Skessuhorn - 25.03.1999, Síða 13
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
13
uauounuu;
Sjónvarp til sjómanna
^enn,°n
Fyrir fjórum árum var samþykkt
á Alþingi þingsályktunartillaga
sem ég flutti um athugun á þeim
kostum sem í boði væru til að
bæta útsendingar útvarps og
sjónvarps til fiskimiðanna við
Iandið. I framhaldi af því óskaði
menntamálaráðherra eftir grein-
argerð um þessi mál frá útvarps-
stjóra og barst hún í lok árs 1995.
Þar kom fram hvaða möguleikar
væru á að bæta þessar útsending-
ar og að það myndi kosta ca 850
millj.kr. að stækka dreifikerfi
sjónvarpsins svo það næði 50-60
sjómílur frá landi. Jafnframt
kom þar fram að óvíst væri
hvenær, og jafnvel hvort, hægt
væri að senda dagskrána um
gervitungl til að þjónusta sjó-
menn.
Nýir
langbylgjusendar
A þeim árum sem síðan eru liðin
hafa verið settir upp öflugir lang-
bylgjusendar fyrir útvarp í möstrin
á Gufuskálum og Eiðum. Við það
hafa útvarpssendingar til fiskimið-
anna gjörbreyst til hins betra og hef
ég heyrt mikia ánægju hjá sjómönn-
um með að geta. nú fylgst með út-
varpi á þeim slóðum sem ekkert
heyrðist áður, en send'epút blönduð
dagskrá af Rás 1 og Rás 2. Kostnað-
ur við þessa nýju langbylgjúsenda
mun hafa verið um 300 millj.kr.'
Möguleikar á
sjónvarpssendingum
Notkun gervihnatta til sendingar
sjónvarpsefnis hefur aukist mjög á
undanfömum árum og kostnaður
lækkað. Eg lagði því fram fyrir-
spum til menntamálaráðherra á Al-
þingi nýlega, þar sem ég spurði í
fyrsta lagi hver yrði stofnkostnaður
og árlegur rekstrarkostnaður við að
senda dagskrár útvarps og sjón-
varps um gervitungl til ftskimið-
anna umhverfis landið og þeirra
staða á landinu sem nú búa við
óviðunandi móttökuskilyrði. I svari
ráðherra kom fram að kostnaður við
samsendingar sjónvarps- og út-
varpsdagskrár um gervitungl yrði á
bilinu 60-80 millj.kr. á ári. Við
þessa upphæð bætist stofnkostnaður
jarðstöðvar til sendingar dagskrár
til gervitunglsins, um 10 millj.kr. og
árlegur rekstrarkostnaður hennar.
Þá spurði ég hvort sérstakan mót-
tökubúnað þurfi til að ná slíkum
sendingum og hvað hann mundi
kosta. Svar við þeirri spumingu var
að sérstakan móttökubúnað þurfi til
að taka á móti þessum sendingum.
Fyrir skip þarf búnaðurinn að vera
stefnuvirkur, óháður veltingi og
stefnu skipsins. Slíkur búnaður
kostar um 2 millj.kr.
Gjörbylting í
tæknibúnaöi
Við umræður um fyrirspum mína
á Alþingi kom fram hjá Birni
Bjamasyni menntamálaráðherra að
gjörbylting hafi orðið í tæknibúnaði
á þessu sviði á sl. fjómm ámm og
að hann teldi að þær tölur sem
nefndar em hér að framan og þær
hugmyndir sem menn hafa nú um
hlutverk gervitungla við miðlun á
sjónvarpsefni væm þess eðlis að
þennan kost beri að skoða af fullri
alvöru. Þá skýrði ráðherra frá því að
hann hefði beint því erindi til út-
varpsstjóra
og Ríkisút-
varpsins að
vinna verði
sett í að
skoða þetta
mál nánar og
ef þessar
kostnaðar-
tölur reynist
réttar varð- Guöjón
andi útsend- Gubmundsson
ingar sjónvarps- og útvarpsdagskrár
um gervitungl þá sé það miðlunar-
leið sem skoða beri af mikilli al-
vöru, auk þess sem ljóst sé að
kostnaður við slíkar sendingar muni
frekar lækka en hækka.
