Skessuhorn - 25.03.1999, Side 9
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
9
SKESSUHÖERl
Sorp er dýrl!
segir Valdimar Þorvaldsson umsjónarmaður sorpmála á Akranesi
í nútíma samfélagi fellur til
óhemju magn af sorpi eins og allir
vita. Öllum vörum er pakkað inn í
umbúðir - síðan eru umbúðir utan
um þær umbúðir - og loks plast-
poki utan um allt saman. Fyrir
ekki svo mörgum árum voru flest-
ir ómeðvitaðir um sorpmál - allir
muna endalausar breiður af áldós-
um og plastflöskum um allar jarð-
ir áður en farið var að endurnýta
þær umbúðir. Með tilkomu Gámu
á Akranesi opnuðust möguleikar
til að flokka margs konar sorp og
nýjar hugmyndir og nýir siðir eru
teknir að ryðja sér tif rúms. Þó
virðist ennþá vera nokkuð langt í
land með að sorpmál séu komin í
það horf sem þau þyrftu að vera.
Skessuhorn átti stutt spjall við
Valdimar Þorvaldsson umsjónar-
mann sorpmála á Akranesi.
Vantar skýrari stefnu
Valdimar segir svæði Gámu hafa
reynst vel og sorpmóttökuna komna í
fastar skorður. A síðasta ári fóru um
tvö þúsund tonn af sorpi um Gámu
og þar af voru um 24 tonn af spilli-
efnum. Af spilliefnum fellur mest til
af rafgeymum en tekið var á móti tólf
tonnum af þeim í fyrra. „Við erum
síðan í samstarfi við Smurstöðina á
Akranesi um söfnun og pressun olíu-
sía en í þeim er ótrúlegt magn olíu.
Kostnaður við flokkun sorps er mik-
Valdimar Þorvaldsson, umsjónar-
ma&ur sorpmála á Akranesi.
ill, sorp er dýrt. Mér hefur fundist
vanta skýrari stefnu bæjaryfirvalda í
þessum málum, og eins þyrfti að
samræma stefnu sveitarfélaganna."
Valdimar segir það vandamál að ekki
skuli vera vikt á svæðinu. Fyrirtækj-
um er uppálagt að vikta sorp sem frá
þeim fer og þarf að vikta það á hafn-
arvoginni úti á Akranesi.
Valdimar hefur ákveðnar hug-
myndir um hvemig hann vill sjá
sorpmál í framtíðinni.
„Það sem ég vildi sjá er að allt sorp
yrði viktað þegar það er tekið frá
fólki. Þegar maður þarf að fara að
borga fyrir sorpið samkvæmt vigt em
hlutimir fljótir að breytast. Þar sem
þetta hefur verið framkvæmt, til að
mynda í Hollandi, hefur sorpmagn
hjá venjulegum borgurum minnkað
um 30%. Viðhorfin breytast og fólk
breytir venjum sínum. Ég vildi líka
sjá að fólki yrði gert kleyft að breyta
lífrænu sorpi í gróðurmold."
Teppi í blaðagámi
Töluverð brögð hafa verið að því
að í flokkunargámana niðri í bæ á
Akranesi fari ýmislegt annað en til-
greint er utan á þeim. „Flokkunin er
til lítils á meðan til er fólk sem notar
gámana til að losa sig við alls konar
óskylt sorp,“ segir Valdimar. „Til að
mynda kom í ljós í einum blaða-
gámnum 4 metra teppastrangi sem
hafði verið brotinn einstaklega
snyrtilega saman til að hægt væri að
troða honum í gáminn. Við höfum
ekki aðstöðu til að endurflokka þetta
sorp hér á svæðinu og þegar mikið er
af öðru sorpi í gámunum erum við til-
neyddir til pressa það sem almennt
sorp.“ Valdimar segir misjafnt eftir
aldurshópum hversu mikið fellur til
af sorpi. Mest komi frá fólki á aldrin-
um 25 til 35 en töluvert minna frá
eldra fólki. f neyslusamfélaginu end-
umýjar fólk húsbúnað og annað tölu-
vert ört og misjöfn viðhorf em til að
endurnýta þessa hluti.
-KK
Gámarnir í Gámu.
Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Akraness eru
hér meb auglýstir til umsóknar eftirfarandi styrkir
til utanlandsferba:
W
• vegna íþrótta-, félags- og menningarmála.
• vegna starfsmanna Akraneskaupstabar og stofnana hans.
Styrkirnir eru abeins veittir viburkenndum félögum
eba íþróttahópum innan IA, sem vinna ab íþrotta-
eba félagsmáium og til listahópa í tengslum vib
listgrein sína og hafa starfab á Akranesi s.l. 5 ár,
svo og til starfsmanna Akraneskaupstabar vegna
viburkenndra námskeiba og rábstefna sem talib er
mikilvægt fyrir störf vibkomandi starfsmanns eba
stofnun.
On
Nánari reglur liggja frammi á bæjarskrifstofunni til l
upplýsingar. i
3
Co
Sækja skal um styrkinn til Akraneskaupstabar fyrir S
20 apríí n.k.
og skal skila umsóknum á skrifstofu bæjarins ab
Stillholti 16-18.
A Akranesi 22. mars 1999.
Bæjarritari,
skessuh @ aknet.is
www.vesturland.is
Allirí sund!
Mikicí Grval af siindfatnadi
frá þekktum framleidendum:
SPEEDO ^
rlLA
OybcLch
Brúartorgi, Borgarnesi
sími/íax 437-1707
SíGr
Vtsturgétu 14 * Akfénesi
iífflii 41o iésö ‘ mmv m S§?i
iféfwmíi 41© 366S
Allar gerðir hrauða,
partýbrauð,
gróf Dg fín brauðtertubrauð
□g margar
gerðir snittubrauða
Erum með allar gerðir
af tertum.
T.d. kransatertur,
marsípanterur,
rjómatertur og
j arðarberj atertu r.
Við tökum að okkur að
skreyta tertur og mínnum
á smjördeíg utan um
steikurnar.