Skessuhorn - 16.06.1999, Side 5
^ntssunu...
MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 1999
5
Sjónarmib Flosa
Kynferðislegt áreiti
Fjölmiðlar hafa að undanförnu verið nokkuð upp-
teknir af umfjöllun um einhverja mestu fúlmennsku
sem um getur í mannlegum samskiptum.
í fréttum er þessi andstyggð stundum kölluð kyn-
ferðisleg áreitni. En þó oftar kynferðislegt áreiti.
Þetta viðurstyggilega athæfi virðist fólk temja sér
við hinar skringilegustu aðstæður á ólíklegustu tímum
sólarhrigsins og eiginlega bara hvar og hvenær sem
er.
Vinsælast virðist þó kynferðislegt áreiti á vinnu-
stöðum.
Ekki er langt síðan að öll heimsbyggðin var skek-
in af réttarhöldum laganefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþings yfir lögmanni nokkrum sem útnefnd-
ur hafði verið af forsetanum sem dómari við hæstarétt
Bandaríkjanna.
Minnstu munaði að maðurinn fengi ekki djobbið
vegna þess að kona nokkur sem unnið hafði með
honum fyrir meira en áratugi bar fyrir réttinum að
hann hefði bæði stigið í vænginn við sig, gert hosur
sínar grænar og gefið sér undir fótinn þegar þau unnu
saman á skrifstofu í dentíð.
Konan ber, að starf sitt sem ritara hafi mestanpart
verið að hlusta á þennan einkavin forseta Bandaríkj-
anna klæmast, tíunda kyngetu sína og gefa upp í
þumlungum málið á getnaðarlimnum.
Verjandi lögmannsins telur hinsvegar að þarna á
skrifstofunni hafi hinn virti lögmaður umgengist ritara
sinn á hefðbundinn, gamalkunnan og viðurkenndan
hátt.
Það undarlegasta við þessi réttarhöld var að ekk-
ert benti til þess að verðandi hæstaréttardómari hefði
logið til um kyngetuna eða gefið upp rangt hreðjamál,
sem hefði auðvitað getað talist bæði villandi og víta-
vert athæfi sérstaklega vegna þess að það var þó
verðandi dómari við hæstarétt Bandaríkjanna sem
átti í hlut.
Það upplýstist ekki einusinni hvort maðurinn hefði,
fyrir tíu árum, sýnt konunni þá sjálfsögðu kurteisi að
orða það yfirhöfuð við hana að henni stæði karl-
mennska hans til boða.
Hefði hann gert það var Ijóst að hann hefði gert
sig sekan um það refsiverða athæfi sem nefnt hefur
verið „kyferðislegt áreiti".
Mér hefur alla tíð þótt kynferðislegt áreiti reglulega
andstygglegt athæfi, nema þá helst það sjaldan að ég
varð sjálfur fyrir því í gamla daga og aldrei lengi, ein-
faldlega vegna þess að samkvæmt skilgreiningu er:
„Kynferðislegt áreiti „ ástaratlot karls og konu þar til
bæði eru reiðubúin að stíga skrefið til fulls.
Hjá dýrum merkurinnar er þetta svo miklu einfald-
ara.
Flest spendýr, önnur en mannskepnan hafa sín
reglulegu gangmál og þá þarf nú hvorki að káfa eða
klæmast.
Þegar allir eru í stuði verður kynferðislegt áreiti
sjálfsögð kurteisi.
En guð hjálpi þeim fola sem sýnir hryssu, sem
ekki er í hestalátum, kynferðislegt áreiti.
Öðru máli gegnir um mannfólkið.
Gangmál konunnar virðast allan ársins hring (ef
ég man rétt) og þessvegna illmögulegt fyrir kallinn að
nálgast veikara kynið, til að viðhalda mannkyninu,
öðruvísi en að láta svolítið getnaðarlega, í tíma og
ótíma; semsagt að viðhafa kynferðislegt áreiti helst
dægrin löng.
Og því ótúttlegri sem kallinn er þeim mun óbæri-
legra þykir konum þetta atferli hans.
Sem auðvitað verður til þess að getnaðarlegir
menn sem ganga í augun á konum gera sig aldrei
seka um kynferðislegt áreiti.
Við hinir liggjum undir stanslausu ámæli þó við
gerum ekki annað en heilsa kvenmanni með handa-
bandi.
Kynferðislegt áreiti var kannað hérlendis vorið
1987 og þá kom í Ijós að ástandið var verst í þessum
efnum hjá iðnverkakonum á Akureyri, alþingismönn-
um og borgarfulltrúum í Fteykjavík.
Þá var það samdóma álit kvenna á þessum vinnu-
stöðum, að á vinnustað bæri að sýna þá lágmarks-
tillitssemi að hætta að syngja klámvísur, káfa á vinnu-
félögunum, og gorta af kyngetu og limalengd, nema
fá á því óyggjandi staðfestingu fyrst, að slíkt athæfi
bæri uppá fengitíma vinnufélaga af veikara kyninu.
Borgarfulltrúar í Reykjavík og alþingismenn með
framavonir verða að hafa hemil á kjaftinum og kunna
að stjórna lúkunum, þegar samstarfsfólkið er ekki
blæsma.
Mér skilst að í Borgarnesi, Akranesi og raunar á
Vesturlandi öllu sé kynferðislegt áreiti óþekkt.
Talið er fullvíst að það sé vegna þess að í Borgar-
firðinum eru karlar getnaðarlegri en almennt gerist og
konurnar til í tuskið.
Flosi Ólafsson
Bergi
jum
JÓNSMESSUHÁTÍÐ Á AKRANESI 24. - 27
Fimmtudagur 24. júní.
BREriNA í KALMAMSVÍK - Fjölmennum á brennu, tökum lagið og gríllum. Qísli Qíslason og
Gísli S. Einarsson stjórna Víkursöng.
Qrill á staðnum fyrir þá sem vilja skella pylsum eða steik á það. Við kveikjum í kl. 20.
Föstudagur 25. júní
ÚTIMARKAÐUR - í tjaldi í Skrúðgarðinum við Suðurgötu frá hádegi 25. júní, laugardagsmorgun
26. júní og á Skagaverstúni sunnudaginn 27. júní.
heir sem vilja fá pláss í tjöldunum hafi samband við Björn S. Lárusson í síma 431 3327 eða
Jón Allansson 431 1255.
ÚTITAFL - Opna Átaksmótið í skák hefst á Akratorgi kl 15.00.
Verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin og Átaksbikarinn.
Laugardagur 26. júní.
ÚTITÓNLEIKAR - Á Akratorgi laugardaginn 26. júní kl 14.00. Ýmsar hljómsveitir og
einstaklingar frá Akranesi koma fram. Pétur Ottesen stjórnar Skagamótinu í sjómanni á milli atriða.
Sunnudagur 27. júní
SPRELL Á SKAGAVERSTÚHI - Leiktæki fyrir börnin á Skagaverstúni
frá kl 13.00. Útimarkaður í tjaldi á túninu.
Við hvetjum alla til að kíkja á veitingahús bœjarins öll kvöldJónsmessuhátíðarinnar í miðsumar stemningu.
SérstökJónsmessutilboð ígangi
RÚSIMAM í PYLSUENDANUM:
Úvarp Akraness á FM 95.0
Við sendum út á föstudag kl 15 - 18 og laugardag frá kl 10 - 14
Þeir sem vilja koma á framfæri tilkynningum eða auglýsingum vegna helgarinnar - geta það
frítt á FM 95.0 á þessum tíma.
Haflð samband við Björn S. Lárusson í síma 431 3327
ÁTAK AKRANES