Skessuhorn - 10.02.2000, Page 7
FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 2000
7
Vesturlandsskógar
Þann 25. janúar s.l. voru form-
lega stofnuð fjögur landshluta-
bundin skógræktarverkefni, Suður-
landsskógar, Vesturlandsskógar,
Norðurlandsskógar og Skjólskógar
á Vestfjörðum.
I stjórn Vesturlandsskóga eru
Skúli Alexandersson á Hellissandi,
formaður, Sigvaldi Asgeirsson
Borgarfirði, Trausti Tryggvason
Stykkishólmi og Jón Loftsson
skógræktarstjóri ríkisins.
Eins og komið hefur fram í
Skessuhorni er á fjárlögum gert ráð
fyrir 17 milljónum til verkefnisins
Vesturlandsskóga. Að sögn Skúla
Alexanderssonar hafa síðan verið
gefin fyrirheit um meiri fjárframlög
á komandi árum. Hann segir meg-
intilgang verkefnisins vera að stuðla
að aukinni skógrækt og skjólbelta-
rækt á lögbýlum á Vesturlandi.
“Það er gert ráð fyrir að sem flestir
sem umráð hafa yfir landi geti orð-
ið þátttakendur, meðal annars
skógræktarfélög. Það er mjög
merkilegt að hafin sé skipulögð
skógrækt meðal bænda og almenn-
ings með þessum hætti. Þetta gerist
ekki á einni nóttu en við sjáum fyr-
ir okkur að í framtíðinni verði vald-
ir staðir vafðir skógi og skjólbelt-
um,” segir Skúli. Hann sagði fyrsta
verkefnið vera að vinna áffam að
áætlun um skógrækt og taka hana
til umhverfismats því ætlunin er að
Skúli Alexandersson.
skipuleggja einstök trjáræktarsvæði
en ekki planta af handahófi út um
hvippinn og hvappinn. GE
***
Samstarf sveitarfélaga á sunnanverðu Vesturlandi
Lidu hreppamir með?
Á seinasta fundi bæjarráðs Akra-
ness var samþykkt tillaga Gunnars
Sigurðssonar að kynna nágranna-
hreppunum þann samstarfssamn-
ing sem gerður var við Borgar-
byggð. Kanna á hvort þeir vilji vera
aðilar að þessum samningi að svo
miklu leyti sem að það hentar og á
við.
Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði
aðspurður um málið að undanfarna
áratugi hafi verið í gildi samningur
um brunavarnir milli Akraness og
hreppanna sunnan Skarðsheiðar.
Hvalfjarðarstrandarhreppur hafi þó
ekki verið inní þeim samningi frá
1985 en það komi til með að breyt-
ast. “Um er að ræða skiptingu
kostnaðar við brunavamir í sam-
ræmi við fasteignamat í sveitarfé-
lögunum, en Akraneskaupstaður
mun annast eins og áður rekstur
slökkviliðs í samræmi við lög og
reglugerðir um slökkvilið og
bmnavarnir” sagði Gísli Gíslason.
SB
Byggðasafitiið á Görðum
Byggt fyrir 30 milljónir?
Drög að teikningum vegna
stækkunar Byggðasafns Akraness
og nærsveita var lagt fram á bæjar-
stjórnarfundi í síðustu viku ásamt
uppkasti að samningum vegna fyr-
irhugaðra framkvæmda. Að sögn
Gísla Gíslasonar bæjarstjóra Akra-
ness er verið að skoða hvort eignar-
aðilar Byggðasafnsins séu tilbúnir
til að fjármagna rúmlega 600 fer-
metra byggingu að Görðum í því
skyni að hýsa þar steinasafn, Land-
mælingasafn, Hvalfjarðargangasafn
og íþróttaminjasafh. “Þetta myndi
verða mjög mikil lyfristöng fyrir
Byggðasafnið, efla svæðið og laða
að fleiri ferðamenn.” segir Gísli.
“Kosmaðurinn við byggingu húss-
ins er á að
giska 30
m i 11 j ó n i r
króna. Inn-
réttingar
yrðu hinsveg-
ar fjármagn-
aðar m.a. af
aðilum sem
myndu ann-
ast rekstur
h ú s s i n s .
Stefnt er að
því að Þor-
steinn Þor- Fn* Byggðasafainu á Görðum. Mynd: BG
leifsson eigandi Steinaríkis íslands að menn taki ákvörðun af eða á.”
taki reksturinn að sér. Málið er ekki segir Gísli.
fullunnið en þó er skammt að bíða SB
Akraneskaupstaöur
Byggingar- og skipulagsdeild
Auglýsing um nýtt deiliskipulag
Ásar/ Trabarbakkaland á Akranesi
Me& vísan í 1. og 2. mgr. 18 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
er hér með auglýst eftir athugasemdum við nýtt deiliskipulag, nefnt Ásar/
Traðarbakkaland á Akranesi.