Allir sitji viö sama
borö
Mér sýnist af þeim upplýsingum
sem hér hafa komið fram að þeir
fjölmörgu sjómenn sem starfa á
miðunum kringum landið, svo og
þeir landsmenn sem búa við óvið-
unandi móttökuskilyrði ljósvaka-
miðlanna muni geta notið dagskrár
sjónvarps með sama hætti og aðrir
landsmenn innan tíðar og er það
fagnaðarefni.
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra beitti sér fyrir gjörbreytingu á
hlustunarskilyrðum útvarps á fiski-
miðunum með nýju langbylgju-
sendunum og mun án efa fylgja því
fast eftir að nýir möguleikar á sjón-
varpssendingum verði nýttir þannig
að allir landsmenn eigi jafna mögu-
leika á að fylgjast með þeim óháð
því hvar þeir búa og hvort þeir
starfa til sjós eða lands.
Guðjón Guðmundsson
alþingismaður.
Þakkir og hvatning
Að loknu prófkjöri Samfylking-
arinnar hér á Vesturlandi vil ég
koma á framfæri þakklæti til allra
þeirra sem tóku þátt í prófkjörinu.
Sérstakar þakkir færi ég þeim fjöl-
mörgu sem tóku þátt í baráttunni
með mér og þeim sem greiddu mér
atkvæði sitt. Þrátt fyrir að ég hafi
ekki náð þeim árangri sem ég og
mínir stuðningsmenn stefndum að
þá er ég sátt við þann stuðning sem
ég hlaut og þá samstöðu sem ég
fann fyrir.
Frá því að ég hóf afskipti af
stjórnmálum hefur það verið
draumur minn og takmark að jafn-
arðamenn og félagshyggjufólk sam-
einist í einn stóran og öflugan flokk.
Til þess að sá draumur rætist er
mikilvægt að Samfylkingin hljóti
góða kosn-
ingu þann 8.
maí nk. Eg
hvet eindreg-
ið alla Sam-
fylkingar-
sinna til að
stuðla að því
að svo megi
verða.
Hólmfríður Sveinsdóttir.
Snæfell úr leik
Snæfell var eina liðið af Vestur-
landi sem komst í úrslitakeppni úr-
valsdeildarinnar að þessu sinni. Þetta
er í fyrsta sinn sem liðið nær þetta
langt en þrátt fyrir gott gengi í vetur
hittu Snæfellingar fyrir ofjarla sína í
Snæfell Njarövík
Stigin
Rob Wilson 17
Bárður Eyþórsson 16
Athanasias Spyrop. 15
Mark Ramos 9
Hallfreður Björgvinsson 5
Olafur Guðmundsson 3
Baldur Þorleifsson 2
átta liða úrslitunum. Fyrri leikurinn
sem leikinn var í Njarðvík endaði
með sigri heimamanna 88 - 49 og í
síðari leiknum í Stykkishólmi síðast-
liðinn sunnudag voru yfirburðir
Njarðvíkinga einnig algjörir. Sá leik-
Njarövík Snæfell
Stigin Rob Wilson 11
Athanasios Spyrop. 11
Mark Ramos 10
Ólafur Guðmundsson 7
Bárður Eyþórsson 4
Jón Þór Eyþórsson 2
Baldur Þorleifsson 2
ur endaði 67 - 100 þrátt fyrir að
heimamenn hefðu hangið nokkuð í
Islandsmeisturunum í fyrri hálfleik. I
fyrri leiknum var Rob Wilson bestur
en í þeim síðari átti baráttujaxlinn
Bárður Eyþórsson einnig mjög góðan
leik.
• Skönnun
• Fréttabréf
• Umbrot
• Bæklingar
liétla
og
útfyá fu[}jonustan
snní: 437 2360
Skrökvaö í 70 ár
í 9. tölublaði Skessuhorns, birtist
frétt þar sem vegagerðin kynnti
niðurstöður rannsókna á tveim-
ur valkostum um vegagerð yfir
Snæfellsnesfjallgarðinn. Annars
vegar var könnuð svokölluð
Vatnaheiði og hins vegar endur-
bættur vegur um Kerlingar-
skarð. Niðurstöður urðu þær að
hagstæðara væri að gera nýjan
veg um Vatnaheiði.
