Skessuhorn - 25.03.1999, Side 3
§BESSUH©£í:'J
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
3
N°7
Kynning í Akranes apóteki
föstudaginn 26. mars fró kl. 14-18.
Mikill afslóttur!
Verð kr. 24.900,-
Verð kr. 23.900,-
Verð kr. 23.900,-
Hálfger&ur hrosshaus
Þessi hrosshaus haf&i greinilega verib skilinn eftir á þjóöveginum í Borgar-
fir&i fyrir skömmu. Þar fékk hann a& liggja þar til hrafnar höföu gert
honum skil.
Fiskmarkaður Breiðafjarðar
Afkoman betri
en nokkru sinni
Grunnskólinn í Olafsvík
Samningur um mark-
vissa námsástundun
Verð kr. 10.900,- Verð kr. 9.900,-
m m ?**
PJÓNUSTAIM
Vesturgötu 48 - 300 Akranes
sími 430-7000 - totva@tolva.is
Verð kr. 9.900,-
Skjáhilla f. tölvuborð
Verð kr. 3.900,-
(væntanlegt næstu daga)
f Grunnskólanum í Ólafsvík hefur
verið gerð sérstök „sóknaráætlun“
um árangursríkara skólastarf eins
og fram kemur í fréttatilkynningu
frá skólanum. Áætlunin tekur til
flestra þátta skólastarfsins og hef-
ur nokkrum þeirra verið hrundið í
framkvæmd.
Þegar er hafin sérstök þróunar-
vinna innan skólans urn að bæta
námsárangur nemenda. Þá er gert
ráð fyrir því að „sjálfsmat" innan
skólans í Ólafsvík taki til sem flestra
þátta sóknaráætlunarinnar á síðari
hluta framkvæmdatímans. Einn liður
þessarar þróunarvinnu er „Samning-
ur um markvissari námsástundun“
milli skólans annars vegar og nem-
enda 10. bekkjar og foreldra þeirra
hins vegar.
Markmið samningsins er sameig-
inlegt átak skólans, nemendanna og
heimilanna í að bæta námsástundun
nemenda. Er þetta gert til að auka
fæmi þeirra til sjálfstæðari vinnu-
bragða við iðkun náms þannig að
hver og einn reyni að stefna að há-
marksárangri.
Grunnskólinn í Ólafsvík leggur
fram aukið fjármagn til aukinnar við-
veru nemenda. Þar fá þau markvissa
hvatningu, aðhald og hjálp við
heimanám, aðstoð við skipulagningu
námsins auk kennslu í námstækni.
Nemendur og foreldrar skuldbinda
sig með þessu móti til að leggja fram
aukna vinnu við markvissari ástund-
un námsins. Sérstök áhersla er lögð
á kjamagreinar. Þá sæki þeir fleiri
kennslustundir og heimanámsver í
viku hverri en hefðbundin stundaskrá
kveður á um. Foreldrar taka virkari
þátt í heimanámi, aðstoða nemendur
við skipulagningu námsins, styðja
þau og hvetja ásamt öðm því er lýtur
að sérstöku hlutverki foreldra í samn-
ingnum. Hefur þetta mælst vel fyrir
og voru undirtektir nemenda og for-
eldra góðar.
-EMK-
Á síðasta ári vom seld 18.504 tonn
hjá Fiskmarkaði Breiðafjarðar en það
er um 18% þess afla sem seldur var á
fiskmörkuðum á Islandi. Rekstrar-
tekjur markaðarins jukust um 38%
milli ára og hagnaður eftir skatta var
10,2 milljónir á móti 1,9 milljón árið
1997. Þetta kom fram á aðalfundi
Fiskmarkaðar Breiðarfjarðar sem var
haldinn nýlega. í ávarpi stjómarfor-
manns Páls Ingólfssonar kom fram
að á árinu 1998 hefði markaðurinn
keypt og bætt húsnæði í Rifi. Þá jókst
verðmæti seldra afurða meira en
nokkru sinni og afkoma félagsins
sem stendur að rekstri Fiskmarkaðar-
ins því sú besta frá upphafi. Með til-
liti til góðrar afkomu var samþykkt
að greiða 7% arð til hluthafa að
þessu sinni. Stjórn Fiskmarkaðs
Breiðafjarðar hefur ákveðið að sækja
um skráningu hlutabréfa á vaxtalista
Verðbréfaþings íslands og er stefnt
að skráningu á vormánuðum fáist
samþykki Verðbréfaþingsins. I stjóm
Fiskmarkaðs Breiðafjarðar voru
kjömir Páll Ingólfsson form., Sævar
Friðþjófsson Rifi, Guðmundur Smári
Guðmundsson Grundarfirði, Bæring
Guðmundsson Stykkishólmi og
Ólafur E. Ólafsson frá Faxamarkaði.
G.K.
Fjársöfnun fyrir
veikan dreng
Þær Anna Lísa Hilmarsdóttir,
Unnur Hilmarsdóttir og Ingileif
Gunnlaugsdóttir standa fyrir fjár-
söfnun vegna aðgerðar á litlum dreng
Tryggva Rúnarssyni sem kom í
heiminn þann 17. janúar síðastliðinn.
Hann er sonur þeirra Huldu Eggerts-
dóttur og Rúnars Kristjánssonar. Það
kom í ljós stax eftir fæðingu að
drengurinn var með ónýtan barka og
gat ekki andað hjálparlaust.
Þau Hulda og Rúnar em stödd með
Tryggva litla á sjúkrahúsi í Englandi
þar sem var gerð á honum aðgerð
síðastliðinn föstudag og að sögn
Ingibjargar ömmu drengsins er líðan
hans eftir atvikum og ætti að koma í
ljós mjög fljótlega hvort hún hefði
heppnast sem skildi.
Þær stöllur sem fyrir söfnuninni
standa em langt komnar með að
heimsækja öll heimili í Dalasýslu og
allsstaðar fengið góðar og höfðing-
legar móttökur.
Aðrir sem vilja leggja sitt að
mörkum til Tryggva litla geta lagt
inn á reikning:
0312 13 140284 Hulda Egg-
ertsdóttir v/Tryggva kt: 300364-
5199 í Búnaðarbankanum í Búðar-
dal.
HÁJSJ
r
lí
KOSNINCASKRIFSTOFUR
OPNA!!
Laugardaginn 27. mars nk. mun kosningaskrifstofa
Sjálfstœðisflokksins opna á Akranesi.
Opnunin hefst í Sjálfstœðissalnum að Stillholti 16-18
kl. 13.30 en síðan verður farið að Kirkjubraut 17
þar sem skrifstofan verður formlega opnuð og
Sigurður Sigurðsson, starfsmaður skrifstofunnar,
mun hafa heitt á könnunni fyrir gesti og gangandi.
>v
Síminn á skriístofunni er 431-4246
og 431-4247, og faxið 431-2280.
Miðvikudaginn 31. mars nk. mun síðan
kosningaskrifstofan í Borgarnesi opna í
félagsheilinu að Brákarbraut 1 kl. 20.00 og
eru allir nœrsveitungar velkomnir í heimsókn.
Þeir félagar, Björn Arason og Kristófer Þorgeirsson,
sem verða starfsmenn skrifstofunnar taka vel
á móti þér.
Síminn á skrifstofunni er 437-1460
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Á VESTURLANDI
v
—