldri bekkinga og
dansað fram til miðnættis.
K.Ben.
9. bekkur Grunnskólans í Stykkishólmi.
Ljósm. ÓmarJóh
Lyngbrekkuball
Hið svokallaða Lyngbrekkuball
var haldið í Dölunum þann 11. mars
sl. Þetta er árlegur viðburður hjá átta
grunnskólum á Vesturlandi þ.e.
Laugaskóla í Dalasýslu, Búðardals-
skóla, Laugagerðisskóla, Gmnnskól-
anum á Lýsuhóli, Kleppjámsreykja-
skóla, Varmalandsskóla, Heiðarskóla
og Andakílsskóla. Hefur þetta verið
hefð til margra ára. Upphaflega hitt-
ust skólamir í félagsheimilinu Lyng-
brekku en fyrir nokkmm árum var
þessu breytt og nú bjóða skólamir
hver til síns heima til skiptis. Vora
það 8., 9. og 10. bekkir Grunnskól-
ans í Búðardal og Laugaskóla sem
buðu heim í ár.
Hátíðin hófst með körfuboltamóti
að Laugum en fyrirhuguðu sundmóti
var frestað vegna veðurs.
Urslit fóra á þann veg að hjá strák-
unum vann Heiðarskóli, Laugaskóli
varð í öðra sæti og í því þriðja varð
Grunnskólinn í Búðardal. Hjá stúlk-
unum unnu þær í Kleppjámsreykja-
skóla, sameiginlegt lið Búðardals og
Laugaskóla varð í öðru sæti og
Laugagerðisskóli í því þriðja.
Gerðu krakkamir sér eitt og annað
til dægrastyttingar, tefldu, spiluðu
billjard og fl. Þá kom förðunarfræð-
ingur úr Búðardal, Anna Lísa Hilm-
arsdóttir, að Laugum fyrir ballið og
aðstoðaði og lagði á ráðin við förðun
og nýttu sér það margar stúlkur.
Um kvöldið var svo dansleikur
haldinn í Dalabúð þar sem hljóm-
sveitin Irafár úr Reykjavík lék fyrir
dansi fram eftir kvöldi. Ekki bar á
öðra en ungmennin skemmtu sér vel
þegar fréttaritara bar að garði.
Þess má geta að strangar reglur
gilda um meðferð áfengis, tóbaks og
annarra vímuefna á þessum hátíðum
og er nemendum umsvifalaust vikið
úr hópnum og sendir til síns heima
gerist þeir uppvísir að þess háttar at-
ferli.
HÁ/SJ
Ver&launahafarnir í Stóru lestrarkeppninni.
Stóra lestrarkeppnin
f vetur var Stóra lestrarkeppnin
haldin á Akranesi í fyrsta sinn.
Lokaathöfnin fór fram í Vinaminni
á dögunum. Að loknum ávörpum
Helgu Gunnarsdóttur skólafulltrúa
og Ingibjargar Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra fluttu nemendur sög-
ur og ljóð. Nemendur í 7. bekk hafa
æft upplestur og flutning en keppnin
snýst um að leggja sérstaka rækt við
hið talaða mál; vandaðan upplestur
og framburð. 25. febrúar sl. fór fram
keppni innan skólanna og vora vald-
ir þrír bestu lesarar úr hverjum bekk.
Niðurstaða dómnefndar var eftirfar-
andi; Besti lesari var valin: Heiða
Rós Níelsdóttir úr Grundaskóla.
Önnur verðlaun fékk Kári Harðarson
í Brekkubæjarskóla og í þriðja sæti
var Elísa Eðvarðsdóttir einnig úr
Brekkubæjarskóla.
I dómnefndinni sátu Auður Sig-
urðardóttir, Baldur Sigurðsson,
Bjamfríður Leósdóttir, Ingibjörg Frí-
mannsdóttir og Jakob Þór Einarsson.
Líf og fjör
Þa& var líf og fjör á árshátíð nemenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi sem
haldin var á dögunum. Á myndinni eru yngri nemendur í einu atri&a
árshátíðarinnar. Mynd: KK
Nýtt merki
A a&alfundi Skotfélags Akraness
sem haldinn verður sunnudaginn
28. mars nk. ver&ur m. a. kynnt til-
laga að nýju merki skotfélagsins.
Höfundar þess eru Þórður Sigurðs-
son og Kári Haraldsson.