Með þessari rannsókn er allur
vafi úr sögunni og ástæðulaust að
þrefa lengur um staðsetningu veg-
ar yfir fjallgarðinn. í sömu frétt
segir að hafist verði handa við
vegagerð árið 2000 og að henni
verði lokið árið 2002. Það er út af
fyrir sig gott að niðurstaða skuli
liggja fyrir og með henni eru allar
deilur um framtíðarvegarstæði úr
sögunni. Það er einnig ánægjulegt
að sjá og heyra, að allir þeir aðilar
sem að málinu hafa komið, þar
með taldir þingmenn kjördæmis-
ins, skuli hafa komið sér saman um
eitthvað svona rétt fyrir kosningar.
Eða kann þetta að vera kraftaverk
háttvirts þingmanns Sturlu Böðv-
arssonar? Spyr sá sem ekki veit.
Það sem kemur mér á óvart er,
hversu auðvelt virðist vera að fjár-
magna slíkt verk. Hundruð millj-
óna eru hrist fram úr erminni líkt
og hér fari töframenn um héruð.
Það er greinilegt að kosningar
þyrftu að vera oftar til þess að
ýmsum mikilvægum verkefnum
yrði komið í framkvæmd. Þessi
rausn þingmanna Vesturlandskjör-
dæmis virðist ekki eiga allsstaðar
við samanber þegar um Utnesveg
er að ræða. Hann hefur verið hom-
reka í kerfinu alla tíð.
Það var árið 1931, að nokkrir
menn úr Breiðavíkurhreppi og
Ólafsvík hófu vegagerð í Axlar-
hlíð. Til verksins höfðu menn sín
handverkfæri og fengu greiddan
helming daglaunanna fyrir. En það
voru skilyrði þess að verkið mætti
hefjast. Þetta hefur sagt mér Þor-
gils Stefánsson fyrrverandi kennari
á Akranesi. Hann er sonur Stefáns
Kristjánssonar vegaverkstjóra ves-
tra um árabil. Þorgils vann þá sem
unglingur með föður sínum og
man þetta vel.
Síðan eru liðin u.þ.b. 70 ár. En
þrátt fyrir alla þessa áratugi og
miklar framfarir í vegamálum er
Utnesvegur enn víða í svipuðu
ástandi og fyrir 70 ámm. Segi mig
ljúga hver sem vill. Það kemur
manni í illt skap, þegar allt í einu
eru reiddar fram hundmðir millj-
óna í ótímabæra fjallvegi en mikil-
vægir láglendisvegir milli byggða
em settir í salt ár eftir ár. Við ykk-
ur þingmenn Vesturlands vil ég
segja þetta; Ykkur skal ekki takast
að humma fram af ykkur þeim
skyldum sem á ykkur hvflir gagn-
vart Útnesvegi og minni ykkur á að
það em kjósendur sem veita ykkur
umboð til setu á Alþingi.
Það er ekki af tilefnislausu að
orðhvatir Ólsarar, kalla leiðina
vestur undir Jökul, road to Hell,
því bragð er að þá bamið finnur.
Ibúar hins gamla Breiðavíkur-
hrepps gefast aldrei upp og em
ekki reiðubúnir til þess að bíða
önnur 70 ár eða jafnlangan tíma og
liðinn er ffá fyrstu skóflustungunni
í Axlarhlíðinni forðum. Þingmenn
og frambjóðendur varið ykkur á
ferð ykkar þama vestur eftir í vor.
Því fólkið þar er fyrir löngu búið
að fá nóg af skröksögum.
Kristinn Kristjánsson
fyrrv. kennari á Hellissandi.
skessuh @ aknet.is
vjoftMr.
15 stk. stór og 15 stk. lítil
þvogin og straujuð
2.38S, - Á‘ ? .
io kg
/. 800, - /(‘K. fj <fj4«,Uuq \
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
VEITINGAHÚS MÖTUNEYTI
vinir’.
iai£lv. \Brauðhveiti í25 kílóa
.. Q betra fugiako \ sekkjum. Gefur betri
í 20 kg- \ árangur í gerbakstri
kr. —---------- og pizzabotnum.
Gott í allan bakstur.
Brákarey, Borgarnesi
Sími 437-1083 ~ Fax 437-2083