Svæðið er suð-austan jörundarholts, norð-austan Leynisbrautar við landamerki
Innri- Akraneshrepps.
Um er að ræða einnar hæðar íbúðahverfi fyrir raðhús, parhús, og einbýlishús.
Teikningar og greinargerð, ásamt frekari upplýsingum liggja frammi á
bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3 hæð frá og með 11.
febrúar nk. til 10. mars 2000.
Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera skriflegar og berast byggingar-og
skipulagsfulltrúa Akraneskaupstaðar eigi síðar en 24. mars 2000, þeir sem
ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast samþykkja hana.
nByggingar-
og skipulagsfulltrúi.
um deiliskipulag og breyting á
deiliskipulagi í Skorradalshreppi.
1. Deiliskipulag af sumarbústaðahverfi í landi
Dagverðamess í Skorradal. Nýtt svæði ásamt
skiímálum.
2. Brcyting á deiliskipulagi fyrir sumarbústaðasvæði
í landi Dagverðamess í SkoiTadal, Borgarfirði.
A svæði 3 er stækkuð lóð nr. 126 niður í átt að
vatni. Auk þess er heimilað að byggja eitt bátaskýli
á lóðinni.
Verða jjessar tillögur til sýnis hjá oddvita á Grund í
Skorradal og hjá byggingafulltrúa, Kirkjuljraut 56, 2.
hæð, Akranesi, frá og með 4. febrúar 2000 - 3. mars
2000. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, geta
gert skriflegar athugasemdir. Skulu þær hafa borist eigi
síðar en / 7. mars 2000 til oddvita eða til byggingafulltma;
Bjama 0. V. Þóroddssonar, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi.
I Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar ixrnan
1 tilskilins frests teljast samþykkir þeim.
*
a
Byggingafulltrúi Skorradalshrepps
_________________________Bjarni 0. V. Þóroddsson/
Eyrarsveit
- ATVINNA -
Bæjartæknifræðingur
Laus er til umsóknar staða tæknifræðings Eyrarsveitar,
Grundarfirði. Samkvæmt fyrirliggjandi starfslýsingu fer
tæknifræðingur með yfirumsjón tæknisviðs og áhaldahúss,
hefur umsjón með skipulags- og byggingamálum, verklegum
framkvæmdum sveitarfélagsins og stofnana þess, viðhaldi
mannvirkja o.fl. Hann annast tilheyrandi áætlanagerð og
skipulagningu. Æskilegt er að viðkomandi hafi haldgóða
þekkingu í tölvumálum. Leitað er efth
byggingatæknifræðingi. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Eyrarsveitar,
Grundargötu 30, Grundarfirði, fyrir 24. febrúar nk.
Frekari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 438 6630.
Hefurðu áhuga á að búa og starfa í blómlegu
sveitarfélagi á uppleið?
I Grundarfirði búa um 950 manns, þar af mikið af ungu fólki. Grundarfjörður
er í um 180 km. akstursfjarlægð frá Reykjavík og þar er athafnasemin í fyrirrúmi.
Kynntu þér málið. Okkur vantar ennfremur sjúkraþjálfara til starfa á nýrri
I heilsugæslustöð. Getum alltaf bætt við okkur góðum kennurum í leik-, grunn og
tónlistarskóla.
V
Verið velkomin í Grundarfjörð!
Sveitarstjórinn í Grundarfirði.
Hollustuvernd ríkisins
Auglýsing um
starfsleyfístillögu
fyrir fískeldisstöð.
í samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/1998, um hollustuhætti
og mengunarvamir, liggur frammi til kynningar, á afgreiðslutíma
á skrifstofum viðkomandi sveitarstjóma:
Fiskeldisstöð Laxeyrar ehf., Húsafelli. Liggur frammi á
skrifstofu Borgarfjarðarsveitar, Litla-Hvammi
Borgarfjarðarsveit, til kynningar frá 28. janúar til 27. mars,
2000.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu
hafa borist Hollustuvernd ríkissins í síðasta lagi 27.
mars, 2000.
Rétt til að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna
hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn
pg starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir
óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar.
Einnig er hœgt að nálgast tillögurnar á heimasíðu Hollustuverndar
ríkissins http://www.hollver.is/mengunlmengun.html
Hollustuvernd ríkisins
Mengunarvarnir
Ármúli la,
Reykjavík